blaðið - 05.01.2006, Page 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
STEINUM KASTAÐ
ÚR GLERHÚSI
Igær kynnti Össur Skarphéðinsson nýtt frumvarp sem Samfylk-
ingin hyggst leggja fram i byrjun þings nú í janúar. Með því á að
tryggja að stjórnir fyrirtækja leggi starfslokasamninga stjórnenda
sinna fyrir hluthafafund áður en þeir eru samþykktir. Ástæða frum-
varpsins er augljóslega starfslokasamningar tveggja fyrrverandi stjórn-
enda FL-Group upp á tæpar 300 milljónir króna. Mikil reiði hefur ríkt í
samfélaginu vegna samninganna og ekki er útséð um hvernig því máli
mun ljúka. Það verða að endingu viðskiptavinir fyrirtækisins og hlut-
hafar sem munu dæma verk stjórnar í þessu máli.
Ekki er ólíklegt að stjórnmálamenn allra flokka séu málinu nánast fegnir,
því kastljósi fjölmiðla og almennings var með því beint frá umdeildum
úrskurði Kjaradóms og tekjum þingmanna, ráðherra og annarra opin-
berra starfsmanna hér á landi. Þingmenn, sem dagana á undan höfðu
þurft að svara óþægilegum spurningum um eigin kjör, höfðu nú skyndi-
lega tækifæri til að gagnrýna kjör annarra. Þingmenn hafa nánast út-
hrópað FL-Group vegna málsins, hvatt almennig til að sniðganga félagið
og stjórnarformanninn til að segja af sér svo eitthvað sé nefnt. Þeirri
skoðun hefur ennfremur verið kastað fram að forstjórar fyrirtækja hér
á landi séu komnir með slíkar tekjur að vart þurfi að verðlauna þá þegar
þeir láta af störfum með greiðslum upp á tugi milljóna króna. Þessir ein-
staklingar beri óneitanlega mikla ábyrgð en þurfi að standa og falla með
störfum sínum - ef þeir standa sig ekki eigi að vera hægt að láta þá fara
án þess að það kosti fyrirtæki stórfé.
Það er nánast broslegt að fylgjast með málflutningi þingmanna í þessu
máli. Þeir hafa á stuttum tíma hækkað laun sín verulega og allir vita
að þingfararkaup er aðeins brot af raunverulegum tekjum. Það er því
ekki hægt að segja með góðu móti að þingmenn séu illa haldnir svona
launalega séð.
Það er síðan rétt að rifja upp þá röksemdarfærslu sem notuð var þegar
hið umdeilda eftirlaunafrumvarp var lagt fram árið 2003. Þá kepptust
þingmenn við að benda á að þeir bæru mikla ábyrgð og lítið starfsör-
yggi. Oft væri erfitt að finna nýja vinnu þegar þeir hyrfu af þingi og því
nauðsynlegt að tryggja þeim það tekjulega öryggi sem í eftirlaunafrum-
varpinu var falið. Sömu þingmenn segja nú að forráðamenn fyrirtækja
eigi ekki að gera starfssamninga sem tryggir þeim tekjuöryggi. Síðast
þegar að var gáð hét svona málflutningur að kasta steinum úr glerhúsi.
Auglýsingastjórí: Steinn Kéri Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: tslandspóstur.
Alla virka daga
milli 14 og 17
Auglýsingar 5103744
blaðið.
14 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaAÍ6
óYbY BoSS.H/ &E-TUR 7/yfNGr í
puStf OG SflGT VowUNÍ AV Vit> tfÖFúíí
UPP&ðT7flP mLr&A ÓVibli 2>m
Heims um ból
Ég söng Heimsumbólá sænsku þessi
jólin. Miðdóttir okkar hjóna flutti
til Svíþjóðar sl. sumar með fjölskyld-
una og við ákváðum að endurnýja
kynnin af sænsku jólahaldi frá þeim
tímum þegar hún og systur hennar
voru litlar. Við þráðum endurfundi
við dóttursoninn á fjórða ári. Hann
var nýorðinn altalandi á móður-
málinu þegar hann var lentur í
þeirri stöðu að verða sem mállaus á
sænskum leikskóla í Jönköping. Ég
fann svo til með barninu. Ég varð að
komast að því hvernig honum vegn-
aði, hvort hann væri farinn að skilja
hin börnin á leikskólanum og gera
sig skiljanlegan við þau. Síðustu
dagana fyrir jól fór ég með honum
á morgnana og sótti hann eftir há-
degi og hitti fóstrurnar hans og
fjölþjóðlegan hóp skólasystkina. Ég
sá að litli ljúfur ætlaði að spjara sig
og fóstrurnar sýndu honum mikla
umhyggju. Ömmuhjartanu létti.
Kirkjan í Centrum
Að loknum seinasta deginum fyrir
jólafrí áttum við erindi í hverfisversl-
unina og leiðin lá fram hjá kirkjunni
sem er sambyggð bókasafninu rétt
við búðina. Hann sagði mér að Jesús
væri í kirkjunni. Hann hefði farið
að skoða hann með börnunum í leik-
skólanum og vildi sýna mér. Á móti
okkur tók kona á miðjum aldri sem
talaði mjög góða sænsku þótt hún
væri augljóslega innflytjandi eins
og helmingur íbúanna í hverfinu.
Hún sagðist vera djákni og vita hvað
sá litli væri að meina, opnaði inn í
kirkjuna og kveikti á kertum þar
sem búið var að sviðsetja jólaguð-
spjallið með heimagerðum brúðum.
Þarna voru hirðarnir á Betlehems-
völlum sem gættu hjarðar sinnar,
Jesúbarnið (jötunni hjá foreldrum
sínum og vitringarnir frá Austur-
löndum með gjafirnar, gull, reykelsi
og myrru. Drengurinn vildi vita allt
um þennan atburð og spurði um
heiti á hverri persónu og hverju dýri
og amma hans svaraði eftir bestu
getu. Á eftir bauð konan okkur upp
á kaffi og piparkökur og drykkinn
Julmust.
Steinunn B. Jóhannesdóttir
Konurnar frá Austurlöndum
Fyrir í boðinu sátu tvær konur,
önnur Arabi frá Armeníu, hin Ar-
meni frá Sýrlandi. Báðar áttu bágt
með að tjá sig á sænsku en djákn-
inn túlkaði. Hún reyndist vera frá
Tyrklandi og sagði að þær tilheyrðu
kristnum minnihlutahópum sem
löngum hefðu sætt ofsóknum á
sínum landsvæðum. Ég upplýsti að
ég hefði eitt sinn unnið með arm-
enskum leikstjóra ( þjóðleikhúsi
Islendinga og þannig heyrt um þjóð-
armorðið á Armenum. Armenska
konan bauð mér að smakka döðlu-
snúðana sem hún hafði bakað á
meðan drengurinn raðaði í sig pipar-
kökunum. Honum líkaði svo vel við
þessar nýju vinkonur ömmu sinnar
að hann fann hjá sér þörf til að leggja
orð í belg: „Min mormor ska baka
pepparkakor med mig.“ Þetta var
fyrsta heila setningin sem ég heyrði
hann segja á sænsku, stór áfangi
í lífi barns sem er að ná tökum á
nýju tungumáli. Konurnar glöddust
með okkur. Tyrkneska konan sagð-
ist hafa dvalið 16 ár í Svíþjóð sem
skýrði góð tök hennar á tungumál-
inu og ég spurði hvort hinar tvær
væru nýkomnar. Það reyndist öðru
nær. Sú sýrlenska hafði búið í land-
inu í yfir tuttugu ár, sú frá Armeníu
var enn nær mállaus eftir þrjátíu ár.
Hún horfði afsakandi á mig og sagð-
ist tala armensku, arabísku og tyrk-
nesku en „svenska, mycket svárt.“
Það blikaði á tár. Hún fyllir stóran
hóp innflytjendakvenna á Vestur-
löndum sem þjást vegna einangr-
unar sem málleysið veldur. Lykill
að aðlögun fjölskyldunnar er hins
vegar að kenna konunum að lesa
og tala tungmál móttökulandsins.
„Ég vona að ríkisstjórnin setji meiri
peninga í að kenna innflytjendum
íslensku,“ sagði hin íslensk-palest-
ínska Amal Tamimi, ráðgjafi hjá Al-
þjóðahúsinu í áramótakastljósi Sjón-
varpsins. Það væri öllu samfélaginu
til góðs.
Höfundur er rithöfundur.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Mikið hefur verið fjallað um mál-
efni Dagsbrúnar og 365 fjölmiðla
að undanförnu eftir að flri Edw-
ald settist þar í framkvæmdastjórastól. Eftir
standa Samtök atvinnulifsins sem höfuðlaus
her og Ijóst að ekki mun l(ða langt þar til nýr
framkvæmdastjóri
verður ráðinn. Stí staða
þykir hafa „verðfallið"
nokkuð í t(ð Ara og lík-
legt að erfitt reynist að
finna stórlax úr íslensku
viðskiptalífi í stólinn.
Klippari finnur til með
Samtökum atvinnulffsins ( þessum þreng-
ingum og vill því minna á að atvinnulausasti
maður landsins, Þórólfur Árnason, er enn á
lausu og örugglega til í að reyna sig á nýjum
vettvangi.
Olafur Sigurðsson, hinn hugprúði
og snjalli fréttamaður RÚV, hefur
nú yfirgefið
fréttastofuna. Ljóst
er að brotthvarf hans
eru viðbrigði fyrir
sjónvarpsáhorfendur,
enda ermaðurinn nán-
ast eins og húsgagn í
stofum landsmanna,
svo lengi hefur hann verið á skjánum. Sérstök
framsögn hans í fréttum hefur ávallt vakið
athygli og byggðu Spaugstofumenn einn ást-
sælasta karakter sinn á Ölafi, hinn óskýrmælta
Ófeig. Það má hins vegar segja að sjónvarps-
áhorfendum hafi verið gerður grikkur með því
að RÚV leyfi Ólafi að hætta. Eftir áratuga veru
á skjánum voru þeir nefnilega lokslns farnlr að
skilja kallinn.
Fríið frá pólitíkinni var nú ekki mikið
þessi jólin. Strax eftir áramót blöstu
svo við heilsíöuauglýsingar frá von-
góðum frambjóðendum
( komandi prófkjörum.
Samfylkingarmaðurinn
Stefán Jón Hafstein
lætur þannig engan bil-
bug á sér finna þó Stein-
unn V. Óskarsdóttir kaupi sér vinsældir í viku
hverri og Dagur B. Eggertsson hafi tekið af
skarið um metnað sinn. Þá hlýtur brotthlaup
Bjarkar Vilhelmsdóttur frá Vinstri grænum
yfir (Samfylkinguna að hafa s(n áhrif. Eins
kemur framsóknarkonan Anna Kristinsdóttir
inn af fullum þunga og ætlar greinilega ekki að
láta Birni inga Hrafnssyni 1. sætið (Reykja-
vík eftir fyrr en (fulla hnefana. Þetta verður
sjóðheitur vetur.