blaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 12
12 IFERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 í bladiö
Samkeppnin harðnar íflugsamgöngum
Tvö ílugfélög hefja flug til íslands i mars
íslendingar hafa frá árinu 2003
einungis getað valið um tvö flug-
félög ef þeir ætluðu að fljúga frá
landinu. Þetta breytist heldur
betur í mars þegar bæði SAS Bra-
athens og British Airways munu
hefja áætlunarflug frá íslandi.
Ljóst er því að samkeppnin er að
harðna og spennandi verður að
fylgjast með framhaldinu.
Maður þarf ekki að vera gamall
til þess að muna eftir því þegar
Icelandair var eitt um hituna í
flugsamgöngum frá íslandi. Það
var því ekki spurning um hvert og
með hverjum ætti að fljúga heldur
einungis hvert Icelandair flaug.
Ferðalög á milli landa voru heldur
sjaldgæfari þá enda voru þau tölu-
vert dýrari. Fjögurra manna fjöl-
skylda á verkamannslaunum þurfti
þá jafnvel að safna sér fyrir ferð til
Danmerkur í nokkur ár. í dag getur
sama fjölskylda farið árlega til Dan-
merkur fyrir töluvert minni pening.
Ótrúlegt verð hjá erlendum
flugfélögum
Árið 2003 kom IcelandExpress á
markaðinn og í kjölfar þess lækkuðu
flugfargjöld töluvert. 1 byrjun flugu
þeir einungis til Bretlands og Dan-
merkur en síðan hafa fleiri áfanga-
staðir bæst við. Islenskir neytendur
99
Þá verða fjögur flugfélög
í samkeppni á fslandi
og spurning er hvort
neytendur muni jafnvel
sjá enn meiri verðlækkun
á flugfargjöldum
hafa því getað valið um tvö flugfélög
til að skipta við og margir hafa nýtt
sér það með því að fljúga til dæmis
til Bretlands og þaðan flogið með
erlendu flugfélagi hvert sem hugann
lystir, enda bjóða þau oft upp á til-
boð á vægast sagt ótrúlegu verði.
Flug til Bretlands og Osló
En í ár mun saga flugsamgangna
breytast enn meir á íslandi því þann
26. mars munu bæði British Airways
og norska flugfélagið SAS Braathens
fljúga til Islands. Þá verða fjögur
Samkeppnin f flugsamgöngum frá fslandi harðnar f mars þegar tvö ný flugfélög koma inn á markaðinn.
flugfélög í samkeppni á Islandi og
spurning er hvort neytendur muni
Vel skipulögð
ferð er fullkomin ferð
jafnvel sjá enn meiri verðlækkun
á flugfargjöldum. British Airways
hyggst fljúga fimm sinnum í viku
á milli Gatwick og Keflavíkur. SAS
Braathens mun fljúga þrisvar í viku
á milli Osló og Keflavíkur og lægsta
fargjaldið verður um 6.500 krónur
aðra leiðina með sköttum. ■
IcelandExpress
Eftir áramót fara margir að hugsa sér
til hreyfings og hefja skipulagningu
á spennandi ferðum til framandi landa.
Enda byrja ferðaauglýsingar að skella á
landann strax á nýju ári.
Pað má segja að mikilvægasti hluti
ferðalags sé góð skipulagning enda
tryggir hún án efa skemmtilegt ferðalag.
Hér eru nokkrar góðar ráðleggingur sem
gott er að hafa til hliðsjónar á nýju ári.
Athugaðu hvort þú þarft einhverjar
bólusetningar áður en þú heimsækir
viðkomandi land. Ef þú ert einungis að
ferðast innan Evrópu ætti slíkt að vera
óþarfi en allur er varinn góður.
Skipuleggðu þig vel. Vertu búin að
athuga með lestarferðir til og frá
flugvelli, panta hótel og annað sem þarf
nauðsynlega að vera í lagi.
Vertu viss um að hvorki vegabréfið né
kredit- eða debetkort séu útrunnin
eða muni renna út á meðan á dvölinni
stendur.
Til öryggis er alltaf gott að hafa með
sér símanúmer og staðsetningu á
sendiráði Islands í viðkomandi landi.
Pakkaðu þeim meðölum sem þú þarft
í handfarangur og vertu viss um að
þú sért með nægar birgðir fyrir alla ferð-
ina. Oft er gott að taka aukabirgðir með
sem eru þá geymdar annars staðar, ef eitt-
hvað skyldi koma upp á.
Sjáðu til þess að heimili þitt sé öruggt
áður en þú ferð út og að litið sé eftir
því á meðan þú ert í burtu. Fáðu einhvern
til að koma reglulega heim til þín til að
tæma póstkassann og skilja eftir ljós á
mismunandi stöðum í íbúðinni. Eins
getur verið gagnlegt að fá nágrannann
til að leggja bíl sínum í þitt stæði þannig
að það sé reglulega einhver hreyfing í
kringum húsið.
Athugaðu að það tekur mun meiri
tíma í dag að fara í gegnum öryggis-
leit og annað á flugvöllum. Þetta á sérstak-
lega við erlenda flugvelli. Þú þarft því að
gefa þér góðan tíma á flugvellinum því
þú mátt allt eins búast við því að þurfa
bæði heimilisfangið þar sem þú munt
gista 1 viðkomandi landi sem og heim-
ilisfangið þitt hér á Islandi. Þetta ætti að
geta komið í veg fyrir allan misskilning
þannig að farangurinn fylgi þér alla leið
út.
Vertu vakandi fyrir því hverju þú
pakkar niður þar sem ekki er leyfi-
legt að taka allt með í flug. öryggis-
reglum hefur verið breytt mikið upp á síð-
kastið og það er óleyfilegt að taka marga
eðlilega heimilishluti með sér í flug, til
dæmis naglaþjöl og hnífapör.
[afðu vegabréfið, flugmiðann og
brottfararspjaldið þar sem auðvelt
er að ná í það.
Gefðu þér nægan tíma til að komast
að brottfararhliðinu þar sem hætt
er að hleypa inn í flugvélina tíu mínútum
fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Merktu farangurinn þinn vel, bæði M fðast en ekki síst, góða skemmtun!
að innan og utan. Gott er að skrifa |9
Ljósritaðu vegabréfið, kreditkortið,
flugmiða og alla dagskrá sem þú
þarft á að halda. Hafðu alltaf eitt afrit af
hverju með þér og geymdu hitt afritið á
öruggum stað. Þetta getur komið til góðs
ef til dæmis vegabréftnu þínu er stolið.
að standa í röð f 1-2 klukkutíma. Ef þú ert
að ferðast með ung börn máttu búast við
því að þurfa enn meiri tíma.
Reyndu að troðfylla ekki handfar-
angur þinn þar sem þá veitist ör-
yggisvörðum erfiðara að fara í gegnum
farangurinn auk þess sem það tekur
lengri tíma.
Reyndu ekki að sitja of lengi í einu í
flugvélinni. Þegar það hentar skaltu
standa upp og ganga um vélina, teygja
hendur og fætur svo líðanin sé góð.
Borðaðu eitthvað og passaðu þig á því
að drekka vel. Þó skal áfengisneyslu
stillt í hóf.
Hvíldu þig og reyndu jafnvel að leggja
þig ef þú getur. Svefn hjálpar líkam-
anum að jafna sig á tímamismuninum og
ferðalaginu sjálfu.
Við seljum bílana
www.bilamarkadurinn.is
5? Sm&iwt+i 46 £ •
S. 567 1800
Flugfélög Verð
British Airways 22.840 kr. meB sköttum
lcelandair 25.730 kr. meö sköttum
lcelandExpress 20.088 kr. meö sköttum
Eins og sjá má býður IcelandExpress
upp á ódýrasta fargjaldið en þar
kostar ferð fram og til baka 20.088
krónur með sköttum. British Air-
ways kemur fast á hæla IcelandEx-
press þar sem farið kostar 22.840
krónur með sköttum. Icelandair
rekur svo lestina þar sem far fram
SAS Braathens 29.135 kr. með sköttum
Það er heldur meiri munur á fargjald-
inu til Noregs heldur en Bretlands.
Munur á hæsta og lægsta verði er
9.855 krónur. Fargjald til Noregs hjá
Icelandair kostar 38.990 krónur með
sköttum og er því hærra en fargjald
SAS Braathens til Noregs sem kostar
29.135 krónur með sköttum.
svanhvit@bladid.net
og SAS ódýrastir
I ljósi þess að neytendur búa
við aukinn valkost í utanlands-
ferðum á íslandi er ekki galið að
gera smá verðsamanburð. Ekki
fljúga öll flugfélögin til sömu
landa og því var brugðið á það
ráð að bera saman þrjú flugfé-
lög sem fljúga til London og tvö
flugfélög sem fljúga til Noregs.
Bent er á að hér er eingöngu um
netverð að ræða og enginn grein-
armunur er gerður á gæðum eða
þjónustu.
Það eru þrjú flugfélög af fjórum
sem fljúga til Bretlands af þeim flug-
félögum sem sinna íslandi. Það eru
British Airways, Icelandair og Ice-
landExpress. Þrátt fyrir að öll þessi
flugfélög fljúgi til Bretlands þá lenda
þau á sitt hvorum flugvellinum og
þvi um mislangan veg að fara til
höfuðborgarinnar, London. Þannig
lendir British Airways á Gatwick
flugvelli, Icelandair lendir á Heat-
hrow og IcelandExpress lendir á
Stansted. Heathrow er næst miðbæ
London, um það bil korter með lest
en það tekur tæplega klukkustund
að fara með lest frá Gatwick sem og
Stansted. Kannað var hvað kostar að
fljúga til Bretlands þann 9. júní og
komið heim til Islands þann 12. júní
fyrir einn fullorðinn einstakling.
Iceland Express@
ICELANDAIR S
BRITISH AIRWAYS ^
[3 Braathens
og til baka kostar 25.730 kr. með
sköttum. Munurinn er þó ekki mik-
ill heldur munar 5.642 krónum á
hæsta og lægsta verði.
Icelandairtæplega 10.000
krónum dýrari
Það eru tvö flugfélög sem fljúga til
Noregs, Icelandair og SAS Braat-
hens. Bæði flugfélögin fljúga til Osló.
Kannað var hvað kostar að fljúga
til Osló frá fslandi þann 9. júní og
koma heim þann 12. júní fyrir einn
fullorðinn einstakling.
Flugfélög Verð
lcelandair 38.990 kr. með sköttum