blaðið - 05.01.2006, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöiö
Gengisþróun:
Landsbankinn spáir niðursveiflu krónunnar
Mikill viðskiptahalli mun veikja krónuna á þessu ári. Kólnun áfasteignamarkaði gœti komið í vegfyrirfrekari verðbólgu.
Gengi krónunnar mun veikjast tölu-
vert á árinu samkvæmt spá Grein-
ingardeildar Landsbankans. Helstu
ástæður er aukinn viðskiptahalli
samfara mikilli neyslu á síðasta ári
sem og minnkandi áhrif frá stór-
iðjuframkvæmdum. Þá er enn óvíst
hversu mikil áhrif vaxtahækkanir
Seðlabankans munu hafa á þróun
gengisins.
Mikill viðskiptahalli
Samkvæmt spá Greiningardeildar
Landsbankans er því styrkingarferli
krónunnar sem hófst við upphaf stór-
iðjuframkvæmda árið 2002 lokið.
I raun segir bankinn að þessi við-
snúningur hafi byrjað í nóvember á
síðasta ári en frá þeim tímapunkti
hefur krónan verið smám saman
að veikjast. I heild styrktist krónan
um 7,2% á síðasta ári en á fyrsta
viðskiptadegi þessa árs veiktist hún
aftur á móti um 0,05%. Gríðarlegur
viðskiptahalli einkenndi síðasta ár
og stóð heildarviðskiptahalli við
útlönd í rúmum 88 milljörðum í
nóvembermánuði. Á sama tímabili
árið 2004 var hann 30 milljarðar. Þá
koma einnig til endurgreiðslur upp á
40 milljarða í septembermánuði á er-
lendum skuldabréfalánum sem gæti
haft mikið að segja um gengisþróun.
Samkvæmt Greiningardeildinni eru
líklegar vaxtahækkanir Seðlabank-
ans sem og áframhaldandi útgáfa
skuldabréfa í íslenskum krónum
það helsta sem gæti hindrað þessa
þróun.
Óumflýjanleg þróun
Björn Rúnar Guðmundsson hjá
Greiningardeild Landsbankans segir
þessa spá alls ekki neikvæða þar sem
gert er ráð fyrir að gengið muni veikj-
ast með rólegum hætti yfir árið. „Ef
þetta gerist með þeim hætti sem við
reiknum með þá er þetta frekar hag-
stæð þróun. Það eru alltaf sveiflur
í genginu en þessi þróun er tiltölu-
lega róleg leið til baka. Það er frekar
jákvæð niðurstaða ef hún gengur
eftir.“ Björn segir erfitt að meta ná-
kvæmlega áhrif þessarar gengislækk-
unar á verðbólgu en minni þensla á
fasteignamarkaði muni vega þar á
móti. „Við eigum von á því að verð-
bólgan haldist ekki langt frá því
sem hún er í dag og það eru þarna
þættir sem vega hver á móti öðrum.
Við gerum t.d. ráð fyrir því að þessi
húsnæðisverðbólga sem hefur verið
að keyra áfram verðbólguna núna
undanfarin ár muni hjaðna og vega
á móti veikingu krónunnar.“ Björn
telur þó veikingu krónunnar óum-
flýjanlega og til skamms tíma muni
gæta einhverra verðbólguáhrifa.
„Til skamms tíma þá erum við að
tala um áframhaldandi verðbólgu
töluvert yfir verðbólgumarkmiðum
í kringum 4%. Það dregur úr kaup-
mætti fólks sem kemur illa út fyrir
suma en á móti kemur að ef þessi
þensla heldur áfram og gengisstyrk-
ingin verður ennþá meiri en hún
hefur þegar orðið þá er það bara að-
lögun sem þarf að eiga sér stað síðar.
Spurningin er bara hvenær þessi
þróun kemur fram því það er deg-
inum Ijósara að fyrr eða síðar hlýtur
krónan að veikjast.“ ■
Kópavogur:
Foreldrafélög
íhuga framboð
Foreldrafélög á leikskólum í Kópa-
vogi íhuga jafnvel að bjóða fram sér-
lista í komandi bæjarstjórnarkosn-
ingum ef ekki tekst að finna lausn
á vanda leikskóla þar í bæ. Um
áramótin sögðu um 60 starfsmenn
á leikskólum i Kópavogi upp starfi
sínu og nokkuð hefur verið um upp-
sagnir síðan þá. Mikil reiði er meðal
foreldra leikskólabarna í Kópavogi
og saka þau bæjaryfirvöld um áhuga-
leysi á því að finna lausn á málinu.
fyrir 4 til 6
kr. 2.490
ClUfZ110£SUB
HMHH...GLÓDAÐUR
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32
Slökkviliðið:
Reykur í
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgar-
svæðinu var kallað út í gærmorgun
þegar reykur gaus upp úr eiming-
artæki í efnamóttökustöð Sorpu í
Gufunesi í gærmorgun. Óttast var í
fyrstu að eldur hefði brotist út.
Fjórir bílar ræstir út
Starfsmenn efnamóttökunnar
urðu varir við reykinn laust fyrir
klukkan níu í gærmorgun og var
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
gert viðvart. Þrír slökkviliðsbílar
ásamt sérstökum efnahreinsibíl
voru ræstir út en þegar fyrsti bíll
kom á staðinn var ljóst að hættan
var mun minni en menn höfðu
gert ráð fyrir í fyrstu. Samkvæmt
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
lagði mikinn reyk frá eimingartæki
sem staðsett er inn í efnamóttöku-
stöðinni en enginn eldur var sjáan-
legur. Því voru tveir slökkviliðsbílar
ásamt hreinsibílnum afturkallaðir
en einn bíll hafður á staðnum til
vöktunar. Að sögn slökkviliðsins
er ekki hafður meiri viðbúnaður
vegna elds í efnamóttökunni frekar
en á öðrum stöðum og þá ekki talið
að hættulegri eiturgufur myndist
við eld á þessum stað en við venju-
legan bruna.
* * *
| ■ * * *
Hætjum
SAMAN*
* *
kk 'J' '
IVOHfclL S.IS IOI)
Viltu hætta að reykja? Reyksíminn
Ókeypis aðstoð 800 6030
efnamóttökunni
Orkla Media:
Dagsbrún
vill kaupa
Miklll viðbúnaður var hjá slökkvíliðinu í gærmorgun þar sem óttast var BMiö/SteinarHugi
að eldur hefði brotist út I efnamóttökunni í Gufunesi.
Engin slys á mönnum
Efnamóttakan í Gufunesi hefur
verið starfrækt síðan 1998 og er
þar unnið að eyðingu hvers konar
spilliefna m.a. rafgeyma, olíu, máln-
ingar og leysiefna svo fáein dæmi
séu nefnd. Að sögn Einars Gunn-
laugssonar, verkstjóra efnamóttök-
unnar, var verið að eima málning-
arefni þegar vélin ofhitnaði með
fyrrgreindum afleiðingum. Engin
slys urðu á mönnum en starfsmenn
efnamóttökunnar náðu að slökkva á
tækinu áður en slökkviliðið mætti
á staðinn. „Þetta hefur aldrei gerst
hjá okkur áður en ég veit að þetta
hefur gerst í svipuðum vélum ann-
ars staðar.“ ■
Norska fjölmiðlafyrirtækið Orkla
Media, sem m.a. gefur út dagblaðið
Berlingske Tidende, hafði samband
við Dagsbrún til að kanna áhuga
þeirra á kaupum. Þetta kom fram í
dönskum íjölmiðlum í gær. Nokkuð
hefur verið fjallað um meintan
áhuga Dagsbrúnar á Orkla en
fýrirtækið hefur verið til sölu um
nokkurt skeið. I fréttum danskra fjöl-
miðla er haft eftir heimildarmanni
að Dagsbrún hafi áhuga á að festa
kaup á Orkla en fyrirtækið hefur
verið metið á um 80 til 90 milljarða.
Gámaþjónustan:
Tæma ruslagáma
Allir ruslagámar Gámaþjónustunnar
hf. á höfuðborgarsvæðinu verða
tæmdir fyrir kvöld þrettándans
til að koma í veg fyrir íkveikjur. Á
sumum stöðum verða gámarnir fjar-
lægðir. Tjón vegna skemmda hefur
verið töluvert undanfarin ár og því
er gripið til þessara ráðstafana nú.
Útsölurnar í fullum gangi
Eftir að hafa eytt meiri fjárhæðum í jólagjafir í desember en dæmi eru um síðan mælingar hófust, láta Islendingar
ekki deigan síga og hópast á útsölurnar í janúar. Sennilega er fólk að kaupa sér það sem það óskaði sér í jólapakk-
anum en fékk ekki. Útsölur eru víða hafnar og strax hafa myndast biðraðir eins og sjá má á þessari mynd sem tekin
var í Smáralind.