blaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 36
36 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 blaðiö
Baráttumaður gegn
glœpum og ofbeldi tekinn af lífi
Stanley „Tookie" Williams var tekinn af lífi meö banvænni sprautu í Kaliforníu 1 vikunni. Williams sem
var stofnandi hins alræmda glæpagengis „Crips" var fundinn sekur um fjögur morö áriö 1981. Williams
kvaöst alla tíö vera saklaus af moröákærunum.
Þúsundir stuðningsmanna Williams komu saman við San Quentin fangelsið og viðar í Kaliforníuríki fyrir aftöku hans.
Schwarzenegger undir þrýstingi
Marjorie Cohn, prófessor við laga-
deild Thomas Jefferson háskólans,
sagði áður en Schwarzenegger tók
ákvörðun sína að honum yrði for-
mælt hvort sem hann náðaði Willi-
ams eða ekki. Annars vegar væri
hann undir þrýstingi frá hægri
sinnuðum Repúblikönum um að
hafna náðunarbeiðninni en hins
vegar þyrfti hann að sýna fram á að
hann sé jafnhófsamur og hann hefur
látið í veðri vaka. Fyrr á árinu lýsti
Scwharzenegger til að mynda yfir
þeim vilja sínum að breyta fangelsis-
málastefnu í Kaliforníu á þann hátt
að fangelsisdvölin miði frekar að því
að bæta menn en að refsa þeim. Með
því að hafna náðunarbeiðni Williams
þykir hann aftur á móti hafa gert hið
gagnstæða.
Ákvörðun Schwarzeneggers var
harkalega gagnrýnd víða um heim,
ekki síst í Evrópu. Stjórnmálamenn
í Austurríki, heimalandi Schwarze-
neggers, fóru jafnvel fram á að nafn
hans yrði afmáð af íþróttaleikvangi í
heimabæ hans. „Schwarzenegger er
vöðvastæltur en hefur að því er virð-
ist ekki gott hjartalag," sagði Julien
Drey, talsmaður Sósíalistaflokksins í
Frakklandi þar sem dauðarefsing var
afnumin árið 1981.
Gagnrýnendur dauðarefsingar
telja að aftaka Williams hafi eflt and-
stöðu almennings við dauðarefsingar
og að aftakan umdeilda kunni því
jafnvel að koma þeim að gagni í bar-
áttunni og hugsanlega leiða til þess að
fleiri aftökum í ríkinu verði frestað.
Þó að meirihluti íbúa Kaliforníu
séu fylgjandi dauðarefsingum hefur
þeim fækkað á undanförnum árum
samkvæmt nýlegum könnunum.
Fylgjendur dauðarefsingar telja aftur
á móti að mál Williams muni ekki
hafa sérstök áhrif á álit almennings
eða stjórnmálamanna.
Snérist til betri vegar
Wilhams var í augum margra
stuðningsmanna sinna gott dæmi
um mann sem hefði snúist til betri
vegar í fangelsi og gerst öflugur gagn-
rýnandi þess lífsstíls sem fylgir glæpa-
gengjum. I augum þeirra sem voru
fylgjandi aftökunni var Williams
aftur á móti miskunnarlaus og harð-
svíraður morðingi sem bar ábyrgð á
stofnun alræmds glæpagengis. Crips
gengið er jafnvel talið bera ábyrgð á
fjölda morða og annarra glæpa í Los
Angeles og víðar í Bandaríkjunum.
„Fólk sem var á móti Stan vildi bein-
línis kenna honum um allt sem Crips
gerðu,“ segir Barbara Becnel, sam-
starfskona Williams og einn helsti
stuðningsmaður. Hún bendir á að
þegar Williams hafi verið handtek-
inn árið 1979 hafi gengið verið mun
minna en síðar varð og umsvif þess
takmarkast við Los Angeles. „Þeir
handtaka hann og hann fær ekki
framar um frjálst höfuð strokið og
eftir það dreifist gengið út um allt
ríkið, alla þjóðina og heiminn,“ segir
hún.
Stuðningsmenn Williams hétu
því eftir aftökuna að halda áfram
starfi hans við að hvetja ungmenni
til að halda sig utan við glæpagengi
og lofuðu því að gefa út eina bók til
viðbótar með skrifum sem hann lét
eftir sig. „Ef þeir héldu að þeim hefði
tekist að fá fólk til að gleyma honum
með því að drepa hann þá er því
þveröfugt farið,“ sagði Becnel. „Við
munum ekki gleyma. Ég er kona með
köllun. Ég ætla að sanna að Stan var
saklaus og Arnold Schwarzenegger
kaldrifjaður morðingi," sagði Becnel.
Stuðlaði að sættum glæpagengja
Marjorie Cohn, lagaprófessor, segir
að ef einhver dauðadæmdur maður
hafi átt náðun skilda sé það Willi-
ams. Árið 1993 hvatti Williams félaga
í Crips og Bloods gengjunum til að
láta af erjum sín á milli. „Með því
að vinnna saman getum við bundið
enda á þann vítahring sem veldur
djúpstæðum sársauka í hjörtum
mæðra okkar, feðra og fólksins
okkar sem hefur misst ástvini sína
í þessu glórulausa ofbeldi," sagði
Williams í myndbandi sem sýnt var
á friðarfundi gengjanna tveggja. „Ef
Schwarzenegger neitar beiðni Willi-
ams hvaða skilaboð sendum við þá
börnum okkar?,“ spurði Cohn í grein
sem hún birti skömmu áður en ríkis-
stjórinn tók ákvörðun sína.
Öskunni dreift í Suður Afríku
Minningarathöfn um Williams hefur
verið skipulögð í Los Angeles en ösku
hans verður síðan dreift í Suður
Afríku. Williams átti öfluga stuðn-
ingsmenn í hópi fræga fólksins í
Bandaríkjunum og er meðal annars
búist við að fjöldi þekktra leikara og
CAUF PRISON
!____cnun____
Stanley Williams varð ötull baráttumað-
ur gegn ofbeldi og glæpum og meðal
annars orðaður við friðarverðlaun Nóbels
nokkrum sinnum.
Æltaf Ijúffengt
FRÉTTA-
SKÝRING
EINARÖRN JÓNSSON
tónlistarmanna verði viðstaddir at-
höfnina, svo sem Sean Penn, Jamie
Foxx og Danny Glover. Þá mun
mannréttindafrömuðurinn Jesse
Jackson og rapparinn Snoop Dogg
flytja ræður við athöfnina en sá síðar-
nefndi var líkt og Williams félagi í
Crips á sínum yngri árum.
Snoop Dogg talaði við Williams í
síma um tveimur klukkustundum
áður en hann var tekinn af lífi og
ræddu þeir meðal annars um bók
sem þeir höfðu haft í hyggju að skrifa
saman. „Stanley hafði sér til ágætis
að á hann var hlustað þegar hann
talaði um ofbeldi glæpagengja. Við
munum minnast Tookie fyrir það
sem hann stóð fyrir og vonumst til að
saga hans hafi á endanum þau áhrif
á aðra að þeir breyti einnig háttum
sínum,“ sagði Snoop Dogg.
hann beið aftöku.
Williams var dæmdur til dauða
vegna fjögurra morða sem hann á að
hafa framið árið 1979. Hann hélt alla
tíð fram sakleysi sínu og fór fram á
náðun sem Arnold Schwarzenegger,
ríkisstjóri, hafnaði. Ennfremur
hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna
beiðni um að aftökunni yrði frestað.
Schwarzenegger sagði að ástæða
þess að hann hefði ekki breytt dauð-
dómi Williams í lífstíðardóm væri
sú að Williams hefði ekki beðist
afsökunar á glæpum sínum eða sýnt
iðrun. Ríkisstjórinn dró einnig í efa
hvort barátta Williams hefði skilað
árangri eða hvort hún hefði aðeins
verið yfxrvarp.
Þúsundir stuðningsmanna hans
söfnuðust saman fyrir utan San
Quentin fangelsið skömmu fyrir af-
tökuna. Sumir héldu á kertum en
aðrir á spjöldum sem meðal annars
var ritað á „Bjargið Tookie“ og „Ástin
er svarið“.Meðan Williams var í fang-
elsi snéri hann baki við ofbeldisfullri
fortíð sinni og skrifaði frægar bækur
þar sem hann reyndi að fá ungt fólk af
því að ganga til liðs við glæpagengi.
Barátta hans gegn ofbeldi vakti
milda athygli í Bandaríkjunum og
víðar í heiminum og var Williams
jafnvel orðaður við friðarverðlaun
Nóbels nokkrum sinnum. Fjölmargar
kvikmyndastjörnur og baráttumenn
fyrir mannréttindum lýstu yfir stuðn-
ingi sínum við Williams á meðan
Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kali-
fornlu, hafnaði náðunarbeiðni Tookies,
meðal annars á þeim forsendum að hann
hefði ekki sýnt iðrun vegna þeirra glæpa
sem hann var dæmdur fyrir.
Álfheimar 6 S.5536280
Álfheimar 6 S.5536280
^4lltaffetekt