blaðið - 05.01.2006, Síða 33
blaðiö FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006
MENNING I 33
Vetrardrottningin er falleg og skrautbúin
og heimsækir Rússa um jól.
Rússneskt
jólaball i
janúar
Dagskrá vetrarstarfs MÍR, félags
um menningartengsl Islands og
Rússlands, hefst með jólaballi
næstkomandi laugardag í nýju
húsnæði félagsins að Hverfisgötu
105. Söfnuður rússnesku rétttrúnað-
arkirkjunnar býður hinum ramm-
rússneska jólasveini, Frosta afa, og
Snædrottningunni í heimsókn og
dansað verður í kringum jólatré
við undirleik harmonikku. Einnig
verða dansaðir þjóðdansar og sýnd
skemmtiatriði auk þess sem boðið
verður upp á kaffiveitingar.
Frosti og Vetrardrottningin eiga
uppruna sinn að rekja til þjóðsagn-
ararfs Rússa en þau skötuhjúin
koma frá túndrunum í Norður Síb-
eríu. Þetta er fallegt og skrautbúið
fólk sem færir góðum börnum
gjafir líkt og sveinar þeir sem við
Islendingar kennum við jólin. „Á
samkomuna kemur einnig prestur
frá rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unni sem hefur dvalist hér á annað
ár til að þjóna þessum söfnuði hér
á landi sem telur á milli 200-300
manns,“ segir Haukur Hauksson,
félagsmaður í MlR. Hann segir rúss-
nesku rétttrúnaðarkirkjuna hafa
eflst mjög eftir fall kommúnismans
í Austur-Evrópu og það hafi styrkt
menningarsamskipti á milli Islands
og Rússlands.
Á öðrum tíma
Rétttrúnaðarkirkjan er sterkasta
kirkjudeildin í Rússlandi, Úkraínu,
Búlgaríu, Serbíu, Grikklandi og víðar
og eru jólin þeirra helsta trúarhátíð.
Rétttrúnaðarkirkjan fer eftir júlí-
anska tímatalinu en það er tveimur
vikum á eftir gregoríanska tímatal-
inu, sem er það tímatal sem flestar
vestrænar þjóðir miða við í dag. Það
dagatal byggir þó á júlíanska tíma-
talinu sem kennt er við Júlíus Sesar.
Júlíusar tímatalið má rekja til árs-
ins 50 fyrir fæðingu Krists. Júlíus
Sesar bað prest um að hanna nýtt
tímatal vegna þess að tímatal þess
tíma þótti ónákvæmt en það var 11
mínútum og 14 sekúndum of langt.
Þetta samsvaraði einum aukadegi
á 128 ára fresti. Þessi mismunur var
jafnaður út á 16. öld þegar páfinn
Gregor þrettándi gerði rannsókn á
þessum mismun og kom í kjölfarið
með það tímatal sem við þekkjum
í dag en skekkjan sem þá var orðin
var leiðrétt með ólíkum hætti eftir
löndum. Þetta er ein af ástæðum
þess að nýtt ár ber upp á ólíkum
tíma eftir kirkjudeildum.
Frosti afi ergreini-
lega skyldmenni
íslensku jólasvein-
anna þó ættaður sé
frá Síberíu.
I SKJÁRE//VA/ I á fimmtudögum fim
Fimmtudagskvöld eru pottþétt sjónvarpskvöld á SKJÁEINUM. Family Guy kl. 20.00 King of Queens kl. 21.30 Malcolm in the Middle kl. 20.30 House kl, 22.00 Will & Grace kl. 21.00 Sex inspectors kl. 22.50 ®