blaðið - 15.12.2005, Síða 13
blaðið FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005
ERLENDAR FRÉTTIR I 13
Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands,
segist vera sannfærður um að nýju til-
lögurnar komi bæði Bretlandi og öðrum
ríkjum Evrópu til góða.
Fjárlög ESB:
Bretar hækka
tilboð sitt
Bretar hækkuðu tilboð sitt til fjár-
laga Evrópusambandsins um 2,3
milljarða evra (jafnvirði 172,5 millj-
arða íslenskra króna) í gær. Mikillar
óánægju hefur gætt meðal annarra
ríkja ESB með fyrri fjárlagatillögur
Breta fyrir tímabilið 2007-2013 sem
þeir lögðu fram fyrr í mánuðinum.
Samkvæmt nýju tillögunum munu
fjárlög ESB á þessu tímabili nema
849,3 milljörðum evra.„Við erum
enn sannfærð um að þessar tillögur
koma Bretlandi og Evrópu til góða
og að hægt verði að komast að
samkomulagi á grundvelli þeirra
á fundi Evrópusambandsins í
Brussel í vikunni," sagði Jack Straw,
utanríkisráðherra Bretlands. Sam-
kvæmt tillögunum er gert ráð fyrir
sérstökum sjóðum fyrir nokkur
af fátækustu ríkjum sambandsins.
Sagði Straw að fjárlögin myndu
hjálpa nýjum aðildarríkjum ESB að
byggja upp hagkerfi sín og samfélög.
Jakaya Kikwete þykir sigurstranglegastur
í forsetakosningunum í Tansaniu.
Kikwete
spáð sigri
Jakaya Kfkwete, forsætisráðherra
Tansaníu, er spáð sigri í forseta-
kosningum í landinu sem ffarn
fóru f gær. Kikwete býður sig fram
fyrir Byltingarflokkinn sem hefur
verið við stjórnvölinn í landinu
i um fjóra áratugi. Níu aðrir eru
í framboði í kosningunum en
samkvæmt skoðanakönnunum
er hann með yfirburðaforskot og
stjórnmálaskýrendur eru sammála
um að eldcert ógni fylgi hans. Benj-
amin Mkapa, fráfarandi forseti,
lætur af störfum eftir að hafa
gegnt embætti í tvö kjörtímabil.
Lengsti strætó
Svíþjóðar
Lengsti strætisvagn Svíþjóðar
verður tekinn í notkun á götum
Gautaborgar á nýju ári. Vagn-
inn, sem er fullir 24 metrar að
lengd, var keyptur vegna milcilla
vinsælda einnar leiðarinnar. Svo
vinsæl var leiðin að fyrirtækið
sem rekur strætisvagna borgar-
innar sá sig lcnúið til að verða sér
úti um vagn sem gæti tekið 165
manns í sæti. Vagninn langi var
þróaður og smíðaður af Volvo-
bílaverksmiðjunum í samstarfi
við fleiri aðila og hafa þegar fjórir
verið pantaðir til Gautaborgar.
Kalifornía ekki búin
undir risaflóðbylgju
Risaflóðbylgja, í kjölfar öflugs jarð-
skjálfta úti fyrir strönd Kaliforníu,
myndi ógna að minnsta kosti
milljón íbúum strandsvæða í fylk-
inu auk þess að valda skemmdum
á mannvirkjum. Þetta kemur í ljós í
nýrri skýrslu sem kynnt var á mánu-
dag. Samkvæmt henni er alvarlegur
misbrestur á viðbúnaði fylkisins við
slíkri hættu. Meðal annars er um að
ræða galla á viðvörunarkerfi, ekki
eru til fullnægjandi áætlanir um
rýmingu strandsvæða auk þess sem
ekki er tekið mið af öldum afþessum
styrkleika í byggingarreglugerðum.
Þar að auki gera margir íbúar sér
ekki grein fyrir hugsanlegri hættu
sem stafar af risaflóðbylgju og vita
ekki hvernig á að bregðast við. Á
síðustu hundrað árum hafa meira
en 80 flóðbylgjur, flestar minni-
háttar, verið skráðar við strendur
Kaliforníu. Sú mannskæðasta átti
sér stað árið 1964 þegar jarðskjálfti í
Alaska leiddi til öflugrar flóðbylgju
sem varð 12 manns að bana.
Ný rannsókn leiðir í Ijós að íbúar í Kaliforníufylki eru ekki í stakk búnir til að takast á við
risaflóðbylgju af völdum jarðskjálfta.
MEMORY
HEILSUDYNA
HEILSUDYNA
Ekki gleyma að...
...láta þér líða vel á jólunum
CALEIDO
ELEQTAy, .
HEILSUDYNA
Tilboð 145.000.
stærð: 205x270cm
160x9
UU jUldll
SIGMA TUNGUSÓFI
Tilboð 109.000.
SIGMA
160x200 veri 139.000.-
OPTI
V
verð
3 sæta 86f(B|
2 sæta 69.000.
80x20
oð
frá 69.000.
korfu aklœði
2+h+2 kr. 99.000
Náttborð
3+h+2 kr. 109.000
kr 9.200.- kr 9.900.- kr 7.900
■■HBB
Ný vefsíða
www.toscana.is
HÚSGÖGNIN FASTEINNIG / HÚSOAONAVAL, HÖFN *: 47* 2535
húsgagnaverslun
TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FAST EINNIGIHÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535