blaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 16
16 I ÝMISLEGT
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 i blaöiö
Jólakvíði
Vonar að jólastressið hverfi
með komandi kynslóðum
Jólin eiga að vera hátíð ljóss
og friðar. Samt vilja þau
snúast upp í andhverfu sína
hjá mörgum. Jólakvíði er
orðin hvimleiður fylgifiskur
hátíðanna þar sem að tilbúnar
kröfur um mikið og glæsilegt
umfang jólanna hvíla sem mara
á herðum landsmanna. Það
þarf að þrífa hvern krók og
kima, kaupa endalausar gjafir,
skreyta óaðfinnanlega og helst
að gera allt slíkt meðfram vinnu
og öðrum hversdagslegum
skyldum. Blaðið ræddi við Eygló
Guðmundsdóttur, sálfræðing,
um jólakvíðann, gildi jólanna
og framtíðina.
Jólakvíði ekki sérstök röskun
Eygló segir að það sé í raun
engin sérstök röskun sem heiti
jólakvíði. „Þetta er raunverulega
bara almennur kvíði sem eykur
álag og þreytu. Jólakvíði er bara
hugtak sem maður getur notað
yfir þennan tíma þegar fólk ætlar
sér bæði að vinna fulla vinnu og
halda jólin með pompi og prakt.
Það á að skreyta allt, þrífa og baka.
Þetta verður svo yfirgengilegt að
fólk fer bara að kvíða því að koma
ekki hlutunum í verk,“ segir Eygló
og bætir við að það sé vissulega
einstaklingsbundið hverjir það
eru sem haldnir séu svona kvíða.
„Það er bara þannig að sumir eru
meira kvíðnir en aðrir. Þannig að
Eygló Guðmundsdóttir, sálfræðingur, telur að umfang jólanna sé orðið allt of mikið.
þetta er í raun og veru bara ein
tegund kvíða sem tengist svona
stórum viðburðum þar sem þeir
eru veikastir fyrir sem að almennt
eru haldnir kvíða.“
Reyna að minnka áreiti
um hátíðarnar
Þegar Eygló er spurð um það hvort
Blaöiö/Frikki
umfang jólanna sé kannski orðið
of mikið þá samsinnir hún því.
,Til dæmis jólahreingerningar,
VlFILFEU
Vli #nim t>«5 R»H!
'M Þann 17. desember verður sannkölluð jóla og barnahátið í BryggjuBúllunni
Við ætlum að vera með sannkallaða barnahátíð og um leið styrktarsöfnum
handa UMHYGGJU, félagi langveikra barna.
10% af allri íssölu frá oq með 1 ian til 31 okt 2006 renna til UMHYGGJU
Á laugardeginum milli kl. 13 - 16 verða Stekkjastaur og Giljagaur að afgreiða á staðnum
I tilefni að komu jólasveinanna útbúum við uppáhalds JÓLAÍSINN jjeirra handa öllum börnum, þar verður
einnig hægt að láta taka jólamynd af sér með jólasveinunum gegn 300 kr. gjaldi, sem rennur óskipt til
Umhyggju.
Jólasveinarnir leysa alla krakka út með mjög svo ' ovæntum" glaðningi
'$< Til að auka ó spennuna þá getum við því miður vegna "plássleysis" ekki sagt frá öllu því skemmtilega sem
verður í boði. En við lofum að það verður æðislega gaman og sannkölluð hátíðarstemming því margt
verðurtil gamans gert og mikið af ýmsu góðgæti í boði frá velgjörðaaðilum hátíðarinnar.
Komdu með alla f jölskylduna, öll börn og alla vinina á sannkallaða
BARNA - JÓLAHÁTÍÐ milli kl. 13 og 16 og hjálpaðu okkur að gleðja aðra
um leið og við gleðjum þig með stuðningi góðra fyrirtækja.