blaðið - 17.12.2005, Page 32
32 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 17 DESEMBER 2005 blaöið
Hver rekur matvöruverslun með tapi?
Matur samt dýrastur á Islandi
í síðustu viku var kynnt skýrsla
sem samkeppnisyfirvöld á
Norðurlöndum létu vinna um
matvörumarkaði landanna. Þar
kom í ljós að verðlag á matvöru
á íslandi var það hæsta í Evrópu
árið 2003 og skerum við okkur
nokkuð úr í þessum samanburði
ásamt fóstbræðrum okkar Norð-
mönnum. Hagsmunaaðilar á
matvörumarkaði hafa á síðustu
dögum keppst við að kenna hvor-
um öðrum um hvernig staðan
sé. Forstjóri Kaupáss sagði til
dæmis að innlendir byrgjar væru
ofurseldir Högum, sem rekur
meðal annars Bónus, Hagkaup og
10-11, auk þess sem að verslanir
félagsins seldu ítekað vörur undir
kostnaðarverði með skipulögðum
hætti. Finnur Árnason, forstjóri
Haga, sagði þetta fásinnu og taldi
fráleitt að markaðshlutdeild
Haga væri ástæða hás vöruverðs.
Þar væru sökudólgarnir mun
fremur hátt verð á búvörum og
ofurskattlagning matvara. Stjórn-
völd gætu lækkað matvælaverð
ef þau vildu. En hverjum er hið
háa matvöruverð raunverulega að
kenna? Er það bara vegna skatta
og verndartolla, eða tengist það
líka fákeppni og einokunartil-
burðum á matvörumarkaði? Eru
einingar á íslenskum matvæla-
markaði einfaldlega orðnar of
stórar og hverjar eru forsendur
rekstrar þeirra ef þær eru í bull-
andi taprekstri ár eftir ár?
Miklu stærri eining
markaðsráðandi á (slandi
I skýrslunni kemur fram að verð á
matar- og drykkjarvörum á íslandi
hafi hækkað um 14% frá 1999 til árs-
ins 2004. Á sama tíma hækkaði það
um 9% á hinum Norðurlöndunum
þar sem sambærileg samþjöppun
hefur átt sér stað á matvörumarkað-
inum, en þar skipta 4-6 keðjur hon-
um á milli sín í hverju landi fyrir
sig. Munurinn á milli landanna felst
fyrst og fremst í því að stærsti aðilinn
á íslenska markaðinum ræður yfir
miklu stærri hluta kökunnar en tíðk-
ast annars staðar. Miklar umræður
hafa verið um það hver sú markaðs-
hlutdeild raunverulega sé. Forstjóri
Haga sagði á fimmtudag að hann
teldi rangt að verslanir Haga væru
með 55% markaðshlutdeild eins
og ýjað hefur verið að. Innabúðar-
maður á matvörumarkaðnum, sem
vill ekki láta nafn síns getið, telur að
slíkt sé ekki fjarri lagi. Hann segir
að gallinn við skýrsluna sem kom
út í vikunni, og sýndi Haga með um
Matvöruverð á (slandi er 42% hærra en í löndum Evrópusambandsins.
47% markaðshlutdeild á landinu, að
grunnupplýsingarnar, eins og um
markaðshlutdeild, séu orðnar úrelt-
ar þegar þær koma út. „Þeir bæta
svo hratt við Bónusbúðum að upplýs-
ingar Samkeppnisstofnunar eru allt
of langt á eftir. Ég væri mjög hissa ef
að Hagar væru ekki búnir að bæta
við sig 4-5% af markaðinum á þessu
ári einu saman,“ segir hann.
Ekki rekið á efnahags-
legum forsendum
Heimildarmaður Blaðsins segir að
það þurfi lítið annað en að skoða
ársreikninga Haga til að sjá að venju-
legar fjárhagslegar forsendur við-
skipta eiga ekki við þar. Hann segir
Teg 2083
Teg 2106
Tei;44 kr. 10.500 stgr.
Teg 2064
Sk cipar,
borðstofuhúsgögn,
úolai borð,
sófa&tt...
...állt fullt af húsgðgnum
Teg 307 kr. 56.900 stgr.
Teg 299/6 kr. 19.600 stgr.
Sófasett Barbara, slgllt ogglæsllegt 3+1+1
Teg 332 kr. 28.900 stgr.
Tegm kr. 9.400stgr.
TegSO kr. 15.600 stgr.
ImBBEiElEi
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKORVEGI 66 HAFMARFIRÐI SlMI 565 4100
Teg320 kr. 24.900 stgr.
að heildartap félagsins á innanlands-
markaði án hagnaðar vegna sölu apó-
teka félagsins sé um 2 milljarðar.„Það
virðist því vera þjóðsaga að Baugs-
menn geti rekið verslanir, en rétt
að þeir geta keypt og selt fyrirtæki
með hagnaði, því að félagið virðist
aldrei hafa verið rekið með hagnaði
af reglulegri starfsemi síðan félagið
var tekið af markaði." Hann segist
ennfremur vita til þess að Jóhannes
Jónsson, stjórnarmaður í Baugi og
stofnandi Bónus, hafi komið á fram-
færi því sem að hann vill túlka sem
duldar hótanir við samkeppnisaðila
til að þess að reyna að tryggja yfir-
töku á tilteknum markaði úti á landi.
„Jóhannes tjáði viðmælanda sínum
að það væru ekki forsendur fyrir
tveimur verslunum í byggðarlaginu
og að það væri heiðarlegast af Baugi,
að kaupa bæði húsnæði og rekstur
verslunarinnar sem fyrir var. Þeir
höfðu verið með búð í bænum áður
sem hafði ekki gengið og nokkuð
ljóst að þetta var ekki markaður
fyrir tvær verslanir. Þetta voru því
lítt dulbúnar hótanir til minni að-
ila að þeir ætli að nota stærð sína
og styrk til þess fara með okkur til
andskotans. Þetta er fyrirtæki sem
ég get ekki betur séð en að sé búið að
tapa 2,2 milljörðum króna á tveimur
og hálfu rekstrarári.“ Blaðið hefur
undir höndum tölvupósta sem stað-
festa þessar fullyrðingar. Þá hefur
Blaðinu einnig borist gögn sem sýna
að tilteknir birgjar eru hræddir um
að missa viðskipti sín við Bónus ef
þeir selja öðrum aðilum á markaði
vöru sem að þeir geta slðan selt á
lægra verði en hún fæst á í Bónus.
Þar kemur skýrt fram hræðsla við-
komandi sölumanns við það að Bón-
us skili allri sinni vöru ef varan fæst
ódýrari í öðrum verslunum.
„Eg veit ekkert hvað þú ert að
tala um,“ sagði Finnur Árnason,
forstjóri Haga, þegar hann var spurð-
ur út í þær ásakanir sem útlistaðar
eru hér að ofan. Þegar hann var
spurður hverjar forsendur rekstr-
arins væru þegar augljóst væri að
hann væri ekki að skila hagnaði
sagði hann að undanfarin ár hefðu
verið ákveðin tímabil sem fyrir-
tækið hefði verið að fara í gegnum
og hefðu verið erfið. „En þetta var
sterkt félag og er sterkt félag. Ég er
alveg klár á því að við erum að ná að
vinna okkur út úr því.“
Ekki greitt fyrir fyrstu áfyllingar
Forstjóri Haga fullyrti í vikunni að
allir aðilar á markaði hafi stórtapað
á því verðstríði sem átti sér stað í
haust. Það er reyndar ekki rétt því
að í uppgjöri Samkaupa fyrir fyrri
hluta ársins í ár kemur í ljós að
fyrirtækið skilaði hagnaði. Forstjór-
inn fullyrti einnig að það væri til
hagsbóta fyrir neytendur að Hagar
væru að þeirri stærðargráðu sem
BlaÖiÖ/Steinar Huqi
þeir eru því það myndi gera þeim
kleift að bjóða upp á sama matvæla-
verð alls staðar á landinu. Heimildar-
maður Blaðsins segir að slík fullyrð-
ing eigi sér enga stoð í raunveruleik-
anum. „Það geta allir boðið sama
verðið alls staðar. Málið er einfald-
lega þannig að það er ekki til hags-
bóta fyrir neytendur þegar einn að-
ili getur verið að skammta sér stöðu
á markaðinum.” Hann hefur einnig
fyrir því heimildir að fyrsta áfylling
á nýjar búðir hjá Bónus sé á kostnað
þeirra birgja sem selja versluninni
vöru til að selja áfram til neytenda.
„Þegar Bónus opnaði verslun í Stykkis-
hólmi fór ég vestur og skoðaði búð-
ina. Ég sagði síðan við sölumann
sem ég hitti þar að ég skildi ekki á
hvaða forsendum menn hefðu verið
að fylla búðina af ferskvöru, því það
var ljóst að úrvalið var ekki í neinu
samræmi við stærð markaðarins.
Þeir þurftu klárlega að henda helm-
ingnum því að ekki var nægilega
stór markaður til að kaupa allar þess-
ar vörur. Ég skildi ekkert í Bónus-
mönnum að vera að gera þetta. Þá
hló sölumaðurinn og sagði að það
væri langt síðan að Bónus hætti að
borga fyrsta reikninginn frá birgj-
um sínum. Það væri bara vitað
skilyrði að fyrsta áfyllingin, og þar
með lagerinn, yrði bara lánaður var-
anlega. Reikningurinn er örugglega
skrifaður en hann er ekki innheimt-
ur.“ Þegar þessar fullyrðingar voru
bornar undir Finn Árnason sagðist
hann ekki þekkja slíka viðskipta-
hætti og að í þeim búðum sem að
hann hefði opnað þá hafi allir reikn-
ingar verið greiddir.
Samkeppnisyfirvöld
horfa í aðra átt
Af þeim gögnum sem að Blaðið hefur
undir höndum er ekki annað að ráða
aðSamkeppnisyfirvöldhafiekkisýnt
því mikinn áhuga að skoða ráðandi
markaðsstöðu Haga og mögulegar
samkeppnishamlandi misbeitingar
fyrirtækisins. Þeim hafa verið send
mörg erindi sem benda á óeðlilega
viðskiptahætti Haga en heimildar-
maðurinn segir að engum þeirra
hafi verið svarað. Hann segist telja
að enginn vilji í raun hrófla við Hög-
um og að viðskiptahætti þeirra megi
rekja til málaferlanna um Baug, það
sé augljóslega verið að kaupa sér
velvild samfélagsins. Samkeppnis-
yfirvöld hafa þó verið dugleg að til-
kynna að þau hyggist leggja ríka
áherslu á eftirlit með samkeppnis-
háttum á matvörumarkaði. Þar á
að meðal annars að beina sjónum
að samkeppnishindrunum vegna
fákeppni á matvörumarkaði. Það er
því óskandi fyrir íslenska neytendur
að þau standi við stóru orðin.
t.juliusson@vbl. is