blaðið - 05.01.2006, Qupperneq 18
18 I BÖRN OG UPPELDZ
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöið
Englakórinn
Ómur fallegra bamaradda
Á laugardögum berst um Hamra-
borgina ómur englaradda. Engla-
kórinn hittist einu sinni í viku,
í Tónlistarskóla Kópavogs, en
það er hópur barna á aldrinum
þriggja til sex ára. Stjórnandi og
stofnandi smábarnakórsins er
Natalía Chow en hann hefur verið
starfandi frá því á haustdögum
árið 2003.
Englakórinn er hópur barna á aldrinum þriggja til sex ára.
Verndum bernskuna
Munum aö
rækta okkur sjálf
Verkefnið Verndum bernskuna
sem hófst í haust er enn í fullum
gangi enda sérstaklega mikilvægt
verkefni. Flestir foreldrar kann-
ast við fallegan bækling sem var
sendur heim og hafði að geyma
tíu heilræði til handa foreldrum
og uppalendum. Heilræði þessa
mánaðar er:
Munum að rækta okkur sjálf.
Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir,
verkefnastjóri Verndum bernsk-
una, segir að verkefnið verði kynnt
fyrstu helgina í janúar, enda sé allt
að fara í gang eftir hátíðarnar. „Við
komum til með að leggja áherslu á
þetta heilræði og það verður meðal
annars gert inn á vefsíðunni www.
verndumbernskuna.is. Við ætlum
að leggja áherslu á að foreldrar hugi
að kollinum á sér, sambandinu og
sjálfum sér og munum meðal ann-
ars benda á samskiptanámskeið
sem verða hjá kirkjunni.“
Foreldrum finnst gott
aðfábankíbakið
Ásta segir að verkefninu hafi verið
tekið mjög vel og foreldrar séu þakk-
látir fyrir heilræðin. „Foreldrar sem
eru að standa sig ágætlega finnst
stundum gott að fá bank i bakið,
þetta virkar helst þannig held ég.
Það er náttúrulega alltaf ákveðinn
hópur sem er erfitt að ná til og við
komum ekki til með að ná til með
svona átaki en við náum kannski til
fólksins sem er að vinna með þeim,
starfsmenn leikskóla, heilbrigðis-
stofnana og svo framvegis.“
svanhvit@bladid.net
'úmsrufWfíHúsio
Tómstundahúsið • Nethyl 2 • S. 587 0600 • www.tomstundahusid
Natalía Chow, kórstjóri.
Natalia, sem er með mastersgráðu
í tónmennt frá Reading háskóla
auk einsöngsprófs og leikur á orgel,
starfaði lengi með barnakórum í
Hong Kong en hún hefur verið bú-
sett hér á landi í þrettán ár. „Þegar
yngri dóttir mín varð þriggja ára
langaði mig til að kenna henni tón-
list en þá vantaði hana hóp til að
vinna með. Hér á landi var enginn
slikur hópur starfandi svo ég sá að
best yrði að stofna kór sem kæmi
á fleiri börnum vel,“ segir Natalía.
kórstarfinu kennir Natalía börn-
unum að anda rétt, að syngja skala
auk þess sem þau læra að lesa nótur.
,Börnin í kórnum eru orðin læs á
nótur áður en þau lesa stafrófið og
þessum börnum farnast mjög vel i
tónmennt í grunnskólunum."
Tónlist, myndir og sögur
I kórastarfinu læra börnin öguð
vinnubrögð og þjálfast í að halda
athyglinni í lengri tíma. Þau læra
að fylgjast með stjórnandanum,
að sitja, standa og syngja á réttum
tíma og þau læra að meta klassíska
tónlist. Natalía spilar ýmsa tónlist
fyrir börnin og sýnir þeim margar
myndir.„Ég sýni þeim margar
myndir og segi þeim sögur og þau
læra að hafa tilfinningu fyrir tón-
listinni og hvað hún segir þeim. Þau
hlusta til dæmis á Pétur og úlfinn og
ýmislegt fleira og þetta gengur mjög
vel. Það eru talsvert agðari vinnu-
brögð í kórnum heldur en börn eiga
að venjast á leikskólum."
Sungið á mörgum tungumálum
I Englakórnum eru börn alls staðar
að af höfuðborgarsvæðinu. „Börnin
koma úr öllum áttum, frá Reykja-
vík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ
og nokkur hafa jafnvel komið frá
Vogum,“ segir Natalía. Efnisval
kórsins er að sjálfsögðu ýmis barna-
lög: „Við syngjum þekkt barnalög
alls staðar að úr heiminum. Aðal-
lega er sungið á íslensku en einnig
læra börnin að syngja lög á frönsku,
þýsku, ensku, spænsku og ég hef
einnig kennt þeim lög á kínversku.
Það gengur mjög vel því börn á
þessum aldri eiga auðvelt með að
læra. Með lögunum læra börnin
hreyfingar og læra að skilja um hvað
þau eru að syngja.“
Englakórnum er skipt í tvo hópa,
byrjendahóp barna á aldrinum
þriggja til fjögurra ára og svo er
eldri hópurinn frá fjögurra til sex
ára. I hvorum hópi eru tuttugu börn.
,Það gengur ekki að vera með færri
börn í kórnum en hámarkið er um
tuttugu og fimm börn. Hingað til
hafa allir komist að sem vilja,“ bætir
Natalía við að lokum.
Foreldrar œfa samhliöa
börnum í Hreyfilandi
Mikilvœgt að fjölskyldan leiki sér saman
BlaÓiÖ/Frikki
Líkamsræktarstöðin Hreyfiland við
Stangarhyl er nokkuð ólík öðrum
slíkum stöðvum. 1 stað dynjandi
bassaslaga og ógrynni sjónvarps-
skjáa er í Hreyfilandi að finna
róandi mjúka liti í innréttingum
og afslappað umhverfi. Hreyfiland
hefur nefnilega að markmiði að
vera fjölskyldu- og barnvæn líkams-
ræktarstöð og því er þar kappkostað
að öll umgjörð. og uppbygging sé
til þess fallin að ungabörnum líði
þar vel. Krisztina G. Agueda rekur
Hreyfiland og hefur gert frá árinu
2003. „Við höfum hér reynt að búa
til öruggt og afslappað umhverfi þar
sem foreldrar og börn geta átt góðar
stundir saman, leikið sér og haft
gaman. Hér er allt mjúkt og bólstrað
og við höfum nóg af leikföngum og
alla aðstöðu sem ungabörn þurfa,“
segir Krisztina, sem er ungversk að
uppruna en hefur búið hér á landi
síðustu sex árin.
í Hreyfilandi er sem sagt lögð
áhersla á að þjónusta fjölskyldur
og verðandi mæður og boðið upp á
ýmis námskeið í því skyni. Mæðra-
fimi, meðgöngujóga og bumbufimi
eru meðal þess sem í boði er fyrir
mæðurnar, en börnin geta sótt svo-
kallaða snillingafimi, hreyfifimi þá
eða grunnþjálfun, allt eftir aldri og
aðstæðum. Börnin eru ekki geymd í
sjónvarpsherbergjum meðan foreldr-
arnir iðka líkamsþjálfun, heldur eru
þau með í herberginu og taka jafnvel
virkan þátt í því sem fram fer. Dæmi
má taka af mæðrafiminni, en í henni
stunda nýbakaðar mæður sérsniðna
leikfimi meðan börnin jafnvel sofa
til hliðanna. Því má sjá að ekki er
fyrir látunum að fara.
„Eldri krakkarnir æfa svo með
foreldrum sínum. Þau hlaupa um,
syngja, dansa og fara í kollhnís.
Samt er þetta fullgild likamsþjálfun
sem tekur á og skilar árangri. Hvað
krakkana varðar er miðað við að
örva eðlilegan hreyfiþroska þeirra,
rúmskyn og málþroska, vekja með
þeim ákveðna likamsvitund. Það
er mikilvægt á þessum timum að
fjölskyldan verji tíma saman og
viðskiptavinir okkar virðast vera
á sama máli,“ segir Krisztina, en á
hreyfiland.is má fræðast nánar um
starfsemi stöðvarinnar.