blaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 15

blaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 15
blaðiö FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 ÁLIT I 15 ■ M netinu Forsetinn og lýðskrumiö Mér hefur gjarnan verið hlýtt til forseta íslands og lít á þann er situr hverju sinni á Bessastöðum sem fyrirmynd þjóðar og þann er leiðbeinir fólki á lífsleið þar sem margan háska ber að höndum. Það gladdi mig þegar sá annars ágæti forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, boðaði í nýársávarpi sínu í upphafi árs að hann ætlaði að taka upp bar- áttu gegn stærsta böli samtímans, eiturlyfjavandanum. Þetta var fyrirheit um raunveru- lega baráttu gegn því sem drepur börnin okkar og veldur hvarvetna harmi. Forsetinn á Bessastöðum ætlaði í krossferð gegn vágesti sem í daglegu tali nefnist dóp. En vonir mínar um efndir hafa dofnað eftir því sem liðið hefur á árið. Ekkert hef ég heyrt eða séð sem bendir til þess að forsetahjónin hafi stigið út af búgarði sínum og gengið á meðal þegna sinna til að vinna gegn ógæfunni. Reynir Traustason á www.mannlif is Myndarbragur Alfreðs Um daginn létum við í Heim- dalli í ljós óánægju okkar með að Alfreð Þorsteinssyni, forseta borgar- stjórnar, væri falið að hafa yfirum- sjón með bygginu nýs sjúkrahúss hér í Reykjavík. Um er að ræða gífur- lega fjármuni sem honum er treyst fyrir og því er mjög mikilvægt við getum haft trú á því að hann fari vel með þá fjármuni, enda eru þetta skattpeningarnir okkar. Alfreð hefur sinnt keimlíku hlut- verki áður. Hann hafði einnig yfir- umsjón með byggingu höfuðstöðva Orkuveitunnar og gerði sér lítið fyrir og tvöfaldaði rúmlega þá upp- hæð sem áætluð hafði verið til bygg- ingarinnar. 300 milljónir króna fóru í garðinn einan. Þó þetta séu sláandi staðreyndir finnst mér þær ekki endilega standa upp úr. Það sem stendur upp úr og ég vona að sem flestir lesi þetta og velti þessu vel fyrir sér, er að honum fannst það fullkomlega eðlilegt. Hann hefur alla tíð haldið því fram að hann hafi staðið sig vel í byggingu Orku- veituhússins. Honum finnst eðlilegt og raunar glæsilegt að stela af borg- arbúum 4000 milljónum, ef við reiknum framúraksturinn varlega og tökum Linu.net ævintýrið og skyld dæmi ekki með i reikninginn. Hvers konar maður hugsar svona? Voðalega hef ég verið barnalegur þegar ég hélt að menn byðu sig fram í opinber embætti til að vinna að hag borgaranna en ekki til þess að ræna af þeim peningum og gera svo lítið úr þeim þegar spurt er hvert peningarnir fóru. Hins vegar man ég eftir svipuðu dæmi þegar Ingibjörg Sólrún ákvað að verða ekki borgarstjóri. Frétta- maður spurði hana hvort hún hafi, í sjónvarpsviðtali, ekki örugglega lofað því að hún yrði borgarstjóri næstu fjögur árin. Jújú, það hélt hún nú. Þá spurði fréttamaður hana hvort hún ætlaði að vera borgar- stjóri næstu fjögur árin og hún svar- aði þvi neitandi. Aðspurð um hvort hún væri að ganga á bak orða sinna varð hún hin versta og sagði svo alls ekki vera. Ég skil ekki þetta dæmi. Björn Berg Gunnarsson á www.frelsi. is Ö gy U uf ujjmni raunniirmjai Saga SigríÖar Þorvaldsdóttur skráð af Jóni Hjartarsyni Áhrifamikil saga söngleikjastjörnunnar sem missti málið á hátindi frægðar sinnar. Skemmtileg bók um viðburðaríka ævi hrffandi konu. Stórt upplag uppselt hjá útgáfunni. Ef til vill tekst að prenta meira seint í næstu viku. Penninn, 7.-13. des. Ævisögur or.r.nn rnr.unynr Final Approach Nú með 20% JÓLA-AFSLÆTTI KR. 23.900,- TASKA, PUMPA OG AUKA SEIT AF UÍFnnUKJUM nXCJR MEÐ www.hlad.is v Hlað ehf. • Bíldshöfóa 12 • S

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.