blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 14

blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 14
14 I INWLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaöiö Matvörumarkaður: Allir vilja lækka matvælaveró Fjölmargir hafa brugðist viðfréttum afháu matvœlaverði hér á landi. Neytendasamtökin segja að verðið verði að lækka og Samtök verslunar ogþjónustu taka í svipaðan streng en með öðrum áherslum. Akureyri: Klakastyttur í dag munu tveir meistara- kokkar brýna axirnar og reyna að vekja á sér nokkra athygliáAkur- eyri. Ekki eru þeir þó með neitt glæpsam- legt eða hættu- legt í huga, því þeir mun frá klukkan 15 höggva og skera út klaka- styttur af ýmsum gerðum. Það eru þeir félagar Kjartan Marinó og Hall- grímur Friðrik sem munu sýna listir sínar í þessari óvenjulegu og köldu listsköpun. Þeir eru báðir innfæddir Akureyringar sem lærðu matreiðslu á sínum tíma á Fiðlaranum. Eins og áður segir munu herlegheitin hefjast á slaginu klukkan 15 á Ráð- hústorgi en gert er ráð fyrir að þeir muni eyða um tveimur tímum við verknaðinn. Hvort Akureyrarkirkja mun verða viðfangsefni þeirra að þessu sinni er óvíst, en ljóst er að skemmtilegt verður að fylgjast með þeim félögum við vinnu sína. Nytendasamtökin segja það enn einu sinni staðfestast í norrænu skýrslunni um matvælaverð sem greint var frá í vikunni að hér á landi sé matvælaverð með því hæsta í heiminum. Samkvæmt skýrsl- unni er matvælaverð hér á landi 42% hærra hér á landi en í ríkjum Evrópusambandsins. I tilkynningu frá Neytendasamtökunum segir að niðurstaða skýrslunnar sé óásættan- leg, og krefst stjórn samtakanna þess að stjórnvöld grípi til aðgerða til að verð og framboð á matvælum hér landi verði sambærilegt við það sem gerist í löndunum í kringum okkur. Samtökin benda á leiðir til lausnar en að þeirra mati þarf að fella niður tolla á innfluttum land- búnaðarvörum og leggja niður inn- flutnings kvóta. Þá þarf að lækka vörugjöld og tolla á matvörur veru- lega eða fella alfarið niður. Hið sama á við um virðisaukaskatt á matvæli. Ennfremur brýna sam- tökin samkeppnisyfirvöld til þess að rannsaka frekar viðskiptahætti á smásölumarkaði og grípa til nauð- synlegra aðgerða til að tryggja virka samkeppni og koma í veg fyrir ólög- mætar samkeppnishindranir. Fákeppni ekki ástæða hás verðs Samtök verslunar og þjónustu vilja ekki kenna fákeppni á matvöru- markaði um hið háa verðlag hér á landi. 1 tilkynningu frá SVÞ segir að samtökin hafni því að „fákeppni á matvörumarkaði sé ástæða fyrir hærra verði matvæla hér en í öðrum löndum. Ekki verður séð af niður- stöðum skýrslunnar að herða þurfi eftirlit með samþjöppun á matvöru- markaði, eins og Samkeppniseft- irlitið boðar, þvi aðstæður á þeim markaði eru ekki frábrugðnar því sem gerist í samanburðarlöndunum og raunar er samþjöppunin minni hér en víða í Skandinavíu.“ SVÞ segja skýrsluna staðfesta það að meginástæðu hás verðs megi rekja til innflutningshamla á búvörur og verndarstefnu í íslenskum landbún- aði. Skýrslan staðfesti því málflutn- ing SVÞ á undanförnum árum þar sem krafist hefur verið breytinga á þessu kerfi og að stjórnvöld dragi úr verndartollum.innflutningskvótum og framleiðslustyrkjum, en þeir hinir síðasttöldu eru að sögn SVÞ þeir hæstu í veröldinni. f tilkynning- unni segir að þjóðin sé farin að kalla á kerfisbreytingu og vonandi sinni löggjafinn, Alþingi, því kalli. Löggœsla: Fíkniefni og þýfi gert upptækt Talsvert magn fíkniefna og meints þýfis var gert upptækt þegar lög- reglan í Hafnarfirði gerði húsleit í húsi í bænum. Við leitina fundust rúmlega 100 gr. af amfetamíni, yfir 100 gr. af hassi og rúmlega 200 LSD skammtar. Þá fundust þar skotvopn, sprengiefni, hnífar og talsvert magn af rafmagnsvörum hverskonar, sjón- varps- og myndbandstæki, dvd spil- arar, fartölvur, myndavélar og fleiri munir sem taldir eru vera þýfi. Þrír menn voru handteknir vegna máls- ins en tveimur var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Geir Haarde: Landbúnaðar- tollar lækki verulega Geir Haarde situr nú ráðherrafund Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) í Hong Kong. Hann hélt ræðu í gær þar sem meðal annars kom fram að meirihluti innfluttra landbúnaðarafurða kæmi til Islands án nokkurra viðskiptahindrana. Þar á meðal væru flestar mikilvæg- ustu útflutningsvörur vanþróuð- ustu ríkja heimsins. Hann benti á að Islendingar heíðu afnumið útflutningsbætur í upphafi tíunda áratugarins, og nú væru menn reiðubúnir til þess að lækka tolla og framleiðslutengdan innanlands- stuðning verulega. Það væri ljóst að aðlaga þyrfti rekstrarumhverfi íslensks landbúnaðar að slíkum nýjum skuldbindingum en allar breytingar verði að gera með var- kárni og með tilliti til þátta sem ekki væru viðskiptalegs eðlis. Leiðrétting og afsökunarbeiðni I pistli mínum í Blaðinu föstudag- inn 16. desember var því haldið fram að Ólafur Jóhannesson hafi verið með skaðbrunnar tennur. Þetta er alrangt og stafar af vanþekkingu minni af svarthvítu sjónvarpi 8. áratugarins. Hann var með gull í tönnum í neðri góm og það virtist í sjónvarpi vera skemmdir, en svo var alls ekki. Ég bið alla lesendur vel- virðingar á þessum mistökum. Ágúst Borgþór Sverrisson jólmtemn ing í jólaundirbúningnum fer fjölskyldan gjaman saman á kaffi- eða veitingahús. Öllum líður betur í reyklausu umhverfi. LYÐHE I LSUSTOÐ - Ilfið hell Ak-inn Akureyri American Style Hafnarfj., Kópavogur, Reykjavik Á næstu grösum Reykjavfk Ábær-veitingar Sauðárkrókur Bautinn Akureyri Bláa kannan Akureyri Blómaskálinn Vín Eyjafjörður Gallerý fiskur Reykjavik Greifinn Akureyri Café Konditori Copenhagen Reykjavík Carpe Diem Reykjavík Draugasetríð stokkseyri Espressóbarinn Seltjamames Faktorshúsið Isafjörður Flugterían Reykjavikurflugvöllur G. J. smurbrauðst og netkaffi Hvammstangi Galbi restaurantReykjavik Gullofninn Kópavogur Grænn kostur Reykjavík Hafið Bláa Þortákshöfn Heitt og kalt Reykjavik Hlíðarendi Hvolsvöllur Hótel Hamar Borgarnes Hótel Holt Reykjavík Hótel Reynihlfð Mývatnssveit Hótel Saga Reykjavik Hótel Valaskjálf Egilsstaðir Kaffi Nilsen Egllsstaðir Kaffi Róma Reykjavík Kaffihúsið Gamli bærínn Mývatnssvelt Kaffihúsið Garðurinn Reykjavlk Kaffihús IÐU Reykjavik Kaffi Hljómalind Reykjavik Kaffi Nauthóll Reykjavík Kaffi Tröð Akureyri Kaffitár Reykjavfk, Keflavíkurflugvöllur, Reykjanesbær Þetta er listi sem Lýðhellsustöð hefur yfir reyklaus veitingahús, athugið aö listlnn er ekkl tæmandi. Á stærri veitingastöðum eru reykingar stundum leyfðar á bar. Kentucky Fried Chicken Reykjavfk, Hafnarfj., Mosfellsbær Kjartanshús - Essó Flateyri Lagarfljótsormurinn Egilsstaðir Leirunesti Akureyri Lindin restorante Akureyri Matur og menning Þjóðmenningarhúsinu, Reykjavík McDonald'S Reykjavik Miðgarðar Grenivik Múlakaffi Reykjavik Nings Reykjavík, Kópavogur Nonnabiti Reykjavik Norræna húsið, kaffistofa Reykjavik Núðluhúsið Reykjavik Olsen Olsen og ég Keflavik Peng's Akureyri Pizza 67 Keflavfk Salatbarinn Reykjavfk Salatbarfnn hjá Eika Reykjavfk Segafredos Reykjavfk Shellstöðin Borgames SKG - Hótel Isafirði fsafjörður Skógakaff i Byggðasafnið á Skógum Siggi Hall á Óðinsvéum Reykjavfk Sporthúsið, Sportbar Kópavogur Stjörnutorg Kringlunni, Reykjavlk Subway Reykjavfk, Keflavfk, Akureyri, Hafnarfj. Súfistinn, bókakaffi Reykjavik Söluskálinn Hvammstangi Te og kaffi Reykjavik, Kópavogi Tveir fiskar Reykjavik Veitingastaðurinn Baulan Borgarfjörður Veitingastaðurinn Jöklasel Vatnajökull Veitingastaðurinn, Kjarvalsstöðum Reykjavík Veitingastofan, Þjóðarbókhlöðunni Reykjavlk Ömmukaffi Reykjavik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.