blaðið - 07.01.2006, Side 20
20 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006 blaðið
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
lif Lindu
Nýtt
„Þessa dagana er ég upptekin við
að vera mamma. Það er stórkost-
legt hlutverk sem tekur allan
daginn. Svo hanna ég auglýs-
ingar fyrir fyrirtækið meðan ísa-
bella sefur,“ segir Linda Péturs-
dóttir. Fyrirtækið er Iceland Spa
& Fitness (Baðhúsið) sem Linda
rekur ásamt foreldrum sínum og
bræðrum. Baðhúsið var stofnað
1994 og er stærsta líkamsræktar-
stöðin á markaðnum með fimm
stöðvar. „Fyrirtækið er lífs-
viðurværi okkar í fjölskyldunni
og við höfum byggt það upp í
sameiningu. Það er gott að hafa
fyrirtæki innan fjöiskyldunnar
þegar maður er einstæð móðir.
Ég get ráðið vinmtíma mí num
og hef þess vegna meiri frelsi og
val en ég annars befði.
Við fjölskyldan erum mjög náin,
bæði vinnum við saman og eyðum
frístundum saman. Ég verð æ
meiri fjölskyldumanneskja með
hverju árinu. Ef ég hefði verið
spurð að því hér áður fyrr hvað
skipti mig máli hefði ég sett fram-
ann í fyrsta sæti, síðan það að vera
falleg og grönn og í þriðja sæti
hefðu verið peningar. Nú er þetta
allt orðið að aukaatriði. 1 fyrsta
sæti set ég fjölskyldu og vini og
þar er Ísabelía, dóttir mín, fremst
allra, eins og þarf ekki að taka
fram. Svo skiptir námið mig miklu.
Ég lærði grafíska hönnun í Banda-
ríkjunum og er að byrja í fjarnámi
í háskóla í San Fransisco og ætla
að taka próf í auglýsingagerð.
Þetta nám fer fram í gegnum tölv-
una. Mér finnst ákaflega gaman
að læra og vona að ég eigi eftir að
halda áfram að bæta við þekking-
una. Ég hef til dæmis áhuga á að
læra einhvern tímann guðfræði og
trúarbragðasögu. Ég hafði ætlað
mér að fara aftur til Kanada en
fsabella breytti þeirri áætlun. Hún
hefur fcrgang í lífi mínu og ég tími
ekki að fcaka hana frá afa og ömmu
og frændsystkinum."
Hvernig barn erlsabella?
„Hún er einstaklega glöð
fjögurra mánaða stúlka, brosir og
hlær meira og minna allan dag-
inn en er ákveðin eins og mamma
hennar. Ég hef aldrei elskað neinn
eins og ég elska ísabellu. Það er
ekki hægt að líkja þeirri ást saman
við nokkrar tilfinningar sem ég
hef áður borið. Ég hélt alltaf að
ég væri óþolinmóð manneskja en
þegar fsabella er annars vegar þá á
ég alla þolinmæði heimsins.“
Tilhneiging til hrekkleysis
Nú rekurðu fyrirtæki, skipta pen-
ingar þig máli?
„Já, þeir skipta máfi að því leyti
að ég þarf að eiga fyrir nauð-
synjum og vil ekki þurfa að hafa
peningaáhyggjur. En peningar eru
ekki takmark í sjálfu sér. Ég hef
kynnst mörgu fólki sem lætur pen-
inga stjórna lífi sínu og á það eina
takmark að eignast meira af þeim.
Sumt af þessu fólki er hamingju-
samt og þá helst þeir sem hafa
fæðst inn í auðugar fjölskyldur
og þekkja ekkert annað líf. Ég get
ímyndað mér að það séu meiri við-
brigði og ekki auðvelt að höndla
það að verða skyndilega ríkur, en
ég þekki það ekki af eigin raun.“
Nú ertu fyrrum alheimsfegurðar-
drottning. Þú hlýtur að verða vör
við að fólk mælir þig út og mátar
þig við þá imynd sem það hefur af
fegurðardís.
„Ég er hætt að taka eftir þessu,
Mamma mín gerir það hins vegar.
Á dögununum sat ég á biðstofu hjá
lækni með dóttur mína í fanginu.
Ég tók ekki eftir því en þarna var
kona sem starði stöðugt á mig og
mældi mig út. Mömmu ofbauð svo
og fannst þetta slík ókurteisi að
hún fór að horfa hvasst á konuna
99
Ég hefkynnst því að lífið er ekki alltafdans á rósum en ég heflíka
kynnstþví hvað lífið getur verið dásamlegt og núna er ég að upp-
lifa þessa óendanlegu ást sem ég ber til dóttur minnar."