blaðið - 09.02.2006, Side 12
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 blaAÍ6
12 I
Hvemig menn hófu að ganga uppréttir
Viðfund Sunnanapans Lucyfengust svör við ýmsum spurningum sem höfðu legið á vísindamönnum í tugi ára.
Johanson og Gray nefndu beinagrindina Lucy en Lucy gæti hafi litið svona út
Það er ein uppgötvun í steingerv-
ingafræðum sem, umfram allar
aðrar, hefur breytt skoðunum
manna á því hvernig við urðum
mennsk. En hver var Lucy og af
hverju er hún svona mikilvæg í
þróun mannkynsins.
Lucy var uppgötvuð árið 1974 af
mannfraeðingnum Donald Johanson
og nemanda hans Tom Gray í Hadar
í Eþíópíu. Johanson og Gray voru að
leita að dýrabeinum í sandi, ösku og
leðju þegar þeir sáu örlítinn hluta af
handleggsbeini. Johansen sá strax
að beinið var af apa af mannaætt.
Þegar þeir litu betur sáu þeir fleiri
bein; rifbein, lærbein og kjálkabein.
Að endingu fundu þeir 47 bein af
grindinni, eða um 40% af apanum
sem var uppi fyrir 3,2 milljónum ára.
Af mjaðmarbeininu að dæma áætl-
uðu þeir að dýrið væri kvenkyns og
skírðu hana Lucy þar sem þeir hlust-
uðu á lag Bítlana; „Lucy in the Sky
with Diamonds þegar þeir fögnuðu
fundinum.
Lucy er skyld manninum
Líkt og simpansi hafði Lucy lítinn
heila, langa lafandi handleggi og
keilulagað brjósthol með stórum
maga. En bygging hnés og mjaðma-
grindar sýndu að Lucy gekk upprétt
á tveimur fótleggjum, rétt eins og
mennirnir. Þessi hreyfing er mikil-
vægasti munurinn á rniíli manns
og apa og staðsetur Lucy innan
fjölskyldu mannsins. Tvífætlur
eru fýrstu afdráttarlausu einkenni
mannsins samkvæmt Johanson. Jo-
hanson nefndi tegund Lucy Sunn-
Það sem helst hefur aðskilið menn og apa
er að menn ganga á tveimur fótum.
99...................
En það voru enn nánari
tengsl á milli samsetn-
ingar beinagrindar Lucy
og þeirrar líkamsbygg-
ingarsem órangútanar
eru með. Sú uppgötvun
getur varpað Ijósi á það
hvernig forfeður okkar
fóru að ganga uppréttir.
anapinn frá Afar eftir héraðinu sem
hann fannst í. Fyrir 3,5 milljónum
ára leitaði Sunnanapinn að ávöxtum,
hnetum og fræjum á sléttu og í skóg-
lendi. Hann hefur líka getað fengið
dýraprótein frá termítum eða
eggjum fugla. Árið 1975 fann annar
nemandi Johanson, Micheal Bush,
leifar 13 Sunnanapa grafna saman
í kjölfar þess sem virtist vera ein-
hvers konar náttúruhamfarir. Þessi
fundur leiddi til mikilvægra upp-
lýsinga um félagslega samsetningu
Sunnanapana. Samkvæmt Johanson
fundust bæði gamlir, ungir, stórir og
litlir Sunnanapar i gröfinni og því
lítur út eins og samsetning hópa af
Sunnanöpum sé svipuð og samsetn-
ing hópa af simpönsum.
Ekki allirásama máli
Þrátt fyrir að Lucy hafi ótvírætt
gengið upprétt efast sumir vísinda-
menn um að hún hafi gengið um
með beinar fætur, eins og menn.
Þess í stað telja þeir að hún hafi beygt
mjöðm og hné líkt og simpansar
gera þegar þeir ganga uppréttir.
Simpansar ganga venjulega um á
fjórum fótum en einstaka sinnum
ganga þeir uppréttir í stuttan tíma
í einu. Robin Crompton, prófessor
í Háskólanum í Liverpool, notaði
tölvumódel til að líkja eftir göngu-
lagi Lucy miðað við samsetningu
beinagrindar hennar. Hann dregur
þá ályktun að Lucy gæti annað hvort
hafa gengið upprétt með mjaðmir og
hné beygð líkt og simpansi eða með
beinar lappir eins og menn. Cromp-
ton komst líka að þeirri niðurstöðu
að það væri árangursríkara fyrir
Lucy að ganga eins og maður. En
það voru enn nánari tengsl á milli
samsetningar beinagrindar Lucy og
þeirrar líkamsbyggingar sem órang-
útanar eru með. Sú uppgötvun getur
varpað ljósi á það hvernig forfeður
okkar fóru að ganga uppréttir.
Forn eiginleiki sameiginlegur
öpum
Órangútanar búa 20-40 metrum
fyrir ofan jörðu í skógum Indónesíu.
Þeir eyða megninu af tíma sínum í
uppréttri stöðu en færa sig á milli
greina með löngum handleggjum.
Hins vegar ganga órangútanar
stundum á greinum án aðstoðar og
lyfta einungis upp handleggjunum
til að ná jafnvægi. Órangútanar
eru ekki eins skyldir manninum og
simpansar eru. En nýlega uppgötv-
aðist að villtir simpansar sem búa
í þéttum skógum gera þetta einnig,
sem gefur til kynna að þetta gæti
verið forn eiginleiki sem allir apar
eiga sameiginlegan.
Sameiginlegur forfaðir
Simpansar eru nánustu ættingjar
okkar. Erfðarannsóknir sýna að
menn og simpansar eiga sameigin-
legan forföður sem bjó í afrísku regn-
skógunum fyrir 7-8 milljónum ára.
Afkomendur þessa sameiginlega for-
föðurs skiptist í tvo ættbálka, annar
leiddi til simpansa og hinn leiddi til
mannsins. Það er álitið að ættbálkur
mannsins hafi þróað tvífætlur til
að búa á landi þegar loftslagstbreyt-
ingar eyddu skóglendinu og eftir
urðu stór opin svæði án trjáa. Fyrr-
nefndur Crompton álítur að órangút-
anar sem ganga á greinum trjánna
hafi orðið til þess að forfeður okkar
hófu að ganga á tveimur fótum
þegar þeir komu neðan úr trjánum
og gengu á landi.
svanhvit@bladid. net
Foreldrar sagðir þung-
lyndari en annað fólk
Rannsókn gefur til kynna aðforeldrarþjáist
frekar afþunglyndi en hinir barnlausu
Hvert einasta foreldri getur,
án samviskubits, sagt að börn
geti verið ansi niðurdrepandi
stundum. Ný rannsókn sýnir að
uppeldi er lífstíðarögrun og getur
jafnvel haft áhrif á andlega heilsu
foreldra.
Foreldrar þjást ekki einungis
af meira þunglyndi heldur en full-
orðnir sem eiga ekki börn heldur
versnar vandamálið töluvert þegar
börnin flytja að heiman. „Foreldrar
hafa meiri áhyggjur heldur en aðrir,
það er aðalatriðið," segir Robin
Simon, prófessor í Háskólanum í
Flórída. „Og þær áhyggjur minnka
ekki með tímanum. Foreldrar hafa
áhyggjur af tilfinningum barna
sinna, félagslegri, andíegri og lík-
amlegri heilsu. Eins hafa foreídrar
áhyggjur af því hvernig börnunum
vegnar í heiminum."
Foreldrar án forræðis þunglyndari
Niðurstöður rannsóknarinnar
eru mjög afgerandi enda tóku 13.000
manns þátt í henni. Ekkert foreldri
kvaðst þjást af minna þunglyndi
en þeir sem ekki voru foreldrar
samkvæmt Simon. Þó kom í ljós að
sumir foreldrar eru þunglyndari en
aðrir. Foreldrar uppkominna barna,
hvort sem þau bjuggu heima eður ei
og foreldrar sem höfðu ekki forræði
yfir ungum börnum sínum sýndu
fleiri þunglyndiseinkenni heldur en
foreldrar sem áttu ung börn heima
fyrir, hvort sem það voru þeirra líf-
fræðilegu börn, stjúpbörn eða ætt-
leidd börn.
Ung börn eru auðveld-
ari en eldri börn
Aðrar rannsóknir hafa sýnt að upp-
eldi hefur lika slnar jákvæðu hliðar.
Ein rannsókn á foreldrum með ung
börn leiddi I ljós að foreldrar hafa
stærra félagslegí net og meira sjálfs-
traust heldur en þeir sem ekki eru
foreldrar. „Ung börn eru tilfinninga-
lega auðveldari,“ segir Simon. „Lítil
börn, lítil vandamáí. Stór börn, stór
vandamál." Niðurstöðurnar leiddu
líka í ljós að giftir foreldrar eru ekki
eins þunglyndir og ógiftir foreldrar.
En það kom á óvart að áhrif foreldra-
hlutverksins á þunglyndi voru þau
sömu fyrir karlmenn og kvenmenn.
Segir Simon að einstaklingar ættu
virkilega að hugsa sig tvisvar um
hvort þeir vildu verða foreldrar áður
en stokkið er í djúpu laugina.
svanhvit@bladid.net
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
KJARTAN
VALGARÐSSON
2SætÍ
Samfelldur skóli
Helstu goösagnir í
vísindum afsannaðar
Það tekur sjö ár að
melta tyggigúmmí
Þó það geti verið erfiðara að melta
tyggigúmmí heldur en, til dæmis,
náttúrulegan mat þá fær tyggi-
gúmmi enga sérþjónustu frá melt-
ingarkerfinu. Læknar telja að þessi
goðsögn hafi skapast til að koma
í veg fyrir að börn myndu gleypa
gúmmíið góða.
Kínamúrinn er eina mannvirkið
sem sést frá geimnum
Það eru til nokkrar mismunandi
útgáfur af þessari goðsögn en allar
eru þær rangar. Geimfarar geta séð
Kínamúrinn frá sporbraut nálægt
jörðinni ásamt öðru, eins og pýram-
ídana í Giza og jafnvel sumar flug-
brautir flugvalla. En þeir geta ekki
séð Kínamúrinn frá tunglinu.
Maðurinn notar einungis 10%
heilans
Fjölmiðlar hafa haldið þessari
goðsögn á lofti í áratug en sem betur
fer er þetta ekki satt. Maðurinn...og
konan nota meirihluta heilans til
góðra verka, jafnvel þegar þau eru
hálfsofandi.
Nýjar heilafrumur myndast ekki
í fullorðnum
Mesta þróunin í heila mannsins
gerist í barnæsku en það er ekki
þar með sagt að það sé allt á niður-
leið eftir það. Rannsóknir hafa sýnt
að taugafrumur halda áfram vexti
sínum og breytast langt fram á
fullorðinsár.
Smápeningur af hárri bygg-
ingu getur drepið gangandi
vegfaranda
Smápeningur er langt frá því að
vera hættulegt vopn. Að teknu tilliti
til lögunar smápeningsins og vinds
þá mun peningurinn einungis falla
það hratt að hann mun rétt svo
stinga vegfarandann, jafnvel þó
Þrátt fyrir að flestir hafi alist upp viö
þá goðsögn að það taki sjö ár að melta
tyggigúmmí er það fjarri sannleikanum.
honum sé hent niður af hæstu bygg-
ingu heims.
Karlmenn hugsa um kynlíf aðra
hverja sekúndu.
Jafnvel þó það sé innbyggt í karl-
menn að fjölga sér, þróunarlega séð,
er engin vísindaleg leið til að mæla
að hve miklu leyti sú hvöt er ráð-
andi í hugsanaferli mannsins. Sjö
sekúndur virðist meira að segja vera
ýkjur, eftir því sem vísindamenn
best vita.
Eldingu slær aldrei niður tvisvar
á sama stað
í raun og veru eiga eldingar
nokkra uppáhaldsstaði, til að
mynda háa staði. Empire State bygg-
ingin verður fyrir eldingu um 25
sinnum á ári.
Köttur lendir alltaf á fótunum
Rannsóknir hafa sýnt að þegar
ketti er sleppt úr mikilli hæð lendir
hann tignarlega á fótunum. Þetta
brey tist hins vegar ef ketti er sleppt
öfugum úr lítill hæð því þá lendir
hann ekki endilega á fótunum. Það
er ekki ráðlagt að reyna þessa niður-
stöðu heima fyrir.
svanhvit@bladid.net