blaðið - 09.02.2006, Síða 23
blaðið FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006
VIÐTAL I 23
99............................................................
Sumir hafa furðað sig á því að ég skuli lifa og hrærast í karlaheimi, svona
faglega séð. Slíkt tal snertir mig ekki. Ég hefhvorki komist áfram í
starfi né verið hindruð á framabraut vegna kynferðis míns."
líka skelfilegt fyrir saklausan mann
að mannorðið sé haft af honum í fjöl-
miðli áður en hann hefur fengið færi
á að verja sig fyrir dómi. Fréttin lifir
óháð því hvað gerist í framhaldinu.
Meðal annars þess vegna hafa fjöl-
miðlar mikil áhrif og völd og þeir
mega ekki umgangast þá ábyrgð
eins og hún sé léttvæg.“
Hvað finnst þér utn myndbirt-
ingar Jyllands Posten af spámönn-
unum? Er hœgt að gera hvað sem
er í nafni tjáningarfrelsis eins og
til dœmis það að lítilsvirða annan
menningarheim?
„Það er sjálfsagt að sýna öðrum
menningarheimum kurteisi og virð-
ingu en að sama skapi finnst mér
mikilvægt að virða tjáningarfrelsið.
Það er reyndar ekki svo langt síðan
að hér á Islandi féll dómur fyrir guð-
last í hinu fræga Spegilsmáli. Það
eru ekki nema tveir áratugir eða
svo. í þessu tilviki finnst mér tján-
ingarfrelsið hafa vinninginn. Þarna
takast á tveir heimar, hinn vestræni
heimur sem virðir tjáningarfrelsið
og hefur það í heiðri, sem er að mínu
viti rétt að gera. Síðan höfum við Ar-
abaheiminn þar sem önnur gildi
eru höfð í heiðri. Arabaheimurinn
á ekki rétt á því að við Vesturlanda-
búar breytum okkar gildum þegar
kemur að tjáningarfrelsinu en að
sama skapi finnst mér hræsni að
fordæma múslima fyrir að láta í sér
heyra meðan Vesturlönd þröngva
„frelsi“ upp á Irak með því að ráð-
ast inn í landið. Við viljum ekki að
önnur gildi séu neydd upp á okkur.
Að sama skapi þurfum við að staldra
við og íhuga hvort rétt sé að þvinga
okkar gildum upp á Arabaheiminn
með innrásum hér og þar. Ég vil
þó bæta við að mér finnst að for-
dæma eigi morðhótanir og ofbeldi
sem hefur risið í kjölfarið á þessum
myndbirtingum. Eg held hins vegar
ekki endilega að slík hegðun sé ein-
skorðuð við einhver ákveðin trúar-
brögð. Ég er alltaf mótfallin morð-
hótunum og ofbeldi, sama hver
viðhefur slíkt og hvers vegna.“
Lærði af þeim allra bestu
Þú hefur tekið að þér mál ungra
foreldra vegna lceknamistaka. Er
það ekki erfitt tilfinningalega?
„Ég hef oft séð sorg í starfi mínu.
Ég þyrfti að vera vélmenni til að
vera algjörlega ósnert af sorg ann-
arra. Auðvitað snertir hún mig.“
Hvað gerirðu þá?
„Þetta er erfið spurning. Ég geri í
sjálfu sér ekkert sérstakt. Ég hef ör-
ugglega myndað skráp en ég held að
það hafi ekki gerst meðvitað."
Þú starfar með Ragnari Aðalsteins-
syni sem er einn helsti mannrétt-
indafrömuður í lögfrœðingastétt.
Það hljóta að vera forréttindi að
fá að starfa með honum.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Ragn-
ari sem er einstakur maður. Ég hef
verið heppin í störfum mínum með
lögmönnum, hef bæði unnið hjá Sig-
urði G. Guðjónssyni og Ragnari Að-
alsteinssyni sem eru þeir tveir bestu
í bransanum. Ég hefði ekki getað
verið heppnari með lærifeður. Ég
lærði af þeim allra bestu.“
Eru stjórnvöld að sinna mannrétt-
indamálum nógu vel?
„Tilfinning mín er sú að á undan-
förnum árum hafi í auknum mæli
verið brotið gegn stjórnarskrá og
mannréttindum. Þegar ráðamenn
verða uppvísir að slíkum brotum
þá svara þeir fullum hálsi og sýna
ekki vott af iðrun. Mér finnst þetta
lýsa virðingarleysi. Ráðamenn eiga
að bera virðingu fýrir lögunum
og gera sér grein fyrir því að lögin
gilda einnig um þá og að það skiptir
máli að þeir fari eftir þeim. Á seinni
árum finnst mér við æ oftar sjá um-
deild lagafrumvörp keyrð í gegn um
þingið á mjög naumum meirihluta
og í miklum flýti. Það hefur gerst
of oft að mínu viti að sett lög, sem
þannig eru keyrð í gegn, eða athafnir
stjórnvalda standast ekki stjórnar-
skrá að mati Hæstaréttar. Það þarf
að vanda til verka, bæði í lagasetn-
ingu og eins í stjórnsýslunni.“
Afhverju gerist þetta?
„Ég held að þegar menn hafa verið
lengi við völd þá fari þeir að hugsa
öðruvísi en áður. Þá bera þeir ekki
sömu virðingu fyrir gildandi reglum
og þeir gerðu og telja sig geta breytt
þeim ef reglurnar henta þeim ekki.
Sennilega er þetta hluti af mannlegu
eðli en þetta er ekki góð þróun. Eg
tek sem dæmi að í kjölfar þess að
forseti hafnaði að samþykkja fjöl-
miðlafrumvarpið þá fóru allt í einu
að heyrast raddir stjórnmálamanna
sem vilja afnema þennan rétt for-
setans. Jafnréttislögin voru kölluð
„barn síns tíma“ í kjölfar þess að ráð-
herra var talinn með ráðningu hafa
brotið gegn þeim. Og áfram mætti
lengi telja.“
Heldurðu að almenningur sé með-
vitaður um þessa þróun?
„Við höfum of oft látið of mikið yfir
okkur ganga af hendi ráðamanna.
Nú er eins og þjóðin sé að vakna
til meðvitundar um þetta og menn
hafa ítrekað safnast saman til að mót-
mæla ákvörðunum stjórnvalda. Það
er jákvætt og til marks um breytta
vitund að íslendingar eru í auknum
mæli farnir að láta í sér heyra þegar
þeim er misboðið. Mér finnst til að
mynda mjög jákvætt að sjá vitundar-
vakningu í umhverfismálum.“
Ertu vinstri sinnuð?
„Ég er hvorki hægri sinnuð né
vinstri sinnuð. Ég er eins lítið pólit-
ískt sinnuð og hægt er að vera. Ég hef
skoðanir og hugsjónir en það er ekki
hægt að greina þær samkvæmt pólit-
iskum flokkslínum. Kannski vegna
þess að það skiptir mig mestu máli
að vera trú hugsjónum mínum.“
Er það ekkifullt starfað vera trúr
hugsjónum sínum?
„Eg held að það sé miklu frekar
fullt starf fyrir eina manneskju að
stimpla sig inn í stjórnmálaflokk og
vinna síðan í því að vera sammála
öllu því sem flokksforystan segir
henni að vera sammála. Það held ég
að kalli eftir enn meiri vinnu. Vinnu
við að sannfæra sjálfan sig um hluti
sem maður er ekki endilega sam-
mála í hjartanu en telur að maður
eigi að vera sammála vegna þess að
flokkurinn krefst þess af manni.“
Rík manneskja
Ég get ímyndað mér að þú sért í
ágœtlega launuðu starfi. Skipta
peningar þig máli?
„Auðvitað skipta tekjur og pen-
ingar máli því maður þarf peninga
til að geta lifað. En það er svo margt
í lífinu sem skiptir mig meira máli.
Mér finnst ég vera mjög rík mann-
eskja vegna þess að ég á góða fjöl-
skyldu sem skiptir mig öllu máíi í
heiminum.
Sérðu fyrir þér að framtíð þín
muni snúast um lögmennsku?
„Já. Þetta er skemmtilegt starf og
ég er ánægð. Ég hef verið heppin og
verið treyst fyrir málum sem hafa
verið einstaklega gefandi. Ég vona
að ég fái áfram tækifæri til þess.
Ég sé ekkert annað fyrir mér en að
halda áfram í lögmennskunni. Mig
langar hins vegar í framhaldsnám
erlendis en það er nokkuð sem tekur
fljótt af og svo sný ég aftur."
Þú segist ekki vera flokkspólitísk
en ertu femínisti?
„Ég trúi á einstaklinginn. Sumir
hafa furðað sig á því að ég skuli
lifa og hrærast í karlaheimi, svona
faglega séð. Slíkt tal snertir mig
ekki. Ég hef hvorki komist áfram í
starfi né verið hindruð á framabraut
vegna kynferðis míns. Ef einstak-
lingurinn stendur sig vel þá skiptir
engu í mínum huga hvort hann er
karl eða kona. Ég trúi því að ég lifi
í þjóðfélagi þar sem það sama gildir
um mig. Ég vil að fólk dæmi mig
eftir verkum mínum en ekki eftir
kynferði og ég hef aldrei orðið vör
við annað en að það séu verk mín
sem tali en ekki kynferðið."
kolbrun@bladid.net
Salsu
með Heiðari
Þetta er fríði hópurinn sem hjálpar
Heiðari við Salsakennslu í Havana
Það dansa allir á Kúbu og aldurinn
skiptir ekki máli.
Kennarar á námskeiðinu verða:
Heiðar Ástvaldsson
Harpa Pálsdóttir
Erla Haraldsdóttir en þau hafa
öll oftar en einu sinni verið á
námskeiðum á Kúbu og meðal
annars á Listaháskólanum í
Havana.
Juan Alberto Borges frá Kúbu
Kúbufarar sérstaklega
velkomnir á sérstakt
Kúbufaranámskeið, þar
sem við förum yfir öll
sporin, sem við lærðum
í Havana og bætum við
eftir þörfum.
Þetta eru Erla Haraldsdóttir og Harpa
Pálsdóttir ásamt hinum frábæra og
fræga Salsakennara Erodys sem tók
þær og Heiðar í nokkra einkatíma
Farþegar í ferðum Úrval Útsýn og Plúsferða 27. mars
og 3. apríl til Kúpu komast í "Salsa með Heiðari",
þar sem aðalkennarinn verður Ariel prófessor í
"Afro Cuban" dönsum við Háskólann í Havana.
LKennslan hefst fimmtudaginn 2. mars.
mmmmmmmmammmm
Kennum einnig samkvæmisdansa
fyrir börn, unglinga, fullorðna
og keppnisfólk.
• Freestyle, Hip Hop
• Konusalsa byrjendur og framhald
• Námskeið í Salsa fyrir pör og
einstaklinga
• Salsa fyrir unglinga
Innritun daglega í síma 551 3129 kl. 20 til 22
Heiðar sími 896 0607
E-mail: heidarast@visir.is
ÐANSSKÓtlj
Reykjavík
ASTVAtOS
Mosfellsbæ