blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 44

blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 44
44 I FYRIR KONUR LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaðiö Hvernig kemur þú undan vetri vorið 2006? Ekki fitna í vetur Á veturna getur verið auðvelt að drabbast niður í doða. Þú verður þreytt og slöpp, þig skortir orku ogþað verður einhvernveginn svo freistandi að setjast með ákaflega hitaein- ingaríkan mat fyrir framan sjónvarpið og dæla svo í sig orku, án þess að hreyfa svo mikið sem einn rassvöðva. Höfuðið bitið af sköminni Ef þú finnur þig í þessari lýsingu þá eru miklar líkur á því að sú sem skríður undan vetri næsta vor, verði stærri útgáfa af sjálfri þér heldur en þessi sem situr nú og les Blaðið. Oj, salat! Samt er þetta svolítið merkilegt. Það er eins og við höfum einhverja miklu sterkari þörf fyrir þungan og fyrir- ferðamikinn mat á veturna: Gúllas, kjötbollur, kótilettur, kartöfluflögur, kartöflumús... mmmm.... Salat? Salat Sgmallat! Skammdegisþunglyndið herjar á ísskápinn Kannski að skammdegis „þung- lyndið", eða Seasonal Affective Di- sorder (SAD) eins og það er kallað á ensku, eigi stærri þátt í þessum árstíðabundnu breytingum á mata- ræðinu. Skammdegisþunglyndi er sérstök tegund af þunglyndi sem herjar á okkur norðurhjarabúa. Or- sök þess er talin vera skortur á sólar- ljósi og árlega eru nokkur hundruð þúsund manna og kvenna þjökuð af þessu óyndi. Einkennin eru þung- lyndi, þreyta, breytingar á svefni og matarvenjum, meiri matarlyst og já, þyngdaraukning. Skortur á serótónín leiðir til löng- unar í sætindi Nýverið hafa fundist góðar sannanir á því að serótónín aukning verði hjá einstaklingum sem aðhafast í sólar, eða björtu ljósi. Serótónín er boðefni sem kemur skilaboðum um slökun og vellíðan til heilans. Það er orðið vísindunum kunnugt að skortur á þessu boðefni leiði til þunglyndis og aukinnar matarlystar, sem og auk- innar löngunar í sætan og kolvetna- ríkan mat. RÚNAR JÚL • BJÖRN ÞORLÁKS Össur Skarp- héðinsson þingmaður mælir með þessari bók. Alveg mögnuð, segir hann. „Svo spennandi bók að ég tók hana með mér I baðiðr segir Óskar Pétursson. söngvari. LTFS LOGTNN BJÖRN PORLAKSSON Rokkkóngurinn gerir upp hlutina í stórskemmtilegri ævisögu eftir Ásgeir Tómasson, fréttamann. rrSKYLDULESNING"r segir Hemmi Gunn. Án nokkurs vafa lang- skemmtilegasta ævisagan þessi jólin !!! rrMögnuð bók um sálarháska og mjög vel skrifuð", segir Össur Skarphéðins- son þingmaður. Alvöru bækur eftir alvöru menn Borðaðu þig upp Meðhöndlun skammdegisþung- lyndis er m.a. ljósameðferð. Frá næringarlegu sjónarmiði má einnig ná bata með ríflegri líkamsrækt (sér- staklega utandyra og í dagsbirtu), forðast mat sem hefur hátt innihald sykurs og fitu og að borða í staðinn flókinn kolvetni eins og heilhveiti, hafra, brún hrísgrjón, trefjaríkt grænmeti og bakaðar kartöflur. Bananabrauð kemur þér í stuð Ein aðferð til þess að byggja upp se- rótónin magn í heilanum er að taka amínósýruna trypthophan, en úr henni myndast serótónin í líkam- anum. Það er mikið af henni í pró- teinríkum mat eins og t.d. fiski, kjöti, mjólkurvörum, eggjum, hnetum og hveitikími. Matur sem inniheldur serótónínið sjálft eru bananar, val- hnetur og ananas. Kjötlaus kjötsúpa Sú staðreynd að líkaminn sækir í þyngri mat á veturna er ekki endi- lega slæm. Það er líka hægt að borða þungan mat, án þess að þyngjast. Mikið af þessum mat er auðugur af kolvetnum eins og t.d. hafragrautur, pottréttir úr baunum og linsum, bakaðar kartöflur og „kjötsúpá' án kjöts. Það er líka hægt að hafa vetr- armatinn heilsusamlegri með því að kaupa magurt kjöt, eða nota kjúkling og kalkún í stað lamba og nautakjöts. Epli með kanil Ofnbakaðir ávextir eru góðir sem eftirréttir, til dæmis epli með kanil. Svo má líka nota gerfisætu af og til, svo lengi sem það er ekki daglega eða í óhófi. Mundu að hafa skammtastærð- irnar ekki of stórar til þess að gæta þess að blóðsykurinn fari ekki fram úr hófi og mundu líka að morgun- kornið, ristaða brauðið og allt hitt sem er gert úr hveiti og kornmat er auðugt af kolvetnum. Litlar breytingar Gerðu þessar litlu breytingar á mata- ræðinu og þú munt ekki koma slöpp og sljó undan vetri heldur hress og spræk. Og hressar og sprækar viljum við jú vera. margret@vbl.is Helgartilboð barnanna 690 kr QuizuosSub HMMH...GL00AOUR Samloka gos og smákökukrukka sem yetur irt sér hljóð dýranna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.