blaðið - 05.01.2006, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöiö
Furstinn af
Dubai látinn
Sheikh Maktoum bin Rashid
al-Maktoum, fursti af Dubai og for-
sætisráðherra Sameinuðu arabísku
furstadæmanna, lést snemma í gær
í Ástralíu. Sheikh Maktoum, sem
var hálfsjötugur, hafði verið veill
fyrir hjarta. Bróðir hans Sheikh Mo-
hammed bin Rashid al-Maktoum,
varnarmálaráðherra Sameinuðu
arabísku furstadæmanna, hefur
tekið við sem leiðtogi Dubai.
Sala eykst á spar-
ney tnum bílum
Bílaframleiðendur um heim
allan spá því að sala á ódýrum og
sparneytnum bílum verði meiri
en sala á pallbílum, jeppum og
eðalbilum á næstu fimm árum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
árlegrar könnunar sem birt var í
gær. Ennfremur er fyrirséð aukning
í sölu bíla sem geta gengið fyrir
tveimur orkugjöfum, til að mynda
telja nærri 90% þátttakenda að
bílar sem geta gengið fyrir bensíni
og rafmagni muni auka hlut sinn
á markaðinum. Þessi spá þykir
endurspegla auknar áhyggjur fólks
af hækkandi verði á eldsneyti.
Umdeilt umferðargjald
í Stokkhólmi
Mannskæð aurskriða á Indónesíu
Óttast er um lífallt að 200 manns. Fjölmargra er saknað eftirflóð og aurskriður víðar á
eyjunni auk þess sem samgöngumannvirki hafa eyðilagst.
Lögregla t ísrael rannsakar tölvugögn:
Spillingarmál skekja Sharon-fjölskylduna
JoeTallman, slökkviliðsstjóri, staðfestir
að 12 námaverkamenn hafi látið lífið.
Gleði snerist
í sorg
Aðeins einn af 13 námaverka-
mönnum sem festust i kolanámu
f Vestur-Virginíu komst lffs
af. Áður hafði verið tilkynnt að
aðeins einn mannanna hefði farist
og voru aðstandendur búnir að
fagna björgun þeirra í um þrjá
tíma áður en sannleikurinn kom
í ljós. Misskilningur virðist hafa
komið upp á milli björgunarmanna
niðri í námunni og stjórnstöðvar
ofanjarðar sem síðan barst út.
Sá eini sem komst lífs af var 27
ára gamall maður að nafni Randal
McCloy. Hann var þó enn í lífshættu
þegar hann var lagður meðvitund-
arlaus inn á sjúkrahús í gærmorgun.
Þrátt fyrir að mikið magn kolsýr-
ings hefði mælst í námunni varð
efnisins ekki vart í líkama hans.
Námumennirnir höfðu setið
fastir á tæplega 80 metra dýpi síðan
náman lokaðist í kjölfar öflugrar
sprengingar snemma á mánudag.
Sheikh Maktoum fursti af Dubai
trúar borgarinnar vara þó við því að
fyrst reyni á kerfið á mánudag þegar
flestir Svíar snúi aftur til skóla og
vinnu eftir jóla- og nýársfrí.
Bifreiðaeigendur æfir
Tveir af hverjum þremur íbúum
Stokkhólms eru mótfallnir gjaldinu
en þeir sem standa að því segja að
ekki verði hjá því komist í ljósi auk-
innar umferðar og mengunar. Með
gjaldtökunni fylgir Stokkhólmur í
fótspor London, ðsló og Singapúr.
Gjaldtökunni verður aflétt í lok
júlí og síðan munu borgarbúar
greiða atkvæði um hvort þeir vilji
áframhaldandi gjaldtöku.
Græningjar eru öflugustu stuðn-
ingsmenn verkefnisins sem fóru
fram á að því yrði hleypt af stokk-
unum gegn því að flokkurinn
myndi styðja minnihlutastjórn Jafn-
aðarmanna. Samtökbifreiðaeigenda
í Svíþjóð hafa aftur á móti harðlega
Borgaryfirvöld í Stokkhólmi vonast til að stemma stigu við síaukinni umferð með gjald-
tökunni. Myndin er ekki frá Stokkhólmi.
gagnrýnt verkefnið og kallað það
„árás á lýðræðið." Aðrir gagnrýn-
endur segja að gjaldið sé of hátt og
það komi helst niður á fólki sem þarf
að ferðast til og frá úthverfunum.
Óttast er að allt að 200 manns hafi
farist eftir að aurskriða lenti á um
120 húsum í þorpinu Cijeruk á Jövu.
Um 150 lögreglumenn og her-
menn leituðu að eftirlifendum í
gær. Níu manns fundust á lífi í rúst-
unum í gærmorgun en létust síðar af
meiðslum sínum á sjúkrahúsi. Aur-
skriðan skall á húsunum klukkan 5
að morgni í kjölfar mikilla rigninga.
Flestir íbúa þorpsins voru í fasta-
svefni eða við morgunbænir þegar
harmleikurinn átti sér stað.
Björgunarmenn þurftu að beita
handafli, skóflum og hökum við leit-
ina. Vegurinn til þorpsins er í slæmu
ástandi sem gerir mönnum erfitt um
vik að koma umfangsmeiri björgun-
arbúnaði á staðinn. Björgunarmenn
leituðu einnig fórnarlamba eftir
fleiri aurskriður og flóð sem áttu sér
stað fyrr í vikunni austar á Jövu. Að
minnsta kosti 63 fórust í þeim ham-
förum og fjölmargra er enn saknað.
Aur og vatn hafa ennfremur eyðilagt
brýr og vegi í Jember-héraði og lokað
leiðum til þorpa.
Aurskriður eru ekki óalgengar á
þessum slóðum á meðan á regntíma-
bilinu stendur en þær hafa yfirleitt
verið mun minni en sú sem átti sér
stað í gær.
Kona situr vifi rústir hússins síns sem varfi fyrir öflugri aurskriðu í fjallaþorpinu Cijeruk á eyjunni Jövu á Indónesíu.
Ökumenn sem koma til borgarinnar eðayfirgefa hana þurfa að greiða gjald nœstu sjö mán-
uði. Tveir afhverjum þremur íbúum eru á móti gjaldtökunni. Borgaryfirvöld vonast til að
stemma stigu við aukinni umferð og mengun með þessum hœtti.
Borgaryfirvöld í Stokkhólmi hafa
gripið til þess ráðs að innheimta
gjald af ökumönnum sem koma
til borgarinnar eða yfirgefa hana á
vissu tímabili sólarhringsins. Öku-
menn munu þurfa að reiða fram
10-20 sænskar krónur (800-1600
íslenskar krónur) í hvert sinn en
upphæð gjaldsins fer eftir þvi á
hvaða tíma dags þeir eru á ferð.
Ekki verður þó hægt að rukka sama
ökumann um meira en 60 sænskar
krónur á einum degi. Um er að ræða
tilraunaverkefni til sjö mánaða.
Tekjur af gjaldtökunni verða
nýttar til fjárfestinga í almennings-
samgöngum. Ferðum strætisvagna
og neðanjarðarlesta hefur verið
fjölgað til að anna aukinni eftir-
spurn en vonast er til að draga muni
úr umferð í borginni um 10-15%.
Umferð í borginni virtist ganga
vel fyrir sig á þriðjudag fyrsta dag-
inn sem gjaldið var innheimt. Full-
Lögregla í ísrael mun rannsaka tölvu-
gögn sem hún telur að muni leiða í
ljós að fjölskylda Ariels Sharon, for-
sætisráðherra, hafi þegið um þrjár
milljónir Bandaríkjadala (um 186
milljónir íslenskra króna) í mútur.
Lögreglan hefur staðfest að hún hafi
lagt hald á fartölvur og farsíma í
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
r ^klcuttanÁcuLurUHH,
Sm(i jtnK+i 46 £ • ifutv+i
S. 567 1800
eigu fjölskyldu austuríska fjármála-
mannsins Martin Schlaff í húsleit í
desember.
Þeir sem vinna að rannsókninni
telja að ný sönnunargögn muni gera
þeim kleift að halda áfram rann-
sókn sem staðið hefur lengi á spill-
ingarhneyksli sem snýst um ólögleg
framlög í kosningasjóði fyrir kosn-
ingarnar árið 1999.
Fram að þessu hefur lögregla ekki
getað kannað gögnin vegna þess að
bróðir Schlaffs, James Schlaff, fór
fram á að lögbann yrði sett á þau.
Hann hefur nú fallið frá þeirri kröfu
og ætti lögregla því að fá aðgang að
þeim á næstu dögum.
Omri Sharon, sonur forsætisráð-
herrans, sagði í fyrradag af sér þing-
mennsku en hann játaði í nóvember
að hafa brotið lög um fjármögnun
stjórnmálaflokka og á yfir höfði sér
dóm fyrir meinsæri og skjalafals.
Feðgarnir Ariel og Omri Sharon stinga
saman nefjum. Omri sagfii 1 fyrradag af
sér þingmennsku vegna ásakana um ólög-
lega fjármögnun stjórnmálaflokka.