blaðið - 05.01.2006, Side 20
20 I MATUR
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 blaöið
ONDVEGIS
ELDHÚS
RAGGA ÓMARS,
MATREIÐSLUMEISTARA
Gleðilegt ár
allir saman
Þá ættu flestir að vera búnir að fá
nóg af þungum, reyktum og matar-
miklum steikum og er þá tilvalið
að fara að skella sér á góða fiski- og
grænmetisrétti. Nú fara allir í átak
og eru með hin ýmsu áform og ég
veit um marga sem ætla að breyta
mataræðinu hjá sér á nýju ári, alla-
vega svona fyrstu mánuðina. En það
er bara gott mál og er ég þar engin
undantekning en ég ætla einmitt að
taka mig aðeins á, enda orðinn vel
þéttur!
Það er nú margt sem hægt er að
gera í breytingum í matargerðinni
til að gera hana mun heilsusamlegri
en þar sem ég er nú engin næringa-
fræðingur eða heilsugúru þá borgar
sig nú að leita til slíkra sérfræðinga
með einhverjar súperlausnir. En
það sem ég ætla að gera fyrir sjálfan
mig er að „REYNA“ að minnka
smjörið, rjómann og allt feitt kjöt.
Hugmyndin er að draga verulega úr
neyslu á hvitu hveiti en þá virðast
allar samlokurnar, pizzurnar, ham-
borgararnir og allt það sem maður
étur alla daga hverfa og maður hefur
það á tilfinningunni að maður sé að
fara í matareinangrun hjá megrunar-
lögguni. En þetta á vist ekki að þurfa
að vera svona slæmt segja þeir sem
reynsluna hafa. Ég fór því aðeins að
spá í hvað mér finnst gott sem ekki
inniheldur mikið af því sem var talið
hérna upp að ofan og þá dettur mér
Sœt og liúffeng
hollusta
Það sem einkennir byrjun hvers
árs er jafnan hollustan og loforð
um breytt líferni. Flestir lofa
sjálfum sér breyttum siðum um
áramót, minna át, meiri hreyf-
ing, ekkert snakk, skyndibiti
eða önnur óhollusta. Skyndibita-
staðir og samlokuframleiðendur
finna fyrir samdrætti í sölu en
grænmeti og ávextir detta sífellt
oftar ofan í innkaupakörfur land-
ans. Líkamsræktarstöðvar fyllast
og vart er hægt að stíga niður
fæti þar í janúar og febrúar. Þetta
breytta hugarfar helst jafnan í
örfáa mánuði en þegar sumra
tekur fellur fólk í gamlar gildrur.
Blaðið styður hollustu heils hugar
og fann til nokkra mola um
hvernig megi borða hollt.
• Hugarfarið skiptir öllu máli. Oft
erum við búin að ákveða að allt
hollt sé vont og það er erfitt að
breyta slíkum hugsunarhætti.
Eins heyrist oft að fólk fái leið á að
borða hollt endalaust en af hverju
ætti það þá ekki líka að fá leið á
öllu hamborgurunum, pizzunum
og brauðmetinu. Ef fólk leggur sig
fram þá er í raun einfaldara að
hafa fjölbreyttan matseðil ef ein-
blínt er á hollan mat í stað óholls.
Hugsaðu um hvað þér á eftir að
líða betur og hvað kílóin eiga
eftir að fjúka eftir nokkrar vikur.
Slepptu neikvæðum hugsunum,
þær draga þig bara niður.
• Slepptu alveg hvítum sykri. Blóð-
sykurinn fer upp úr öllu valdi og
það er erfitt að halda honum í
jafnvægi út daginn. Smá hvítur
sykur kallar á meiri hvítan sykur
og áður en þú veist af er hollustan
flogin út um gluggann.
• Ef þú ert að elda eftir uppskriftum
þá er oft einfalt að breyta þeim
þannig að þær verði mun hollari.
Settu til dæmis sýrðan rjóma í
staðinn fyrir majónes, vatn í stað
mjólkur, sætuefni i stað sykurs,
rjómadropa í stað raunverulegs
rjóma og svo framvegis. Mögu-
leikarnir eru óendanlegir, notaðu
ímyndunaraflið.
• Gamlalummanumaðaukaneyslu
ávaxta og grænmetis stendur
alltaf fyrir sínu en það er óþarfi að
einblína bara á appelsínur og epli.
Grænmetisborð verslana er mjög
í hug hellingur af fiski og skelfiski
með einhverjum olíu-ediksósum og
fullt af grænmeti með hvítlauk og
kryddjurtum. Allt í lagi, kannski
aðeins meiri vinna heldur en að
setja samloku í grillið eða panta
pizzuna en ég held að það gæti bara
verið nokkuð krefjandi áskorun. Ég
ætla því að láta fylga með uppskrift
af einni af mínum uppáhaldssósum
með fiski eða grænmeti en í raun er
ekkert mál að útbúa hana. Ég ber
hana fram með ofnbökuðum þorsk-
hnakka þar sem ég bara roð- og bein-
hreinsa fiskinn, velti honum upp
úr ólífuolíu og krydda með salti og
pipar, einum krömdum hvítlauks-
geira og smá safa úr sítrónu. Þorsk-
urinn er þá settur inn í 200 gráðu
heitan ofn í u.þ.b. 14 mínútur eða
þar til hann losnar í flögur þegar
maður ýtir ofan á hann.
Grænmetis- og möndlusósa
2 msk möndluflögur (ristaðar á þurri
pönnu þar til þær verða Ijósbrúnar)
1 stk hvítlauksgeiri
2 dl ólífuolia
1 stk rauð paprika skorin f litla bita
2 stk tómatar skornir f iitla bita
1 mskkapers
2 msk rauðvfnsedik
1 msk söxuð steinselja
safi úr hálfri sítrónu
salt og pipar
Maukið möndlurnar, hvítlaukinn og
ólífuolíuna vel saman með rafmagns-
blandara. Síðan er öllu blandað vel
saman og smakkað til með salti og
pipar, látið standa í lágmark klukku-
stund fýrir notkun.
Kveðja, Raggi
i
Kaffi mánaðarins
Janúar-2006
fjölbreytilegt og það er til enda-
laust af framandi ávöxtum. Það
ætti því að vera lítið mál að breyta
sífellt til og njóta hvers dags sem
er fullur af nýjungum.
• Margir sem hafa vanið sig á að
borða sætindi á kvöldin eiga erfitt
með að venja sig af því þegar nýir
lífshættir taka við. Góðu fréttirnar
eru að það er hægt að fá sér góð-
meti á kvöldin sem er samt hollt.
Settu alls kyns ber, létt-vanillujóg-
úrt og sætuefni í blandarann og
úr verður dýrindis ábætir. Skerðu
epli í þita, settu í eldfast mót með
fullt af kanil og hitaðu upp. Borð-
ist heitt með sýrðum rjóma. Svo er
meira segja hægt að kaupa ísvél og
búa sér til hollan ís á hverju kvöldi,
jafnvel með heitri súkkulaðisósu.
Það er allt hægt ef viljinn er fyrir
hendi, meira að segja að borða
sæta og ljúffenga hollustu.
• Slepptu öllu kryddi með MSG og
hinum og þessum E-efnum.
svanhvit@bladid.net
Kenya AA
Extra Fancy
Kaffihús:
Laugavegi 24
Smáralind
Verslanir:
Kringlunni
Smáralind
Laugavegi 27
Suðurveri
Kenya kaffi er næstum allt ræktað í
1500 - 2100 m hæð. Kaffiiðnaðurinn í
Kenya er tekinn mjög alvarlega og
bannað er með lögum að
eyðileggja kaffitré. Ein allra
besta kaffitegundin í
Kenya er AA Extra
r- u H. í r