blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 16
16 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaöiö
Sprenging við kjarnorkuver
Einn lést og tveir aðrir særðust
alvarlega þegar sprenging varð í
málmbræðsluofni kjarnorkuvers
fyrir utan Pétursborg í Rússlandi.
Að sögn rússnesku kjarnorkustofn-
unarinnar hefur ekki orðið vart
við aukna geislun á svæðinu eftir
sprenginguna. Sprengingin varð á
fimmtudag í Leningrad-kjarnorku-
verinu í litlum bæ fyrir utan borgina.
Ofninn er rekinn af fyrirtækinu Eko-
met-S sem sér um að endurvinna
brotajárn. Sprengingin hefur beint
athyglinni að slælegu eftirliti með
Leningrad-kjarnorkuverið í nágrenni
Pétursborgar.
starfsemi slíkra fyrirtækja á við-
kvæmum svæðum sem umhverfis-
sinnar hafa meðal annars bent á.
Alls eru fjórir kjarnakljúfar á svæð-
inu og var málmbræðsluofninn í um
8oo metra fjarlægð frá einum þeirra
að sögn kjarnorkustofnunar Rúss-
lands. Oleg Bodrov, sem er i forsvari
fyrir umhverfissamtök í Sosnovy
Bor, segir aftur á móti að ofninn hafi
verið nær kjarnakljúfnum. Kjarn-
orkustofnunin segir að ekki hafi
neinar reglur um öryggi eða starfsað-
stæður verið brotnar í kjarnorkuver-
inu. Kjarnakljúfurinn sem stendur
næst málmbræðsluofninum hafði
ekki verið starfræktur síðan í júlí. ■
Verkfall yfirvofandi í New York:
Almenningssamgöngur
gætu lamast
Samtök starfsmanna almennings-
samgöngukerfis New York borgar
lýstu yfir takmörkuðu verkfalli í
gær eftir að kjaraviðræður höfðu
runnið út í sandinn. Allsherjarverk-
falli verður hugsanlega lýst yfir í
næstu viku hafi samningaviðræður
ekki skilað árangri þá. Slíkt verkfall
myndi lama stærsta almennings-
samgöngukerfi borgarinnar sem
nærri 7 milljónir manna nota á degi
hverjum. Upphaflega höfðu sam-
tökin hótað að allsherjarverkfall
hæfist í gærmorgun en af því varð
ekki.
íbúar New York sem reiða sig á
almenningssamgöngur voru fegnir
að lestir og strætisvagnar gengu enn
í gærmorgun en gerðu sér jafnframt
grein fyrir að ekki væri öll hætta
liðin hjá.
Degi áður en verkfallið átti að hefj-
ast sagði Michael Bloomberg, borgar-
stjóri, að neyðarástandi yrði lýst
yfir í borginni ef af því yrði. Hann
kynnti viðtæka viðbragðsáætlun
þar sem meðal annars er kveðið á
um að ferðum farþegabáta verði
fjölgað, leigubílstjórum heimilað að
hafa fleiri farþega og að bílum verði
ekki leyft að koma til Manhattan
á háannatíma á morgnana nema
í þeim séu að minnsta kosti fjórir
farþegar.
Starfsmenn krefjast meðal annars
launahækkunar á næstu þremur
árum og frekari þjálfunar vegna
hættuafhryðjuverkum. ■
Fokið íflest skjól:
Reykingabann í
Kaupmannahöfn
Eftir janúar 2007 mega borgar-
starfsmenn í Kaupmannahöfn ekki
lengur reykja innandyra. Þar sem
börn dveljast gildir bannið jafnt
innandyra sem utan. Þetta var
ákveðið á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag. 45 borgarfulltrúar voru
hlynntir banninu, 5 á móti og 2 sátu
hjá. Tillögu um að hafa möguleika
á að setja upp sérstök reykherbergi
á vinnustöðum var vísað frá. Borgar-
fulltrúar telja að þeir sem vinni með
börnum svo sem starfsfólk leikskóla
hafi sérstökum skyldum að gegna
sem fyrirmyndir og því mega þeir
ekki reykja í viðurvist barnanna Borgarstarfsmönnum verðurekkilengur
hvort sem er innandyra eða utan. ■ a® reykja innandyra í framtiðinni.
Jarðskjálftinn í Suðaustur Asíu
Bush eldri aóstoóar
við uppbyggingu
George H.W. Bush, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, hefur verið
útnefndur sérstakur erindreki Sam-
einuðu þjóðanna og mun aðstoða
við uppbyggingu á skjálftasvæð-
unum í suðaustur Asíu. Kofi Annan,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna, fór
þess á leit við Bush að hann leggði
starfinu lið. Bush segist hafa fall-
ist á að taka að sér starfið þar sem
hann og Barbara, eiginkona hans,
hefðu verið harmi slegin út af harm-
leiknum í Pakistan. Bush og Bill
Clinton eftirmaður hans sem forseti
Bandaríkjanna, lögðu báðir hönd á
plóg við fjáröflun fyrir fórnarlömb
risaflóðbylgjunnar í Asíu fyrir tæpu
ári. Starf Bush gengur meðal annars
út á að sjá til þess að fjárframlög
verði nýtt á þann hátt sem kemur
fórnarlömbum skjálftans til góða.
Her Pakistans hefur í samstarfi
við erlend ríki og alþjóðlegar hjálpar-
stofnanir, staðið fyrir einhverjum
stærstu neyðaraðgerðum sögunnar
í norðurhluta landsins siðan skjálft-
inn reið yfir 8. október. Um 87.000
manns fórust í skjálftanum og 3,5
milljónir misstu heimili sín. ■
ALLTAF í
VW Golf Highline 4x4 2,0 VW Passat Basidine 1,6 VW Transporter Dcab 1,9 TDi VW Golf Trendline 1,6
beinsk. árg. 02 ek. 48.000 beinsk. árg. 01 ek. 83.000 beinsk. árg. 04 ek. 32.000 beinsk. árg. 04 ek. 56.000
verð áður 1.570.000 kr. verð 1.250.000 kr. verð áður 1.170.000 kr. verð 1.050.000 kr. verð áður 1.940.000 kr. verð 1.790.000 kr. verð áður 1.650.000 kr. verð 1.480.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 19.787 kr. i60mán. Afborgun pr. mán.: 20.166 kf. í 48 mán. Afborgun pr. mán.: 24.1 85 kr.í72mán. Afborgun pr. mán.: 19.942 kf. í 72 mán.
Klettháls
Klettháls
Klettháls
Klettháls
VW Polo 1,2 Basidine
beinsk. árg. 02 ek. 58.000
verð áður 870.000 kr. vetð 780.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 1 2.379 kf. i 60 mán.
VW Passat 2,0 AT VW Golf Comfortline stw VW Bora Highline 1,6
sjálfsk. árg. 02 ek. 49.000 beinsk. árg. 00 ek. 85.000 beinsk. árg. 02 ek. 74.000
verð áður 1.910.000 kr. verð 1.790.000 kr. verð áður 790.000 kr. verö 690.000 kr. vetð áður 1.290.000 kr. verð 1.160.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 28.299 kf. i 60 mán. Afborgun pr. mán.: 17.1 76 kí. i 36 mán. Afborgun pr. mán.: 18.369 kf. í 60 mán.
Bílaþing Heklu er rétti staðurinn til að finna góðan notaðan Volkswagen
Laugavegi 174 | Sími 590 5000 | Kletthálsi 11 sími 590 5760 www.bilathing.is
\ LIJ www.biiathing.is Opið mánudaga til föstudaga 10-18 TEKLA bilathing@hekla.is • Laugardaga 12-16 BÍLAÞING HEKLU Niuncr citt í notuðum bíhun
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 • HEKLA, Borgamesl, slmi 437 2100 • HEKLA, Isafirði, slmi 456 4666
HEKLA, Reyöarflröi, slmi 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbœ, slml 420 5000 • HEKLA, Selfossi, slml 482 1416
HEKLA, Kletthálsi 11, síml 590 5760
www.hekla.is, heklaOhekla.ls