blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 10
10 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaAÍ6
Loftferðasamningur:
íslensk flugfélög boöin
velkomin til Beirút
Island og Líbanon hafa skrifað
undir loftferðasamning á milli land-
anna tveggja. Samningurinn felur í
sér viðtæk gagnkvæm réttindi, ým-
ist í beinu flugi eða flugi sem teng-
ist öðrum löndum. I tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu segir að
samningurinn sé íslenskum flugfé-
lögum hagstæður enda hafi bæði
líbönsk flugmálayfirvöld og flugfé-
lagið Middle Eastern Airlines mik-
inn áhuga á að „íslensku flugfélögin
auki flug sitt til og um Beirút“. Flu-
málastjóri Líbanon sem einnig er
yfirmaður flugstöðvarinnar í Beirút
hefur heitið íslenskum félögum allri
þeirri fyrirgreiðslu sem unnt sé
að láta þeim í té. Samningaviðræð-
urnar fóru fram í Beirút.
SIGURVEGARI
DAGSIWS
L'ORÉAL
men'é^pert
ÞVÍ ÞÚ ÁTT ÞAÐ LÍKA SKILIÐ
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Gjafakörfur matgæðingsins
by SEKONDA
Útsölustadir:
Jens Kringlunni ■ Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 • Helgi Sigurðsson úrsmiður
Skólavörðustíg 3 • Georg Hannah úrsmiöur Keflavík • Guðmundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi • Úra- og skartgripaverslun Karls R. GuómuncJssonar Selfossi
Avion Group:
Á íeið í
Kauphöllina
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Stefnt er að því að skrá Avion Group
í Kauphöll íslands á næstu vikum. Fé-
lagið verður á meðal þeirra stærstu i
kauphöllinni að markaðsvirði og
veltir Avion um tveimur milljörðum
Bandaríkjadala á yfirstandandi fjár-
hagsári. Fagfjárfestum býðst nú að
taka þátt í hlutafjárútboði félagsins
en í boði eru nýjir hlutir að verð-
mæti 6 milljarða króna. Lágmarks-
kaupverð er 5 milljónir króna og
skal tilboðum skilað fyrir lok dags
þann 22. desember nk. og verður til-
kynnt um endanlegt gengi þann 23.
I dag eru hluthafar i Avion um 20
talsins, en þegar Avion Group keypti
Eimskip fyrr á árinu var ákveðið að
Straumur Burðarás, að fengnu sam-
þykki hluthafafundar, myndi greiða
hluthöfum sínum út arð í formi
hlutabréfa í Avion Group. Þar af leið-
andi verða hluthafar í Avion orðnir
rúmlega 22 þúsund innan nokkura
mánaða.
Framsækið flutningafyrirtæki
Avion Group er ungt félag sem
byggir á gömlum grunni en á meðal
meginstoða félagsins eru Eimskip
og Air Atlanta. Starfsmenn eru um
4500 vítt og breytt um heiminn. Nú
nýverið var sagt frá því að Avion
Group væri annað framsæknasta
fyrirtæki Evrópu.
Netið:
Mikill munur
á fréttalestri
vefmiðla
Það dylst engum að tveir stærstu
netmiðlar landsins, mbl.is og visir.
is eru mest sóttu netsíðurnar hér á
landi. Undanfarið hefur verið í gangi
umræða þess efnis að miðlarnir hafi
verið að kaupa önnur vefsvæði í því
augnamiði að þeir mælist hærra
í vefmælingum. Til dæmis keypti
mbl.is nýlega hinn vinsæla vef
Barnaland og visir.is bloggsvæðið
blog.central.is. Bent hefur verið á
að með því að hafa þessa vinsælu
vefi innan sinna vébanda geti þeir
sýnt fram á meiri netumferð, og
þar af leiðandi selt fleiri auglýsingar.
Modernus er fyrirtæki sem heldur
úti samræmdum vefmælingum hér
á landi og eru mbl.is og visir.is ávallt
á meðal vinsælustu vefja landsins. í
síðustu viku var mbl.is mest sótti
vefurinn með rúmlega 1,5 milljón
innlit í vikunni. Þar á eífir fylgir
visir.is með 1,2 miljónir innhta. Hins
vegar eru notendur næstum jafn
margir, mbl.is með 208.601 notanda,
en visir.is með 208.382 notendur.
Mun fleiri lesa fréttir á mbl.is
Ef þessar tölur eru skoðaðar nánar
kemur hins vegar í ljós að töluverður
munur er hvað fólk er að skoða á
vefjunum tveimur og hefur mbl.is
klárlega vinninginn þegar kemur
að fréttalestri. Um 1,2 milljónir
innhta voru á forsíðu mbl.is og
463.878 innht á fréttavefinn að öðru
leyti. 345.585 innlit voru á fréttir og
þjónustu hjá visi.is. Það er hins vegar
blog.central.is hluti vísis sem er lang
vinsælastur, en 765.605 innht voru
á þann hluta visis þá vikuna. Það
er því ljóst að mbl.is hefiir klárlega
vinninginn þegar kemur að því
hvor fréttaveitan er meira lesin.
fi_ u~rmnGai=t
Hradsendingar um allan heim
Sendum jólapakkana tímanlega með
Gjótuhraun 4 • 220 Hafnarfjörður • 535 8170 • www.hradi.is