blaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöiö
Almenningssamgöngur:
Ábendingar um galla á
leiðakerfi strætó hundsaðar
Fyrrverandi borgarverkfrœðingur segir vankanta á nýja leiðakerfinu hafa veriðfyrirsjáan-
lega. Farþegum heldur áfram aðfœkka.
BlaSiö/Stelnar Hugi
Bilun íflugvél:
Óánægja með
Icelandair
Sigrún Kristinsdóttir var ein þeirra
farþega sem bíða þurftu á Kastrup
vegna bilunar í vél Icelandair á mánu-
dag. Þegar hún ásamt fjölskyldu sinni
komst loks til landsins hafði hún
verið á ferðalagi í 25 tíma. Hún segir
að þau hafi verið komin út í vél þegar
þeim var tilkynnt að vegna bilunar
þyrfti að draga vélina inn á þjónustu-
svæði.„Stuttu seinna var tilkynnt um
að við yrðum að fara frá borði og inn
í flughöfnina. Okkur var einnig sagt
að starfsmenn flugfélagsins myndu
útvega okkur hótelgistingu. Þegar
þangað er komið, kemur enginn frá
flugfélaginu, heldur dönsk stelpa frá
einhverju þjónustufyrirtæki þeirra
í Danmörku. Hún segir okkur ffá
t>ví að önnur flugvél sé á leiðinni frá
slandi til þess að sækja okkur.“ Sig-
rún segir að þeim hafi verið tilkynnt
um að þau myndu því fara í loftið
klukkan þrjú um nóttina. „Sú tíma-
setning gat hins vegar aldrei staðist,
því það tekur þrjá tíma að fljúga til
Kaupmannahafnar. Það tekur tvo
tíma að kalla út áhöfn í Reykjavík
og koma henni í loftið. Þá á eftir
að þjónusta vélina í Danmörku og
koma fólkinu um borð. Við þurftum
sem sagt að húka í flugstöðinni til
klukkan kortér í fimm um nóttina
án þess að nokkur talaði við okkur.“
Aðeins hægt að kvarta
í gegnum tölvu
Sigrún segir að farþegarnir hafi
fengið 75 krónur frá flugfélaginu
til þess að kaupa mat, en fyrir það
hafi verið hægt að kaupa samloku
og gos. „Þegar við loksins komumst
heim baðst áhöfnin jú afsökunar,
en okkur var aldrei leiðbeint um
hvernig við ættum að snúa okkur
til þess að kvarta yfir þessu. í gær
fórum við á skrifstofu félagsins því
við áttum rétt á hóteh og endur-
kröfu á fyrirtækið. Símadaman
réttir manninum mínum síma og
þegar hann ber upp erindið segir
konan í símanum að ekki sé tekið
á móti kvörtunum nema í gegnum
tölvupóst!“ Hún segir að þegar heim
var komið hafi þau sent tölvupóst og
fengið sjálfvirkt svar um hæl þess
efnis að haft verði samband við þau
innan fárra daga.„Ef að fyrirtækið
hefði staðið sig betur í þessu máli og
látið okkur hafa réttar upplýsingar
á hverjum tíma væri ég ekki svona
reið. Við vorum með ársgamalt barn
á ferðalagi, það var búið að lofa
okkur hóteh en í staðinn þurftum
við að húka í einhverjum biðsal og
fengum 75 krónur danskar sem er
auðvitað fáránleg upphæð.“ Sigrún
segir umræðu um starfslokasamn-
inga stjórnenda FL Group stinga
enn meira í augu þegar þjónustan
við viðskiptavinina er á þessum
nótum.„Framkoma flugfelagsins í
þessu máh gengur alveg fram af mér.“
Fyrrverandi borgarverkfræðingur
ber að Strætó bs. hafi borist marg-
vísleg gagnrýni á hið nýja leiðakerfi
meðan það hafi verið í smíðum, en
margvislegum ábendingum frá
embættismönnum og sveitarstjórn-
armönnum hafi f engu verið sinnt.
Afleiðingarnar hafi ekki látið á sér
standa og hafi farþegum Strætó
fækkað sem aldrei fyrr.
Þetta kemur fram á vef Björns
Inga Hrafnssonar (www.bjorningi.
is), sem býður sig fram í prófkjöri
framsóknarmanna í Reykjavík.
Gerir hann gjaldskrárhækkanir
Strætó um áramótin að umtalsefni
og gagnrýnir þær. Máli sínu til stuðn-
ings vitnar hann i bréf frá nafna
sínum, Birni Inga Sveinssyni, fyrr-
verandi borgarverkfræðingi. 1 því
kemur fram að hann hafi rækilega
gagnrýnt hið fyrirhugaða leiðakerfi
á vettvangi borgarinnar, m.a. við
Ásgeir Eiríksson, forstjóra Strætó,
og Árna Þór Sigurðsson, þáverandi
formann samgöngunefndar Reykja-
vikurborgar. Ekkert tillit hafi verið
Þorsteinn Einarsson, hæstaréttar-
lögmaður, ritar grein í Lögmanna-
blaðið þar sem hann telur nýlegan
dóm Hæstaréttar í kynferðisbrota-
máli geta breytt sönnunarkröfum í
sakamálum, að minnsta kosti hvað
varðar mál, er varða ætluð kynferðis-
brot gegn börnum.
1 október á liðnu ári staðfesti
meirihluti Hæstaréttar dóm Héraðs-
dóms Reykjaness yfir manni, sem
var fundinn sekur um kynferðisbrot
gegn fósturdóttur sinni. Dómur
þessi hefhr vakið athygli í lögmanna-
stétt, enda byggir dómurinn alfarið
á framburði brotaþola. Spyr Þor-
steinn í grein sinni hvort framvegis
muni nægja til sakfellingar í málum
af þvi tagi, að framburður meints
brotaþola teljist trúverðugri en fram-
tekið til þeirrar gagnrýni frekar en
annarra aðfinnslna. Nefnir Björn
Ingi Sveinsson að Kjartan Magnús-
son og Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúar minnihlutans í
Reykjavík, hafi komið margvís-
legum ábendingum og gagnrýni á
kerfið í samgöngunefnd, en allt hafi
komið fyrir ekki.
Borgarverkfræðingurinn fyrrver-
andi segir það komið á daginn, sem
engum ætti koma á óvart, að núver-
andi leiðakerfi Strætó virki engan
veginn sem skyldi. Farþegum fækki
sem aldrei fyrr og almenn óánægja
ríki með kerfið meðal viðskiptavina.
Nýja leiðakerfið beið skipbrot
Ekki náðist í Ásgeir Eiríksson, for-
stjóra Strætó, vegna þessa. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
hafa stjórn Strætó verið kynntar
nýjar tölur um farþegafjölda og hafa
þær valdið miklum vonbrigðum. I
stað þess að nýja leiðakerfið megn-
aði að stöðva þróunina, sem verið
hefur í farþegafjölda, mun fækkun
burður þess sem borinn er sökum
um kynferðisbrot. Fram að þessu
hefur sú regla verið í hávegum höfð
að hver maður teljist saklaus uns
sekt hans er sönnuð og hefur ákæru-
valdinu fram að þessu verið lögð sú
skylda á herðar, að það sanni sök.
í andstöðu við lög og fyrri dóma
Þorsteinn telur óyggjandi að í um-
ræddu máli hafi Hæstiréttur snúið
sönnunarbyrðinni við og lagt það á
ákærða að hann hnekkti framburði
brotaþola um ætlað brot sitt. Með
þessu telur Þorsteinn að Hæstiréttur
kunni að hafa sett nýja reglu um
sönnunarbyrði án þess að hafa heim-
ild til, enda stríði hún gegn lögum,
stjórnarskrá og Mannréttindasátt-
mála Evrópu.
Sakfelling ákærða byggði á fram-
burði brotaþola, sem að héraðs-
dómur taldi einkennast af varfærni
og vera trúverðugan, en ekki var
lagt sérstakt mat á trúverðugleika
ákærða. Með þeim hætti telur Þor-
steinn að sönnunarbyrðinni verið
snúið við, ákærða gert að hnekkja
framburði brotaþola, en þó með
öðrum hætti en eigin framburði.
Það hafi honum reynst ómögulegt,
enda vandséð með hvaða hætti
öðrum en eigin framburði hann gat
borið af sér sakir.
Þorsteinn bendir á að dómur-
inn sé í andstöðu við fyrri dóma
Hæstaréttar í málum af þessu tagi
og minnir sérstaklega á dóm í pró-
fessorsmálinu svonefnda. I því máli
sýknaði meirihluti Hæstaréttar
ákærða með sérstakri tilvísun til
þess að ekki mætti slaka á kröfum
um sönnunarbyrði og sönnunar-
skyldu ákæruvaldsins.
Samkvæmt lögum gilda sömu
reglur um sönnunarfærslu í öllum
tegundum sakamála og er því
ekki heimilt lögum samkvæmt að
þeirra enn hafa hert eftir að það var
tekið í notkun.
Margvíslegar ástæður eru nefndar
fyrir því, m.a. að stóraukinn inn-
flutningur einkabíla skili sér a.m.k.
ekki í auknum farþegafjölda. Þá játa
háttsettir menn hjá Strætó að kynn-
ing nýja leiðakerfisins hafi mistekist
fullkomlega, ekki síst vegna þess að
fyrirtækinu sjálfu hafi ekki reynst
unnt að starfa eftir því vegna sumar-
slaka á sönnunarkröfum eða snúa
sönnunarbyrði við, enda þótt sönn-
unarfærsla sé erfið í sumum mála-
flokkum. Veltir Þorsteinn upp þeirri
spurningu hvort þjóðfélagsumræða
um kynferðisbrot og farveg þeirra
í dómskerfinu kunni að hafa haft
áhrif á réttinn.
Sératkvæði Jóns Steinars
Með grein sinni tekur Þorsteinn
mjög undir sératkvæði hæstaréttar-
dómarans Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar í málinu, en hann vék að þvi að
ákærði hefði staðfastlega neitað sök
og því bæri að telja hann saklausan
uns annað væri sannað. í þessu máli
hefði það hins vegar verið látið duga
leyfa og manneklu.
Stjórnendur Strætó verja þó nýja
leiðakerfið og segja það gott til síns
brúks, en farþegana skorti. Benda
þeir á að miklar kröfur séu gerðar
til þjónustustigs fyrirtækisins, bæði
hvað varðar leiðir og mögulegan
fjölda farþega. Á hinn bóginn virð-
ist áhugi borgaranna á almennings-
samgöngum dala og gegn slíkri við-
horfsbreytingu sé erfitt að vinna.
að kærandinn teldist trúverðugur
og það lagt á sakborning að hnekkja
framburðinum. „Líklega eru vand-
fundin dæmi um að dómstólar hafi
sakfellt ákærða menn fyrir refsiverð
brot á slíkum grundvelli í öðrum
flokkum afbrota. Þessu virðist ráða
sú aðstaða að sönnunarfærsla um
brot erjafnan erfið í málum af þessu
tagi og svo hitt að brot, ef sönnuð
eru, teljast án nokkurs vafa svívirði-
leg að almenningsáliti."
Jón Steinar ítrekar hins vegar
að þessi staða geti ekki valdið því
að sakborningar séu sviptir þeirri
mannréttindavernd sem lög, stjórn-
arskrá og mannréttindasáttmálum
sé ætlað að tryggja þeim.
g * * *
Xættum
ÚMAN*
'P
Viltu hætta að reykja?
Ókeypis aðstoð
Reyksíminn
800 6030
Hœstiréttur:
Talinn hafa snúið sönnunar-
byrði við í kynferðisbrotamáli
Lögfrœðingar hafa áhyggjur afdómi Hœstaréttar þar sem manni var gert að bera afsér
sakir fremur en að ákœruvaldið þyrfti aðfœra sönnur á sekt hans. Dómurinn er talinn í
andstöðu við lög, stjórnarskrá og mannréttindasáttmála.
**Éra
Ðsdó
MUr
Mvkjaness
m ~=5
Blati6/Cúndi