blaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 16
16 I PYRIR KONUR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 blaöiö
Útlitið er ekki allt
Það er ekki sá blettur á kvenlík-
amanum sem ekki er búið að
skilgreina eftir kúnstarinnar
reglum með því markmiðið að
hann gleðji augað: Hár, augu, nef,
kinnar, eyru, varir, haka, háls,
brjóst, magi, rass, læri, kálfar,
tær... Ekkert sleppur! Það eru til
sérhæfð krem, tæki og tól, snyrti-
vörur og jafnvel lýtaaðgerðir fyrir
hvern einasta blett kvenlíkamans.
Ekkert er óhult. Hár mega vera
hér en ekki þarna, þetta á að vera
stórt en hitt lítið, allt á alltaf að
vera mjúkt og vellyktandi en fáir
hugsa út í að vitaskuld þarf að
hafa fyrir þessu öllu.
Þú þarft ekkert að taka þátt í þess-
ari vitleysu. í nútímasamfélagi þar
sem allt gengur meira eða minna út
á sölumennsku er nauðsynlegt að
fólk dragi mörk og ákveði hvar það
ætlar að láta gott heita. Það er ekki
nokkur leið að ætla sér að taka þátt
í eða fylgjast með öllu sem gerist í
útlitsheimum og þú verður ekkert
betur sett með því. Vissulega er það
nauðsynlegt geðheilsunni að lifa
í sátt við sjálfa sig en sú sátt fæst
ekki keypt með kremum og nýjum
snyrtivörum.
Opið til kl 16 á laugardaginn
www.stilistinn.is aa stilistinn
Sunnumörk, Hveragerði Sími 483-4121
Ekki eltast við tískuna
Tískan getur verið leiðinda-
skepna sem erfitt er að eltast
við. Hún tekur stöðugum breyt-
ingum og það er alls ekkert víst
að það sem er í tísku þessa dagana
komi vel út þegar þú smellir þér í
það. Allar fáum við úthlutað genum
frá forfeðrum okkar og þessi gen
ákvarða m.a. útlitið. Þegar þröngar
gallabuxur koma allt í einu í tísku er
ekkert víst að þær fari þér vel frekar
en ömmu þinni. Kannski ertu með
mjúkan mallakút sem reynir enda-
laust að steypa sér fram yfir buxna-
strenginn og það er ekki smart. Er
það nokkuð?
M wfe ..
2Hver ert þú?
Reyndu að klæðast fötum
sem draga fram kosti þína.
Allar konur hafa eitthvað við sig
sem þær eru sáttar við og því um
að gera að draga athyglina að því en
ekki að hinu sem maður vill síður
að sé áberandi. Til að komast að því
hvað fer þér best má leita ráða hjá
konum sem eru sérhæfðar á þessu
sviði eða skoða bækur um þessi
mál. Til dæmis bókina Hverju á
ekki að klœðast en þar kenna skutl-
urnar Trinny og Susannah konum
á öllum aldri og af öllum stærðum
og gerðum hvernig best er að klæða
sig út frá því hvernig líkaminn var
skapaður.
3Veldu klassík
Þegar þú ert búin að kom-
ast að því hvað fer þér vel
skaltu gera þér far um að kaupa föt
sem eru vönduð, úr góðum efnum
og óháð tískustraumum. Möguleik-
arnir eru óendanlegir vegna þess
að sumt hættir hreinlega aldrei að
þykja fínt. Albert Einstein átti til
dæmis bara tvenn jakkaföt. Þegar
önnur voru í hreinsun þá fór hann í
hin og þurfti hreinlega ekkert að spá
í þessi mál. Enda hafði Einstein tíma
til að spá í afstæðiskenninguna og
hvernig hefði hann átt að gera það ef
hann hefði alltaf verið að hugsa um
í hvaða bol hann ætti að fara?
Ekki hafa þig á heilanum
Flest erum við rosalega
sjálfmiðuð. Þó að þú hafir
áhyggjur af því hvað öðrum finnst
um þig máttu vera viss um að fólk
er ekki að velta sér upp úr útlits-
göllum þínum daginn út og inn. Það
situr enginn með hönd undir kinn
og pælir í því hvað þú ert með svera
kálfa. Þú getur verið alveg viss um
það.
511ir eru óöruggir
Óöryggi er hluti af mann-
legu eðli. Sumir halda því
fram að óöryggi hafi verið ástæða
þess að við „sköpuðum Guð“, svona
til að passa upp á okkur. Sama
hversu falleg fyrirsætan er þá
máttu vera viss um að hún er með
einhverja „komplexa“. Því fyrr sem
þessi staðreynd er tekin í sátt þvi
betra. Við erum öll á sama skipinu
og ef óöryggið er sett á vogarskál-
arnar þá eru sætustu stelpurnar
oftar en ekki óöruggastar.
CAFIADESSO
2. hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn
SALAT
hollt og gott í
hádeginu
komdu og smakkaðu!
opið virka daga 10.00-19.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
Sími 544 2332
www.adesso.is
6Demantar eru eilífir, ekki
þú—
Öll eigum við eftir að
krumpast eins og þæfðar peysur í
þurrkara eftir því sem árin færast
yfir. Þetta er algerlega óumflýjan-
legt lögmál, sama hvað allar lýta-
aðgerðir og töfralausnir tauta og
raula. Sumt fólk reynir að sporna
við þessu með því að fara í andlits-
lyftingu, en það gerir ástandið ekk-
ert betra. Þá er krumpaða húðin
bara strekkt aftur og þannig ertu
komin með krumpaða, strekkta
húð sem er í hæsta máta óeðlilegt.
Ekki stressa þig yfir því að þú munt
eldast. Það er eins og að reyna að
flýja eigin skugga. Ómögulegt.
Hreyfðu þig
Þessi orð hljóma eflaust
eins og gatslitin, rispuð plata
í eyrum margra, en málið er bara
það að við verðum einfaldlega að
hreyfa okkur. Eitt sinn þótti það
hvíld að fá að sitja allan daginn.
Munaður sem fáum veittist öðrum
en fógetum og bankastjórum. Hinir
þurftu að vera á stanslausu iði dag-
inn út og inn. Svo var borðað eftir
klukkunni en ekki tilfinningu.
Svona er þetta einfaldlega ekki
lengur og þess vegna verðum við
bara að hreyfa okkur. Hreyfing
skapar vellíðan á svo margan hátt
og það að útlitið batni er aukaatriði
miðað við þau góðu áhrif sem það
hefur á innri manninn að hreyfa
sig. Ef þú hreyfir þig þá verður þú
ósjálfrátt sáttari við sjálfa þig og
þar með hugsarðu minna um út-
litið og meira um eitthvað annað.
8Taktu til í fataskápnum
Eftir að þú ert búin að eign-
ast föt sem þú getur verið
viss um að fari þér vel skaltu losa
fataskápinn við óþarfa spjarir sem
taka bara pláss,
og orku
þér. Gefðu
þetta í
R a u ð a
krossinn
og sláðu
tvær flugur
í einu
Þú verður bæði
sæt - og góð!