blaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 blaöiö
MdHor
Borgaryfirvöld sögð hafa
sniðgengið Smáragarð
Smáragarður fékk ekki að sitja við sama borð og Bauhaus vegna
lóðaúthlutana við Úlfarsfell, að mati framkvœmdastjórans
Smáragarður, eignarhaldsfélag
Byko, og þýska byggingavöruversl-
unin Bauhaus vilja bæði fá að byggja
verslun við Úlfarsfell. Skipulagsráð
fundaði um málið í gær og var emb-
ættismönnum gert að gera úttekt á
umsókn Bauhaus en málið verður
síðan lagt fyrir borgarráð í næstu
viku.
Formsatriði að umsókn
verði samþykkt
Samkvæmt heimildum Blaðsins er
það nánast formsatriði að umsókn
Bauhaus verði samþykkt á fundi
borgaráðs í næstu viku.
Eins og fram kom í Blaðinu í gær
sótti Smáragarður, fasteignafélag
Byko, um sömu lóð og þýska bygg-
ingavörufyrirtækið Bauhaus í landi
Úlfarsfells við Vesturlandsveg. Um-
sókn Smáragarðs barst borgaryfir-
völdum skömmu eftir að tilkynnt
hafði verið um lóðaumsókn Bau-
haus í fjölmiðlum. Bauhaus hefur
a.m.k. um tveggja ára skeið verið
að leita að lóðum fyrir verslunar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
m.a. í Kópavogi og Garðabæ en án
árangurs.
Upp hafa komið raddir um að
umsókn Smáragarðs væri mögulega
leikur af þeirra hálfu til að útiloka að
erlendur samkeppnisaðili næði að
skjóta hér rótum. Dagur B. Eggerts-
son sagði t.a.m. í viðtali við Blaðið í
gær að það væri hagur neytenda að
pólitík væri haldið fyrir utan málið
og vísaði til árangurslausra tilrauna
Irving Oil á sínum tíma til að fá lóðir
í Reykjavík.
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna, að
oft virðist vera fyrir hendi tregðu-
lögmál þegar erlend fyrirtæki vilja
koma hingað til lands. Vísar hann
þá bæði til tilrauna Irving Oil sem
og Bauhaus til að fá lóðir á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá segir Jóhannes
að mikil ábyrgð hvíli á höndum
Reykjavíkurborgar og sveitarfélaga
að tryggja sem mesta samkeppni
á byggingavörumarkaði með rétt-
látum lóðaúthlutunum.
Ekki gert til að koma í
veg fyrir samkeppni
Guðmundur Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Smáragarðs, segir
lóðaumsókn þeirra alls ekki vera
til þess gerða að koma í veg fyrir
að Bauhaus nái fótfestu hér á landi.
„Við höfum í fjölda ára reyna að fá
lóð þarna austan við Vesturlandsveg-
inn. Okkur hefur alltaf verið tjáð að
þarna kæmi ekki starfsemi af þessu
tagi.“
Guðmundur segist hafa verið
hissa þegar hann frétti af því í fjöl-
miðlum að Bauhaus hefði lagt fram
umsókn um lóðina og telur borgina
hafa sniðgengið Smáragarð í þessu
máli. í kjölfarið sendi hann borgar-
yfirvöldum bréf þar sem óskað var
eftir viðræðum. „Við höfum í fjölda
ára reynt að fá lóðir í Reykjavík fyrir
Byko. Við höfum margoft sýnt áhuga
á þessari lóð en okkur alltaf tjáð að
þarna væri áætlað pláss fyrir annars
konar starfsemi. Þetta kom okkur
þvi {opna skjöldu. Við höfum ekkert
á móti samkeppni en menn verða að
fá að sitja við sama borð.“
Engin„krísa"
I gær var það haft eftir Kristjáni
Gunnarssyni, formanni SGS hér í
Blaðinu að hann óttaðist að þessi
mikli launamunur gæti haft þær af-
leiðingar að fólk segði upp hjá ríkinu
og flytti sig yfir í betur launuð, en
sambærileg störf hjá sveitarfélög-
unum. Að sögn Odds Gunnarssonar,
lögfræðings á skrifstofu starfs-
mannamála hjá LSH hefur sú þróun
ekki hafist.
„Eins og staðan er í dag þá erum
við fullmönnuð, en ég segi það þó
með þeim fyrirvara að starfsmanna-
skrifstofan er miðlæg og það eru
millistjórnendurnir sem hafa þetta
fólk hjá sér. Ef það væri hinsvegar
komin upp einhver „krísa“ eða alvar-
legur skortur þá hefðum við heyrt af
því“, segir Oddur.
Borgum eftir samningum
Oddur segir ennfremur að kjara-
samningurinn við Reykjavíkur-
m m J* ■ m m a J* BlaÖiO/Steinar Hiu
Sundferðinm frestað
Árni Áskelsson sjósundgarpur, virti fyrir sér aðstæður til sjóbaða í frostinu (gær. Hann giskaði á að hitastig sjávar væri í kringum eina
gráðu og afréð hann að láta sundferðina bíða betri tíma.
Jarðgöng úr
sögunni
AKostnaður við
gerð jarðganga
milli lands og
Vestmannaeyja
mun nema á
Jarðgöng milli bilinu 70 til
lands og Eyja 100 milljörðum
myndu kosta 70 króna. Þetta
til 100 milljarða. er mat sérfræð-
inga sem unnu kostnaðaráætlun
um verkið fyrir vegagerðina. I
skýrslunni kemur fram að ef
göngin yrðu boruð með jarð-
gangaborvél gæti heildarkostn-
aður numið um 70 milljörðum
króna. Ef tvenn samsíða göng
yrðu boruð, sem nefndur hefur
verið sem vænlegur kostur af
öryggissjónarmiðum, myndi
kostnaðurinn hinsvegar nema
um 100 milljörðum króna.
Áætlanir Áma mun ódýrari
í gær var haldinn fundur í
samgöngunefnd þar sem nið-
urstöður skýrslunnar voru
kynntar. Niðurstaða fundar-
ins var að miðað við áætlaðan
kostnað séu jarðgöng ekki inni í
myndinni sem framtíðarkostur
vegna mikils kostnaðar. Sam-
göngunefnd mun hinsvegar hitt-
ast í næstu viku þegar möguleiki
á ferjuhöfn í Bakkafjöru verður
ræddur.
Undanfarin misseri hefur
mikið verið rætt um möguleika
á jarðgöngum milli lands og
Eyja. Þar hefur Árni Johnsen,
fyrrverandi alþingismaður, haft
sig mest í frammi. Þær kostnað-
aráætlanir sem hann hefur lagt
fram eru mjög á skjön við ofan-
greinda áætlun, því þar var gert
ráð fyrir því að göng muni ekki
kosta nema rúma 15 milljarða.
Fá þrjátíu þúsund kr. lægri
laun fyrir sambærilegt starf
Starfsmenn hjá ríkinu njóta nú mun lakari kjara en starfsmenn sveitarfélaganna.
Munurinn á grunnlaunum nemur í sumum tilfellum tugum þúsunda króna.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar Starfsmenn LSH
Starfsheiti Laun I Starfsheiti Laun
Starfsmaður við umönnun 134.599 Starfsmaður f umönnun 104.415
Félagsliði við umönnun 149.385 | Félagsliði - LSH 140.632
Grunnlaun starfsmanns í umönnun
hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi
(LSH) nema i dag rúmum 104.400
krónum. Á sama tíma fá starfsmenn
sem vinna við umönnum hjá Reykja-
víkurborg tæplega 134.600 krónur í
grunnlaun. Munurin nemur þannig
rúmum 30.000 krónum á mánuði.
Þetta kemur fram í samanburðar-
tölum sem Starfsgreinasamband Is-
lands (SGS) sendi frá sér í gær. Með
tölunum vill sambandið ýta á kröfur
sínar um að laun starfsmanna hjá
ríkinu verði hækkuð.
borg, þar sem laun þessa hóps voru
hækkuð, sé það nýr að hjá LSH hafi
ekki skapast tækifæri til að fara yfir
málið.
„Mér sýnist að við þurfum að fara
yfir þessar tölur áður en við mótum
okkur skoðun á því hvað gerist í
framhaldinu. Það er hinsvegar mið-
lægur samningur í gangi með gild-
andi launatöflum. Við munum fara
eftir þeim samningi meðan hann er
í gildi. Ef laun eru hækkuð þá þarf
að koma til aukafjármagn frá rík-
inu“, segir Oddur.
Hann óttast hinsvegar ekki að
flótti bresti á meðal starfsmanna
ríkisins.
„Þrátt fyrir að laun hafi hækkað
þá hefur störfunum ekkert fjölgað.
Þetta myndi hafa áhrif ef það væri
áþreifanlegur skortur á vinnuafli
á báðum stöðum en svo er ekki.
Tíminn verður hinsvegar að leiða í
ljós hvort okkar besta fólk eigi eftir
að kjósa að flytja sig yfir. Sú hætta
er auðvitað alltaf fyrir hendi,“ segir
Oddur að lokum.
H ÚSGAGNA
Bæjarlind 14-16, Kópavogi
LINDIN
10.000 MÖGULEIKAR - fyrirfólkmeð
sjálfstæðan smekk
Þú velur sófa
Þú velur stól
Þú velur áklæði
Þú velur lit
Þú hannar
Bara gaman
Xavira Sessalong + 3 púðar
Áklæði frá kr 48.000
Leður frá kr 77.000
Cube sófasett 2.5+1+1+4 púðar
Áklæði frá kr 104.000
Leður frá kr 172.000