blaðið - 09.02.2006, Qupperneq 18
18 I GOLF
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 bla6Í6
Golfið er fjölskylduíþrótt
Með hœkkandi sólfara golfáhugamenn að huga að íþróttinni. Um
helgina gefstþeim tœkifœri til að kynnast því nýjasta sem er í boði
,Ég er þess fullviss að innan nokk-
urra ára munum við sjá unga Islend-
inga ná langt í golfinu", segir Gústaf
Gústafsson sýningarstjóri á sýn-
ingunni Golf á íslandi 2006. „Við
eigum mjög sterkt unglingalandslið
sem verður á sýningunni en það er
vel hugsað um unga fólkið í þessari
íþrótt."
Gústaf segir að á sýningunni
fái golfáhugamenn tækifæri til að
skoða það nýjasta í fatnaði, kylfum
og annað sem er í boði fyrir kylfinga.
,Þá er líka gaman að fá brellumeistar-
ann David Edwards í heimsókn en
hann tók á sínum tíma þátt í evr-
ópsku mótaröðinni í golfi en ferðast
nú um heiminn og sýnir listir sínar.
Það er mikið sjónarspil að sjá David
sérstaklega fyrir okkur sem höfum
stundað þessa íþrótt í nokkun tíma.
Á sýningunni verður einnig keppt
í holu í höggi og sá sem vinnur keyrir
heim á nýjum Volkswagen Golf.“
Gústaf segir það frábært að 36 að-
ilar sýni vörur og þjónustu á Golf
á íslandi 2006. „Þetta verður að
teljast fjölbreyttur hópur sýningar-
aðila miðað við að þetta er fyrsta
golfsýningin hér á landi. „Nú þegar
sólin er farin að hækka á lofti eru
golfáhugamenn farnir að fá fiðring í
tærnar og þá er tilvalið að kynna sér
nýjungarnar og jafnvel að plana golf-
ferðir fyrir páskana og næsta sumar."
Gústaf segir golfið vera fjölskyldu-
iþrótt og sjálfur á hann þrjú börn
sem eru í golfklúbbi og einginkona
hans er líka byrjuð að spila golf.
„Ég er spenntur fyrir þessari sýn-
ingu og ætla mér að kynna mér
nýjungar í golffatnaði og taka þátt í
þeim keppnum sem í boði verða og er
viss um að þetta verður þrælgaman."
Þess má geta að Golf á íslandi
2006 verður haldin á Hótel Nordica
um næstu helgi.
hugrun@bladid.net
Golfsettið tekið
meö í ferðalagið
Meira er um að vinnustaðir og vinahópar
komi saman og haldi lítil golfmót á sumrin
„Það er allaf að verða algengara að
fólk taki golfsettið með sér í ferða-
lagið og hótelkeðjur hérlendis eru
farnar að bjóða upp á frían golf-
hring með gistingu," segir Pétur
Rafnsson, formaður Ferðamálasam-
taka Islands.
„Á Islandi eru um 60 golfvellir
og eins og í mörgu öðru eiga Islend-
ingar met í fjölda golfvalla miðað við
höfðatölu. Fólk vill gjarnan kynnast
ólíkum golfvöllum og vellir á lands-
byggðinni eru alltaf að verða betur í
stakk búnir til að taka á móti fleiri
gestum. Erlendum ferðamönnum
sem vilja stunda golf hér á landi
hefur líka fjölgað og sum mót eru
beinlínis markaðssett erlendis og
má þar nefna Artic Open mótið sem
haldið er á Akureyri á hverju sumri
en mikill áhugi er fyrir slíkum
mótum erlendis.“
Hjá Ferðamálastofu er hægt að
fá upplýsingar um golfvelli um allt
land og því hægt að skipuleggja
ferðalagið út frá því. Pétur segir
ferðaþjónustuna í auknum mæli
farna að huga að pakkatilboðum og
sums staðar séu sveitarfélög og golf-
vellir í samstarfi. „Það sem fólk vill
vita um golfvelli og þjónustu þeirra
er hvort hægt sé að fá leigt golfsett,
upplýsingar um opnunartíma og
fleiri hagnýtar upplýsingar tengdar
golfinu. Það er nokkuð um að vinnu-
staðir og vinahópar komi saman
og haldi lítil golfmót. Ég hef sjálfur
tekið þátt í svona móti í góðra vina
hópi og er mótinu valinn nýr staður
á hverju sumri. Við höfum meðal
annars haldið golfmót á Húsavík, í
Borgarnesi og víðar og þetta er orð-
inn fastur liður á sumrin.“
hugrun@bladid.net
PVC
Gluggar»Sólhýsi
Hurðir* Svalalokanir
Frábær lausn í bæði gamalt og nýtt:
Einbýlið, fjölbýlið, sumarhúsið eða hvar
þar sem fegurð og gæði njóta sin.
Gulleiki
Maghagony
é
Hafðu samband og við réðteggjum þér
GLUGGA- OG
GLERHÖLLIN
Ægisbraut 30*300 Akranes«S(mi:431 2028 «Fax: 431 3828
Netfang:glerholiin@aknet.is*Heimas(ða: www.glerhollin.is
Einangrunargler - Öfyggisgler - Speglar
Það er aðeins 20 mínútna akstur frá Hethrow flugvelli að Fox Hill Club and Resort hótelinu. Við hótelið eru tveir 18 holu golfvellir.
Golfferðir í sólina vinsœlar
Golfarar lengja golftímabilið með því aðfara út á haustin og vorin
„Það er mikið um að fólk fari í golf-
ferðir á vorin og haustin til að lengja
tímabilið“, segir Jóhann Pétur Guð-
jónsson framkvæmdastjóri GB
ferða.
„Fólk fer mikið til heitari staða
eins og Orlando og Taílands yfir
vetrarmánuðina til að stunda golf
en á vorin og haustin fer fólk meira
til Englands, Skotlands og staða sem
eru nær okkur. 1 þessum ferðum er
algengt að fólk stoppi í 2-5 nætur.
Ferðahóparnir eru blandaðir og
það er nokkuð um að vinahópar
og fyrirtæki taki sig saman og fari
í golfferð. Þá er nokkuð um að
pör taki sig saman og taki jafnvel
börnin með og því geta golfferðir
verið fjölsylduferðir.“
Jóhann segir að aðstaða fyrir börn
sé mjög góð á þeim hótelum sem GB
ferðir bjóða upp á og að boðið sé
upp á pössun fyrir börn alveg niður
í tveggja ára aldur þar sem greitt er
fyrir hvern dag. „Þó svo makinn
stundi ekki golf er næg afþeying í
boði á hótelunum og má þar nefna,
heilsulindir, líkamsræktir og snyrti-
meðferðir, einnig er boðið upp á
ýmsa útivist s.s. hjólreiðar, göngu-
ferðir og fleira.
Það er ekki óalgengt að fólk skipti
ferðinni í golfferð og borgarferð
þannig að allir fá eitthvað við sitt
hæfi. „Eftir því sem vinsældir golfs-
ins aukast verða golfhótelin betur
útbúin og bjóða sífellt upp á betri
þjónustu bæði varðandi afþeyingu,
herbergi og veitingastaði."
Jóhann segir mikla aukingu á þvi
að fólk fari í golfferðir erlendis og í
hefðbundinni golfferð sé innifalið
flug, gisting með morgunmat og
golf. „Einnig er hægt að bæta við
kvöldmat en það er þriggja rétta mál-
tíð sem valin er af matseðli. Helgar-
ferð með flugi kostar á bilinu 50-70
þúsund og fer verðið eftir lengd ferð-
arinnar og gæðum hótelsins.
Það er algengast að fólk á aldr-
inum 35-60 ára fari í ferðirnar en yf-
irleitt er þetta blandaður aldur. Oft
er þetta fólk sem hefur stundað golf
í einhvern tíma en það færist í auk-
ana að byrjendur fari í ferðirnar því
á stöðunum er golfkennsla í boði og
fátt betra en að læra réttu tökin við
góðar aðstæður.“
hugrun@bladid. net