blaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 I blaöiö
Eldsvoðinn á Englandi
Okumaður tank-
bíls yfirheyrður
Skoðunarferðir
um hamfarasvæði
Lögregla á Bretlandi yfirheyrði í gær
ökumann tankbíls sem kann að hafa
átt þátt í því að gríðarleg sprenging
varð í olíubirgðastöðinni í Buncefi-
eld. Félagi bílstjórans sagði í viðtali
við breska götublaðið The Sun að
hann hefði orðið var við fnyk af bens-
íni þegar hann kom til stöðvarinnar
og að fyrsta sprengingin hefði átt
sér stað þegar hann var nýbúinn að
drepa á vél bílsins.
Bob Woodward, forstöðumaður
Breska vinnueftirlitsins, sagði að of
snemmt væri að segja til um hvað
hefði valdið sprengingunni en verið
væri að rannsaka það. Stofnunin
Slökkviliðsmenn virða fyrir sér olíutank
sem eyðilagðist I brunanum mikla í
Buncefield-olíubirgðastöðinni.
hefur á undanförnum árum sent olíu-
birgðastöðinni tvær áminningar um
endurbætur en ekki gert alvarlegar
athugasemdir við aðbúnað hennar.
Ferðaþjónustufyrirtæki í New
Orleans hefur skipulagt sérstakar
skoðunarferðir um svæðin sem
urðu illa úti í hamförunum í haust.
Fyrirtækið hefur hingað til staðið
fyrir skoðunarferðum um söguleg
hverfi borgarinnar, kirkjugarða
og mýrar en mjög hefur dregið úr
aðsókn í þær eftir að um 8o% borg-
arinnar fór á kaf í vatn í kjölfar
fellibylsins Katrinar. Forsvarsmenn
fyrirtækisins segja að hugmyndin
hafi komið til vegna óánægju þeirra
með hve uppbyggingarstarf stjórn-
valda gengi hægt fyrir sig. Skoðunar-
Skipulagðar hafa verið sérstakar skoðun-
arferðir um hverfi New Orleans borgar
sem urðu illa úti í hamförunum I haust.
ferðin tekur þrjár klukkustundir og
renna io% gjaldsins til samtaka sem
vinna að uppbyggingarstarfi vegna
Katrínar. Gregory Hoffman, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins segir
að fólk geri sér ekki grein fyrir því
tjóni sem orðið hafi fyrr en það sjái
það með eigin augum. Margir hafa
gagnrýnt ferðirnar enda eru enn
tugir þúsunda borgarbúa dreifðir
um land allt og sjá megi önnur fórn-
arlömb hamfaranna á götum borgar-
innar þar sem þau búa við slæmar
aðstæður.
*AF öuu\r
NÝJUM
JÓLA&ÓKUM
OPYRA2TA
6ÆFU2POK ^
(5UNNAR HBR&VZINN
"£& HBF LBN&I BB&IP BFTHZ FBBBARIBÖK
UM LÍFB&ILPIN O& LAB HANA M&R TIL
MIKILLAR ÁNÆGJU. BÓKIN 6/BFU5POR BR
ÁTTAVITI BBM VÍBAR VB&INN."
VI&PÍB FINNBO&APÓ TT/R
OUPNl BFFúZ
PORBTBINN J.
PAP KBMBT BN&INN
FRAM HJÁ &UPNA
w
Xs/'AF öllum
BRLBNPUM
V KILJUM
HJÁ OKKUR BRU NAB& BÍLABTABPI
O& &OTT AP&BN&!
Tugum gísla
hugsanlega sleppt
Stjórnvöld í Kólumbíu eru reiðubúin
að draga hersveitir sínar til baka frá
svæði í suðurhluta landsins ef það
leiðir til þess að marxískir uppreisn-
armenn láti lausa 63 gísla sem þeir
hafa haldið föngnum. Sumir gísl-
anna hafa verið í haldi uppreisnar-
manna í allt að sjö ár. 1 hópnum er
meðal annars fyrrverandi forseta-
frambjóðandi og þrír bandarískir
ríkisborgarar.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
tillögu nokkurra Evrópuþjóða sem
miðar að því að koma samningavið-
ræðum á milli stjórnvalda og upp-
reisnarmanna af stað á ný. „Ég viður-
kenni að hér er um eftirgjöf af hálfu
ríkisstjórnarinnar að ræða,“ sagði
Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu. Ekki
hefur heyrst hvort uppreisnarmenn
gangi einnig að þessum tillögum en
þær koma að nokkru leyti til móts
við kröfur þeirra.
Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, og Luis
Carlos Restrepo, friðarfulltrúi, ræöa viö
fjölmiðlafólk I forsetahöllinni I gær.
Fuglaflensa
í Úkraínu
Rannsóknir hafa leitt í ljós að ali-
fuglar sem fundust dauðir í Úkraínu
voru haldnir hinu banvæna H5N1-
afbrigði fuglaflensu. Heilbrigðis-
ráðuneytið hefur staðfest að þetta
banvæna afbrigði veirunnar hafi
fundist á Krímskaga. Forseti lands-
ins lýsti yfir neyðarástandi á svæð-
inu fyrir tveimur vikum. Veiran
hefur ekki greinst þar í mönnum
en sýni hafa verið tekin og bóluefni
dreift. Þá hafa nokkur þorp verið
sett í sóttkví út af ástandinu og um
50.000 alifuglum hefur verið fargað.
Fuglaflensan sem hefur orðið nærri
70 manns að bana í Asíu hefur
Staöfest hefur veriö aö alifuglar sem dráp-
ust f Úkrafnu voru haldnir H5N1-afbrigði
fuglaflensu.
einnig greinst i nágrannaríkjunum
Rúmeníu og Rússlandi.