blaðið - 09.02.2006, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Ræninginn
enn ófundinn
Þó nokkrar ábendingar hafa borist
lögreglunni vegna ránsins í síðustu
viku þegar maður stal 93 þúsund
krónum í afgreiðslu Happdrættis
Háskólans við Tjarnargötu.
Eins og fram hefur komið ákvað
lögreglan að birta myndir af ráninu
úr eftirlitskerfi afgreiðslunnar
og óskaði í kjölfarið eftir því að
allir þeir sem gætu gefið frekari
upplýsingar gæfu sig fram. Að
sögn lögreglunnar í Reykjavík er
máUð enn í rannsókn en verið
er að vinna úr þeim vísbend-
ingum sem henni hafa borist.
Máli prests
vísað frá dómi
mbl.is | Héraðsdómur Reykjaness
hefur vísað frá máli sem sr. Hans
Markús Hafsteinsson höfðaði
á hendur Matthíasi Guðmundi
Péturssyni, Arthur Knut Farestveit,
Friðriki Hjartar og Nönnu Guðrúnu
Zoéga til ógildingar á úrskurði áfrýj-
unarnefndar þjóðkirkjunnar um
tilflutning sr. Hans Markúsar í starfi.
Jafnframt var sr. Hans Markús
Hafsteinsson dæmdur tU þess að
greiða hinum fjórum stefndu máls-
kostnað að fjárhæð kr. 460.000.
„Þjófsaugu er ekki að
finna í mínum ættum"
Magnús Þór Hafsteinsson líkir frumvarpi Marðar Árnasonar við
hugverkastuld. Stormur í vatnsglasi, segir Ingibjörg Sólrún
Þingmenn allra flokka á Alþingi,
utan Samfylkingarinnar fóru í
pontu í gær og gagnrýndu framlagt
frumvarp Marðar Árnasonar og
fimm annara þingmanna Samfylk-
ingar um breytingu á fjarskipta-
lögum. Breytingin snýr að því að
flutningsskylda fjölmiðils verði
lögfest. Með því verði tryggt að
rekstur fjölmiðils og dreifiveitu
blandist ekki saman. Að mati þing-
manna hinna flokkanna setur
frumvarpið þá sátt sem þeir töldu
að náðst hefði um fjölmiðlalög, í
uppnám. Magnús Þór Hafsteinsson,
þingmaður Frjálslyndaflokksins,
var einn þeirra sem lýsti yfir
undrun sinni með þetta útspil Sam-
fylkingarinnar. Hann er einn þeirra
fimm þingmanna sem ætlað er að
aðstoða lögfræðinga við að semja ný
fjölmiðlalög.
Hugverkastuldur
„Þetta er óafsakanlegt frumhlaup
hjá Samfylkingunni,“ segir Magnús
sem segist fyrst hafa orðið mjög
reiður þegar hann frétti af frum-
varpi Marðar, „en nú er ég eiginlega
bara leiður yfir því að þau skyldu
gera þetta. Þetta er svo mikill
óþarfi. Þessi vinna er í mjög góðum
farvegi. Við héldum okkar fyrsta
fund á þriðjudaginn með lögfræð-
ingunum þar sem allir þingmenn
ráðgjafahópsins mættu, fyrir utan
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur."
Magnús segir vinnu vera komna
í fullan gang 1
við að smíða
þau laga-
frumvörp
sem þarf, til
aðhægtverði
að uppfylla
þau skilyrði
semsettvoru
fram í nið-
urstöðu fjöl-
miðlanefnd-
a r i n n a r . Magnús Þór Hafsteinsson
, S v o n a
vinnubrögð flýta ekkert fyrir þessu
ferli. Næsti fundur hópsins er á
föstudaginn og þar ætluðum við
einmitt að ræða akkúrat þetta atriði
um dreifiskylduna. Síðan kemur
þetta frumvarp eins og skrattinn úr
sauðaleggnum.“ Magnús sakar Sam-
fylkinguna um að vera að stela bestu
bitunum úr fyrirhuguðum lögum
svo flokkurinn geti eignað sér þá.
„Það má Hkja þessu við hugverka-
stuld. Þetta er svo lágkúrulegt að
maður verður eiginlega kjaftstopp.
Ég skoraði á Ingibjörgu að stíga í
pontu og tjá sína afstöðu, en hún sat
bara glottandi úti í sal.“
Sárnaði aðdróttanir
Mörður Árnason segir það hafa
komið sér á óvart að þingmenn hafi
mógðast yfir þessu frumvarpi. „Ég
hef fullan rétt, bæði formlegan og
siðferðilegan til þess að flytja þetta
frumvarp. „Mér finnst lítil ástæða
vera fyrir
þeim fúk-
yrðum sem
þarna féllu.
Sérstaklega
sárnaði mér
aðdróttanir
um ein-
hvers konar
þ j ó f n a ð ,
því að þjófs-
augu er ekki
að finna
í mínum
ættum.“
Mörður segir mikilvægt að vekja
athygli á þessu máli og því hafi frum-
varpið verið lagt fram. „Það virðist
nú hafa tekist ágætlega.“
Stormur í vatnsglasi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir
þetta mál storm í vatnsglasi. Hún
kannast ekki við að vera í ein-
hverjum sérstökum hópi. „Ég var
skipuð til þess að vera til ráðgjafar
ef þeir sem eru að semja frumvarpið
vildu ræða það við mig.“ Hún segist
hafa verið í umræðum í þinginu í
gær og hafi því ekki komist á fund-
inn. „Það er fráleitt að líta á þetta
frumvarp sem rof á einhverri sátt.
Á þriðjudag voru Pétur Blöndal og
Birgir Ármannsson að flytja mál
um að einkavæða ríkisútvarpið og
engar ásakanir heyrðust þá um rof
á einhverri sátt.“
Mörður Arnason
Unnið að sáttum
á ísafirði
Samkomulag hefur verið gert milli
stjórnenda og starfsfólks Mennta-
skólans á Isafirði annarsvegar og
menntamálaráðuneytisins hins-
vegar um að bæta samskipta- og
samskiptafærni innan skólans.
Mikill meirihluti starfsmanna
skólans hafa skrifað undir sam-
komulagið og standa vonir til þess
að á endanum verði allir starfs-
menn þátttakendur í því. Tveir
sálfræðingar munu hafa umsjón
með verkefninu, sem felur það
meðal annars í sér að skólameistari
skuldbindur sig til að hafa samráð
við ráðuneytið um beitingu vald-
heimilda og agaúrræða við skólann.
Frá þessu er sagt á vef héraðsfrétta-
blaðsins Bæjarins besta í gær.
BlaÖiÖ/lngó
Færri VR félagar
atvinnulausir
Tæplega tvö þúsund félagsmenn
Verslunarmannafélags Reykjavíkur
(VR) fengur greiddar atvinnuleysis-
bætur á síðasta ári. Það er rúmlega
650 færri en árið áður og nemur
fækkunin um 25%. Fækkunin milli
ára nemur um 33% hjá körlum
en 21% hjá konum. Hlutfallslegt
atvinnuleysi.þ.e. íjöldi atvinnu-
lausra félagsmanna sem hlutfall af
fjölda félagsmanna var 3,6% í fyrra,
og hefur dregist talsvert saman
milli ára. Þannig var þetta hlutfall
5,3% árið 2004 og 5,7% árið 2003.
VERKSTÆÐISMENN
Vegna aukinna verkefna vantar vana viðgerðamenn
(verkstæðismenn) til starfa strax. Góð laun í boði
fyrir rétta menn.
SKRIFSTOFUMAÐUR
Æskilegt er að viðkomandi hafi stúdentspróf og
kunni á excel og word.
Umsóknarblöð eru á heimasíðu félagsins www.gtverktakar.is
Upplýsingar á skrifstofu í síma 5801600 miili kl. 13 og 14.
Rauðhellu 1 -221 Hafnarfjörður
Sími 580 16 00 Fax 58016 01
Veffang gtverk@simnet.is - gtverk.is
Aldrei fleiri útlendingar
Töluverð aukning varð á fólksflutn-
ingum til landsins á síðasta ári sam-
kvæmt úttekt Hagstofunnar á búferla-
flutningum árið 2005. Alls fluttu
3.860 fleiri einstaklingar til landsins
en frá því sem er rúmlega sjöföld
aukning frá fyrra ári.
Fleiri erlendir karlar
Árið 2005 fluttu um 7.773 einstak-
lingar til landsins en á sama tíma
3.913 frá því. Aðfluttir umfram brott-
flutta í millilandaflutningum voru
því 3.860 á síðasta ári en voru 530
árið 2004. Alls fluttu um 4.680 er-
lendir ríkisborgarar til landsins en
3.093 Islendingar.
Áf erlendum ríkisborgurum sem
hingað komu voru 3.208 karlar og
1.472 konur. Þá voru íslendingar í
meirihluta þeirra er fluttu frá land-
inu á síðasta ári eða 2.975 talsins. Á
sama tíma fluttu um 938 erlendir rík-
isborgarar frá landinu og því hefur
fjöldi þeirra hér á landi aukist tölu-
vertáliðnuári.
Flutningar frá höfuðborgarsvæðinu
Sé horft til einstakra landshluta er
mest um flutninga til Austurlands
eða rúmlega 115 á hverja þúsund
íbúa. Athygli vekur að ef einungis
er horft til innanlandsflutninga
eru brottfluttir Austfirðingar fleiri
en aðfluttir og þvf ljóst að aukning
íbúafjölda á Austurlandi er fyrst
og fremst tilkomin vegna erlendra
ríkisborgara.
Þá vekur einnig athygli að fleiri
flytja frá höfuðborgarsvæðinu en til
þess í innanlandsflutningum. Mestur
tilflutningur innanlands var þó til
landsvæða næst höfuðborgarsvæð-
inu og þá einkum til Suðurnesja.
Fleiri fslendingar fluttu frá höfuðborgar-
svæðinu en til þess á síðasta ári.
VIKUR