blaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 14
blaðið
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
MYNDIRNAR
AF MÚHAMEÐ
Auðvelt er að hrapa á þeirri ályktun að ákvörðun ritstjórnar hins
danska Jyllands-Posten að birta skopteikningar af Múhameð spá-
manni þar sem honum er m.a. lýst sem hryðjuverkamanni hafi
verið meðvituð árás á íslam og menningarheim þeirra, sem þá trú játa. Ekki
þarf djúpstæða þekkingu á íslamskri trú og veruleikasýn til að gera sér ljóst
að teikningarnar eru guðlast í huga fylgismanna Spámannsins.
Nú hefur ritstjóri Jyllands-Posten lýst því yfir að hann hefði ekki birt skop-
teikningarnar hefði hann vitað að afleiðingarnar yrðu þessar; segja má að
spennan á milli menningarheima Vesturlanda og íslam hafi sjaldan eða
aldrei verið meiri á síðari tímum, hið minnsta. Líklegt sýnist því að hér ræði
ekki um ákvörðun, sem tekin var til að særa, meiða og móðga, heldur hafi
dómgreindar- og smekkleysi ásamt furðulegum þekkingarskorti ráðið för.
Skopteikningarnar voru birtar í krafti skoðana-, tjáningar- og prentfrelsis
Vesturlanda. Þessi birtingarform frelsisins eru óendanlega dýrmæt og eru
gildi, sem almenningur víða í hinum íslamska heimi hefur enga þekkingu á
og fær ekki skilið. En frelsinu fylgir mikil ábyrgð; það veitir ekki mönnum
leyfi til að birta allt og hvað sem er í dagblöðum enda er það almennt og
yfirleitt ekki gert.
Myndirnar af Múhameð hafa verið endurbirtar í fjölmörgum dagblöðum,
sem telja sig þannig koma frelsinu til varnar. Nú hyggst dagblað í opinberri
eigu í íran svara þessu með því að efna til samkeppni um skopteikningar,
sem tengjast helför gyðinga í valdatíð þýskra nasista. Ólíkt því sem gildir
um Jyllands-Posten ræðir því hér um ákvörðun stjórnvalda en ætla má að
dagblöð þau, sem birtu myndirnar af Múhameð, birti einnig írönsku teikn-
ingarnar í nafni frelsisins. Það mun vekja mikil viðbrögð víða á Vestur-
löndum; átök þessara tveggja menningarheima sýnast eiga eftir að fara enn
harðnandi.
Viðbrögðin í Iran og víða í arabaheiminum eru að sönnu ofsafengin og í
raun jafn óskiljanleg flestum Vesturlandabúum og tilgangurinn með því að
birta teikningar af Spámanninum er fylgismönnum hans. Hafa ber í huga
að víða í löndum þessum ríkir reiði örvæntingar og allsleysis meðal alþýðu
manna og valdhafar og trúarleiðtogar geta auðveldlega sameinað umtals-
verðan hluta heilu þjóðanna gegn nýjum óvini. Slík stjórnspeki er alþekkt
í sögunni.
Ekki verður séð hvernig komið verður á vopnahléi í þessum „átökum
menningarheimanna". Líklegra sýnist að spennan muni enn fara vaxandi
jafnt á Vesturlöndum sem í hinum íslamska heimi.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Þriðjudaginn 14. febrúar
Greinar • Viðtöl • Fræðsla • og margt fleira
blaðió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Simi 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjami Danlelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net
14 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 blaðið
ViVÆÐ S^Gi^ Hnmn P/Ll ÓKeVp/5 Lumcóu,
ÓKEVPíS 4WTi/R j SfáLútf. Uli5L/t$ CtJnWioT ÚTi/fl/l fllií
\ mFfíHu ViHU- QKFYris í GuUþ o& 4 AUa Hmwmnd,
Hetjan Magnús Scheving
„Pabbi, ég er íþróttamaður,“ sagði
5 ára gamall sonur minn um dag-
inn. „Já, er það?“ svaraði ég að
bragði og spurði hvaða íþrótta-
grein hann stundaði. Hann leit
undrandi á mig og sagði. „Nú, ég
borða grænmeti.” Að svo mæltu
þaut hann af stað eins og íþrótta-
álfurinn, flengdist um húsið en
kom að vörmu spori til baka og
bað um gulrót.
Fæstir gera sér grein fyrir mik-
ilvægi Magnúsar Scheving í upp-
eldismálum þjóðarinnar hvað
varðar heilbrigða lífshætti. Og ég
tel að starf hans verði ekki metið
að verðleikum hér á landi fyrr
en of seint. Um þessar mundir
stendur Orkuátak Latabæjar
yfir sem vekur börnin okkar til
meðvitundar um mikilvægi þess
að borða ávexti og grænmeti og
til að hreyfa sig meira. Síðasta
Orkuátak Latabæjar jók græn-
metisneyslu okkar um 16% og
sala á sykruðum drykkjum dróst
saman um 13% á tímabilinu.
Kerfið ekki með á nótunum
Mig grunar að stuðningur hins
opinbera við Orkuátakið sé af
skornum skammti, að ákveðin
ráðuneyti hafi ekki átt 100.000
krónur aflögu því til stuðnings.
Forgangsröðunin í kerfinu ávallt
söm við sig! Til hvers að fjárfesta
í börnum? Og stuðningsleysi
þeirra sem flytja inn grænmeti og
ávexti var víst svipað. Til hvers að
leggja fjármagn í átak sem mun
hvort sem er skila aukinni sölu á
afurðum okkar?
Magnús þekkir ekki uppgjöf og
heldur áfram að gera góða hluti,
nánast upp á sitt einsdæmi og
við, sem njótum góðs af, sjáum
okkur varla fært að veita honum
stuðning. Nei, það má ekki styðja
svona einkaframtak því Latibær
gæti hugsanlega haft einhvern
fjárhagslegan ávinning af því?
Hvað með það þótt börnin fitni?
Magnús er einstaklingur, ekki
stofnum, við getum ekki stutt
hann!
Það hefur margoft sýnt sig að
upphefðin kemur að utan og ég
tel að þegar fram líða stundir
munum við naga okkur í handar-
Þorgrímur Þráinsson
bökin yfir því að hafa ekki nýtt
okkur Orkuátak Latabæjar til
fulls, alla daga ársins, með vel-
ferð barna okkar að leiðarljósi.
Þjóðnýtum Magnús!
Einstaklingar eins og Magnús
Scheving eiga að vera á launum
hjá þjóðinni, burtséð frá tekjum
þeirra eða tapi á öðrum vett-
vangi. Það er leitun að einstak-
lingum eins og Magnúsi sem
fórnar sér fyrir okkur foreldrana
sem nennum varla að ala upp
börnin okkar, gefum sífellt meira
eftir. Hvernig væri að leggja við
hlustir þegar börnin tala? Hvað
hreyfir við þeim, hefur áhrif til
betra vegar? Oft þarf utaðankom-
andi raddir. Orkuáatakið skilar
sínu, árangurinn blasir við mér á
hverjum degi.l
En svona eru oft örlög frum-
kvöðla sem hafa hugrekki til að
skera sig úr fjöldanum, fylgja
hjartanum. Þeir eru öfundaðir
og þykja ekki nógu fínir pappírar
til að njóta stuðnings, hafa ekki
réttan bakgrunn. Þegar Magnús
hafði sent frá sér fyrstu bæk-
urnar um Latabæ varð ég vitni
að því þegar hluti af „bókmennta-
elítunni“, sem telur sig eiga að
stjórna því hvað íslendingar lesa,
gerði lítið úr bókum hans, ráð-
lagði fólki frá því að kaupa þær.
Hvar er stuðningurinn við þá
sem ná til barna og ungmenna
með verkuni- sínum? Og hvers
vegna er stöðugt verið að mylja
undir þá sem ná aldrei eyrum
ungmenna?
Magnús er þjóðhetja sem mun
án efa sigra heiminn með verkum
sínum og spara mörgum þjóðum
milljarða í heilbrigðiskostnaði þegar
fram líða stundir. Á íslandi hef ég á
tilfinningunni að hann þurfi að berj-
ast fyrir tilverurétti sínum, að hann
fái ekki þann stuðning sem hann á
skilið, hvorki frá hinu opinbera né
okkur hinum. Er ekki kominn tími
til að gefa sig að hetjum þjóðarinnar
með velferð komandi kynslóða að
leiðarljósi?
Höfundur er rithöfundur
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
Blaðamannafélagið gekkst fyrir fundi
í fyrrakvöld á Litla Ijóta andarung-
anum þar sem
stóra skopmyndamálið var
rætt fram ogtil baka. Áfund-
inum, sem var með fjörleg-
asta móti, var meðal annars
kominn Egill Helgason, en
hann afgreiddi bjór og tók
þátt í umræðum jöfnum höndum. Kona hans,
Sigurveig Káradóttir, er enda vert á þessum
huggulega veitingastað við Lækjargötu. Sem
vænta mátti taiaði Egill mjög fyrir tjáningar-
frelsinu þetta kvöld, en meðal annarra, sem
helst tóku vörn þess, voru þeir Ólafur Teitur
Guðnason á Viðskiptablaðinu og Óli Tynes
á NFS. Á hinn bóginn urðu margir til þess að
tala máll tillitsseminnar og fannst að tjánlngar-
frelsið þyrfti að víkja þegar viðkvæm málefni
væru annars vegar. Skeleggasti talsmaður
þeirra sjónarmiða var Halla Gunnarsdóttir
á Morgunblaðinu.
Dagblöðin í gær voru óvenjuleg að
því leyti að Blaðið, Fréttablaðið og
Morgunblaðið voru prentuð á sama
stað, í hinni nýju og fullkomnu prentsmiðju
Morgunblaðsins við Hádeg- -y ^ ^
ismóa. Ástæðan var bilun í
Jsafoldarprentsmiðju, sem
prentar Fréttablaðið og DV
að öllu jöfnu, en htín var
raunar ekki meiri en svo að unnt reyndist að
prenta DV þar. Þetta leiðir hins vegar hugann
að því hvort ekki sé offjárfesting f dagblaða-
pressum á íslandi fyrst Moggaprentsmiðjan
kláraði þetta svo léttilega. Minna má að f Dan-
mörku - þar sem Dagsbrún hefur einmitt sýnt
dagblaðaútgáfu áhuga - eru keppinautarnir
Berlingske Tidende, Politiken, Ekstra Bladet
og fleiri blöð öll prentuð í sömu prentsmlðju
í Avedare.
Rithöfundurinn Salman Rushdie
uppskar á sínum tfma reiði margra
múslima fyrir bók-
ina Söngvar Satans. Til þess
að láta í Ijðs reiði sína f garð
þessa breska rithöfundar, sem
fæddur er á Indlandi, fór æstur
múgur 1 Pakístan vitaskuld
beint í bandarísku menningarmiðstöðina og
kveikti í henni. I Fréttablaðinu í gær hefur Jón
Baldvin Hannibalsson svipuð viðhorf í máli
móðurallra skopmynda. Dönsku myndirnarog
reiði múslima er að sögn sendiherrans fyrrver-
andi á ábyrgð Bandarfkjamanna! Jamm.