blaðið - 15.12.2005, Qupperneq 40
40 I AFPREYING
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2005 blaöiö
Þróun í
rétta átt
Ég veit ekki með ykkur hin
en þegar Og Vodafone fór að
auglýsa byltingu á farsíma-
markaðnum klóraði ég mér
á hausnum og hélt áfram að
tala í gemsann minn.
Vodafone Live! þjónustan er
nálgun Vodafone fjarskiptaris-
ans á nýrri og hraðari gagna-
hraða í GSM síma. Það má senni-
lega líkja þessu við það þegar
íslendingar fóru að geta tengst
Intemetinu með ISDN í staðinn
fyrir innhringiaðgang. Nú er
hægt að skoða meira magn á
Netinu í gegnum GSM símann
sinn, auk þess sem það er fljót-
legra og myndrænna. Hingað
til hefur Netið f gemsum verið
afskaplega hægt og auk þess ljótt
þar sem engar voru myndirnar.
Live! er heimasvæði Og Vodaf-
one á Netinu þar sem hægt er
að nálgast nytsama hluti eins og
fféttir frá Vísi og NFS, mismik-
ilvæga afþreyingu og tilgangs-
lausa hluti eins og brandara.
Það besta við Live! er að
ókeypis er að vafra um allar
efnissíður. Maður fær að vita í
hvert skipti sem eitthvað á eftir
að kosta svo engin hætta er á að
standa uppi með metra langa
símreikninga. Hins vegar finnst
mér sú þjónusta sem kostar vera
helst til dýr. Reyndar eru sumir
leikirnir mjög góðir og vel þess
virði að eiga þá. Áður en þeir
em sóttir er samt sem áður góð
hugmynd að skoða þá á heima-
síðu Og Vodafone. Að lokum
ber að forðast brandarana, þeir
era arfaslakir. Erlendis er boðið
upp á enn betri þjónustu, s.s.
að horfa á fréttatíma sjónvarps
i beinni. Á íslandi styttist í
að sú þjónusta bjóðist og þá
fyrst verður gemsinn ómiss-
andi fyrir nútímamanninn.
Þegar öllu er á botninn
hvolft er Live! gjörsamlega
gagnslaust fyrir þá sem nota
símann sinn eingöngu til að
tala í hann og senda einstaka
sms. Staðreyndin er bara sú að
allflestir nota símana sína til
margs annars, sérstaklega upp
á síðkastið. Nú era myndavélar
á nánast öllum símum, hægt
er að komast á Netið á þeim og
senda jafnvel tölvupóst. Islend-
ingar hafa alltaf verið frægir
fyrir nýjungagirni sína. Það er
spurning hvort fótanuddið megi
ekki bíða meðan við hlaupum
til móts við upplýsingatæknina.
Best: Ókeypis að vafra.
Verst: Uppfletting í símaskrá kostar.
agnar. burgess@vbl. is
Jólatilboð barnanna
690 kr
Húfa -jóladiskur
jólaglas - Samloka
gos og - smákaka
QuiznosSuB
HHHH...GLÓÐAÖUR
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32
■ Topp 10 - leikir
Skákaðu Ferguson og
mátaðu Mourinho
Býst virkilega einhver við þvf að
stórþjálfararnir í evrópskri
knattspyrnu stoppi reglulega
í nokkra klukkutíma til að
hugsa uppsetningu liðsins
í næsta leik? Þetta eru við-
skiptajöfrar sem þurfa
að fljúga á milli landa
í einkaþotum og tala
við mikilvægt fólk
svo þeir hafa eng-
an tíma til þess að
stoppa, nema e.t.v.
til að fara á klósettið.
Ástæðan fyrir því að
við hin erum alltaf
tveimur skrefum á
eftir stórköllunum
er að hingað til höf-
um við verið háð því að
setjast niður við tölvu til
að skipuleggja liðið okkar og
kaupa og selja leikmenn. Nú verður
þessu breytt. Championship Manager er kom-
inn út fyrir handtölvuna PlayStationPortable svo
allir geta sýnt fram á hæfileika sína sem knattspyrnustjórar
án þess að fórna daglegu lífi til þess. Hugsaðu og framkvæmdu á
sama tíma, ekki bíða eftir því að þú komir heim.
iÉÍ
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um að
raða tölunum frá 1 -9 lárétt
og lóörétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni fyrir í hveni línu,
hvort sem er lárétt eða lóðrétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
4 9
7 1 2
2 9 6
5 1 4 6
7 3
9 6 7 5
5 6 9
4 3 5
2 4
Lausn á síðustu þraut
6 2 5 3 1 9 7 8 4
1 7 8 2 6 4 9 5 3
3 4 9 5 7 8 2 1 6
7 3 4 8 2 1 5 6 9
5 8 6 7 9 3 4 2 1
2 9 1 4 5 6 8 3 7
9 1 7 6 8 5 3 4 2
8 6 3 9 4 2 1 7 5
4 5 2 1 3 7 6 9 8
SingStar 80's PS2
NFS: Most Wanted Allarvélar
Sims 2 Christmas Pack PC
EyeToy Play 3 PS2
Ratchet Gladiator PS2
Harry Potter&The Goblet of Fire Allarvélar
Star Wars Battlefront II PC/PS2/XBOX
Fifa 06 Allar vélar
GTA: Liberty City Stories PSP
Bratz PC/PS2
109 SU DOKU talnaþrautir
Arftaki Unnar Birnu
Eins og kom fram um síðustu helgi
virðist heimurinn allur sammála
um að Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
er fegursta kona heims. Reyndar
eru ekki allir alveg sammála og
heldur ítalinn Franz Cerami því
fram að tölvugerðar konur geti verið
alveg jafnfagrar þeim raunverulegu.
Hann hefur því ákveðið að halda feg-
urðarsamkeppni tölvukvenna, Miss
Digital World. Á myndinni má sjá
Kayu frá Brasilíu, einn keppandann.
Tony Hawk
sýnir
listir sínar
Tony Hawk’s American Sk8land
er nú kominn út á Nintendo
DS leikjavélina. I honum eru
sjö stór svæði sem hægt er að
renna sér á og stökkva um. Eins
og í öllum Tony Hawk leikjun-
um er einnig hægt að búa til
sitt eigið borð. Snertiskjárinn
nýtist vel í leiknum þar sem
hægt er að hanna sín eigin
bretti og graffítí merki. Það er
meira að segja hægt að taka
upp hróp og köll sem leikur-
inn spilar þegar maður gerir
eitthvað flott, eða þá klúðrar ein-
hverju hrapalega. Eins og með
svo marga leiki á DS vélinni er
hægt að spila við marga í einu
mifli véla en einnig er von á
að Ieikurinn tengist þráðlausu
neti Nintendo á næstunni.