blaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 45
blaöiö LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2005
SMÁSAGA I 4S
„En í sambandi við nafn...“ Ábyrgur
hélt áfram að tala en það heyrðist
ekkert í honum lengur því að mjög
há tónlist ómaði skyndilega um allt.
Lágvaxinn strákur, sem greinilega
var ábyrgur fyrir tónlistinni, kom
í ljós. Hann var með hanakamb og
svart hár eins og þau hin. í hendinni
hélt hann svo á MP3-spilara. Þegar
hann var kominn alveg upp að þeim
slökkti hann á tónlistinni og horfði á
Lilju. Hann labbaði alveg til hennar
og tók í hendina á henni.
„Svalur, beibí!“ sagði hann og
blikkaði hana. Síðan kveikti hann
aftur á tónlistinni og labbaði í burtu.
Lilja starði á eftir honum en sneri sér
svo að hinum. Hún ætlaði að fara að
spyrja en það var óþarfi því það var
eins og Netvörður læsi hugsanir.
„Þetta var Svalur. Hann er einn af
okkur, en er bara dáldið spes,“ sagði
Netvörður.
„Eins og ég var að reyna að segja,
þá þurfum við að finna nýtt nafn
á þig og láta þig í önnur föt,“ sagði
Ábyrgur ögn pirraður og togaði í
Nike-peysuna hennar Lilju með
hryllingssvip. „Hvað með... Glöð?
Nei, það virkar ekki. Tækniglöð?
Tæknistelpan? Nei nei, gengur ekki!
Aha, ég veit! Samskiptaglöð! Hér með
heitir þú Samskiptaglöð!"
Lilja vissi ekki mikið um svona
nöfn, þannig hún bara yppti öxlum.
„Jájá, mér er alveg sama.“ Ábyrgur
skæíbrosti og klappaði saman
höndunum.
„Fínt! Þá er komið að fötunum! Nú,
ég hugsa að gulur fari þér mjög vel og
svart, þú ert með svart hár þannig
það hlýtur að fara saman. Hvað
segirðu um gult pils, gula peysu og
gula og svarta sokka?“ Lilja brosti, jú
hennilíkaði reyndar gult. „Jú, það er
fínt!“ Ábyrgur brosti svo mikið að
nú hefði mátt nota orðatiltækið um
að brosa út að eyrum. „Æði!“ sagði
hann og hljóp innum hurð sem var
merkt með stórum stöfum; FÖT.IS.
Fimm mínútum seinna kom hann
skælbrosandi út með búninginn í
höndunum.
„Hérna!“ sagði hann stoltur og rétti
Lilju. Búningurinn var ennþá heitur.
„Takk“ sagði Lilja vingjarnlega.
„Hvar má ég fara í hann?“ Hún sá
á svipnum að Ábyrgur hafði alveg
gleymt að hugsa út í það. Hann rauk
upp til handa og fóta og fann loks
geymsluherbergi handa henni og
vísaði henni þar inn.
Stuttu seinna labbaði Lilja, eða
Samskiptaglöð eins og þau kölluðu
hana, út úr geymslunni með bros á
vör. Ótrúlega gul sneri hún sér í hring
til að leyfaþeim að sjá.
„Flott, flott, æði, flott...“ sagði
kaldhæðnisleg rödd bak við Lilju.
Hún sneri sér við og kom auga á
svartklædda veru. Þessi vera var
karlkyns og með stutt svart hár
sem var greitt eins og hann væri
Elvis. Hann var í hvítum buxum og
svörtum pokalegum jakka með stóru
@-merkiábakinu.
„Ég man ekki eftir að hafa boðið
þér að koma,“ sagði Ábyrgur ískaldri
röddu.
„En skrítið, ætli ég hafi þá ekki
bara boðið mér sjálfur?" sagði veran
og brosti stríðnislega. Hvell rödd
Netvarðar glumdi um allt;
„Samkvæmt útreikningum mínum
hefur þú akkúrat... engan rétt á að
verahér!"
„Þetta er Þrjóturinn,“ útskýrði
Ábyrgur fyrir Lilju. „Þig langar ekki
til að kynnast honum!“ Lilja leit
spurnaraugum á Þrjótinn, en hann
hló kaldhæðnislegum hlátri
„Haha! Eins og mig langi einhvað
til að kynnast henni!“ sagði hann og
leit undan. Enginn sagði neitt. Loks
rauf Ábyrgur þögnina.
„Umm... Þrjótur, er ekki upplagt að
þú farir að...“ Þrjóturinn greip fram í
fyrir honum:
„Fara! Það er einmitt það sem
ég er að fara að gera! Ég ætla að
fara og skrifa ljótar athugasemdir í
gestabækur! “ Hannglottiiílgirnislega.
Síðan labbaði hann hratt í burtu og
hvarf úr augnsýn.
„Hefur hann alltaf verið svona...“
sagði Lilja sakleysislega eins og hún
vildi sleppa síðasta orðinu.
„Illgjarn? Ó já...“ sagði Ábyrgur.
,Alveg síðan ég man eftir honum.“
„Lilja?“ sagði lág rödd einhvers
staðar aftan við Lilju. Hún sneri sér
við og þarna stóð Dagný í fullum
skrúða. Hún var klædd í bleika og
fjólubláa kápu. Svart hárið var tekið
aftur í tíkó og hún var í sitthvorum
sokknum. Lilja brosti og hljóp til
hennar. Þær föðmuðust.
„Hæ!“ sagði Lilja hress þegar
þær slepptu hvor annari. „Flottur
búningur!“
„Takk,“ sagði Dagný feimin. Lilja
sneri sér brosandi að Ábyrgi.
„Ég var samt að spá; hvernig
komumst við héðan?" Ábyrgur
hugsaði sig um.
„Tja, ég held þið komist ekkert burt.
Ekki nema einhver slökkvi á tölvunni
sem þið komuð í gegnum." Brosið
hvarf af Lilju og Dagný kjökraði. Það
var alltaf kveikt á tölvunni heima.
Þær myndu aldrei komast heim!
„Hafa einhverjir aðrir komið svona
áður, ég meina... í gegnum tölvur?“
spurði Lilja djúpt hugsi.
„Ójá, oft. Álveg svona einu sinni
til tvisvar á ári!“ sagði Netvörður
spekingslega.
„Ó,“ sagði Lilja og beit í vörina á sér.
Þau stóðu sem frosin í eitt
augnarblik.
„Það er komið að því!“ sagði
Netvörður allt í einu.
„Komið að hverju?“ spurði Dagný,
sem einnig var þekkt sem Hrekklaus,
forvitin.
„Þið eruð að fara,“ sagði Ábyrgur
vingjarnlega. „Þið voruð heppnar
stelpur mínar.“
Allt í einu voru bæði Þrjóturinn
og Svalur staddir hjá þeim. Það sagði
enginn neitt, en allir horfðu upp í
loftið eins og þau væru að bíða eftir
einhverju.
„Eftir hverju eruð þið að bíða?“
spurði Lilja og leit upp í himininn,
en fékk ekkert svar. Það var eins og
henni hafði verið kippt upp. Hún leit
í kringum sig og áttaði sig á því að
hún var aftur stödd í hvirfdbylnum.
Hún sá einnig hópinn sem henni
hafði líkað svo vel við, Ábyrg,
Netvörð, Þrjótinn og Sval, fjarlægast
á gífurlegum hraða.
Skyndilega voru Lilja og Dagný
staddar á miðju gólfinu inn í
tölvuherbergi. Þær heyrðu lágan grát
frammi. Lilja opnaði hurðina og sá
mömmu sína grátandi á sófanum.
„Mamma?“ Mamma Lilju leit á
dóttur sína í fyrsta skiptið í viku. *.
„Lilja?“ hálfkallaði hún. „Ó Liljal'
kallaði hún aftur og stökk til hennar
og faðmaði. „Við erum búin að leita
útum allt! Hvar hefurðu verið?"
„Það er löng saga að segja frá,“ sagði
Lilja og brosti.
Skömmu seinna vaknaði Lilja til
að fá sér vatnsglas. Þegar hún ætlaði
aftur inn í herbergi stoppaði hún
hjá tölvuherberginu. Hún opnaði
hljóðlega og leit á tölvuna. Þar stó^-
allur hópurinn og brosti til hennar,
nema auðvitað Þrjóturinn. Hún
brosti á móti og það var ekki fyrr en
þá sem hún áttaði sig á því, að þetta
hafði allt saman verið draumur.
i og spenna
Draumar
jnariilvttíinnar
Herdís Egilsdóttir
Draumar marglyttunnar segir frá baráttu góðs
og ills. Óþokkinn Syrtir berst gegn konungi sínum
og ætlar sér að taka völdin og segja mönnum stríð
á hendur. En það er Fráinn litli sem reynir að koma
vinum sínum til bjargar.
Herdís Egilsdóttir er fyrrverandi kennari og
þjóðþekktur rithöfundur.
Glæsilegar litmyndir eru eftir Erlu Sigurðardóttur,
myndiistarmann.
Hér er á ferðinni einstaklega falleg bók fyrir börn
á öllum aldri.
Bókin sem allar stelpur verða að lesa!
Bryndís Jóna Magnúsdóttir, 24 ára frá
Keflavík, er ný og fersk rödd í íslenskum
unglingabókmenntum.
Hér er á ferðinni flott og kúl bók um stelpu
sem þjáist af mikilli ástsýki og feimni og
tilraunum hennar til að næla I Danna,
sætasta strákinn I skólanum ...
~\\ f )
/ V / / / /ii
Hér kemur 9. bókin I hinum geysivinsæla
bókaflokki GÆSAHÚÐ eftir Helga Jónsson.
í könnun sem Landskerfi bókasafna gerði
fyrir árið 2004 lenti Gæsahúð í 3. sæti yfir
mest lesnu bækurnar í öllum flokkum. í flokki
barna- og unglingabóka var Gæsahúð í
1. sæti.
mdur
Bókaútgáfa
Símar: 660 4753 • 462 4250
www.tindur.is • tindur@tindur.is