blaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 32
32 I MENNING FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöiö Belgíska Kongó Ákveðið hefur verið að setja á svið að nýju leikverkið Belgíska Kongó, eftir Braga Ólafsson, sem gekk fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu tvö leikár í röð. Fyrsta sýning verður laugardagskvöldið 7. janúar. Eggert Þorleifsson hlaut Grímuverðlaunin fyrir besta leik i aðalhlutverki karla vorið 2004 fyrir túlkun sína á hinni fjörgömlu Rósalind. Verkið fjallar um bankastarfs- manninn Rósar og ömmu hans Rósulind sem hafa ekki talast við í sjö ár. Einn daginn ákveður Rósar að það sé orðið tímabært að sætt- ast og fá hin gömlu og tilefnislausu leiðindi út úr heiminum. Það getur hins vegar verið erfitt að brúa bilið milli jafn ólíkra einstaklinga. Auk Eggerts leika Ilmur Kristjánsdóttir, Ellert A. Ingimundarson og Davíð Guðbrandsson í sýningunni. Blaöið/Frikkl Móttaka fyrir heiðurslistamenn Alþingis var haldin í Alþingishúsinu síðdegis í gær. Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, bauð listamenn- ina velkomna en þeir eru hinir sömu og hlutu heiðurslaun Alþingis f fyrra og sagði Sólveig við tækifærið að það væri ánægjulegt að þeir skyldu allir enn vera meðal vor. Hér gefur að líta Thor Vilhjálmsson og Mörð Arnason og í bakgrunni glittir (Valgerði Guðnadóttur. Færeysk Á laugardaginn verður opnuð sýn- ing á verkum færeyska listmálarans Kára Svensson í Hafnarborg, menn- ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Sýningin ber yfirskriftina FLACHES, eða svipmyndir. Þetta er fyrsta einka- sýning listamannsins hér á landi. Skráðu bílinn á www.bilamarkadurinn.is list í Hafnarborg Kári Svensson fæddist í Færeyjum árið 1951. Hann hóf sinn listaferil snemma en hann hélt sína fyrstu málverkasýningu aðeins 16 ára gamall. Síðan þá hefur hann unnið að list sinni og haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, heima í Færeyjum, á öllum Norðurlöndunum, í New York, baltnesku löndunum, Hollandi og Singapore. Kári býr í Þórshöfn í Færeyjum og hefur sett upp vinnustofu í Vebestad, rétt utan við bæinn. Listamaður- inn lýsir sjálfur verkum sínum á þann veg að þau séu undir sterkum áhrifum frá færeysku landslagi án þess að vera beinlínis landslagsmál- verk, heldur e.t.v. miklu frekar abstr- act expressioniskar, eins konar svip- myndir af hans eigin upplifun af landinu. Álverk hans endurspegla árstíðirnar og sibreytilegt veðurfar á eyjunum. Hlaut styrk úr minningarsjóði Gunnar Sigurðsson hlaut styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnboga- sonar, stúdents, við hátíðlega athöfn í Skólabæ þann 21. desember síðast- liðinn. Gunnar er nemandi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla íslands, en hann fékk styrkinn fyrir hæstu meðaleinkunn að loknu öðru námsári. Minningar- sjóður Þorvalds Finnbogasonar stúd- ents var stofnaður af foreldrum hans, Sigriði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Hl, á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952. Til- gangur sjóðsins er að styrkja stúdenta til náms við verkfræðideild HÍ eða til framhaldsnáms í verkfræði við annan háskóla, að loknu grunnnámi í verkfræðideild HÍ. Stjórn sjóðsins skipa frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti íslands, Kristin Ingólfs- dóttir, rektor HÍ og Sigurður Brvnjólfs- son, forseti verkfræðideildar HI. Sigurður Brynjólfsson, forseti verkfræðideildar Hl, Anna Kristín Gunnarsdóttir, móðir Gunnars, Kristfn Ingólfsdóttir, rektor Hi, Gunnar Sigurðsson, verkfræðinemi, frú Vigdís Finnbogadóttir og Sigurður Jónsson, faðir Gunnars. 109 SU DOKU talnaþrautir Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir i hverri linu, hvort sem er lárétt eöa lóörétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 4 9 6 9 7 1 9 7 4 5 2 8 2 1 9 7 5 3 8 9 1 5 6 2 5 9 8 3 6 8 3 6 4 5 1 2 9 8 7 5 1 7 6 8 9 4 2 3 8 2 9 7 4 3 1 6 5 7 3 6 8 9 5 2 4 1 1 9 8 4 2 7 5 3 6 4 5 2 3 6 1 7 9 8 2 7 3 9 5 6 8 1 4 6 4 1 2 7 8 3 5 9 9 8 5 1 3 4 6 7 2

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.