blaðið - 09.02.2006, Side 24
24 I MATUR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 blaðið
ÖNDVEGISELDHÚS
RAGGA ÓMARS, MATREIÐSLUMEISTARA
Ég las í blaði um daginn að lax væri
eitt það hollasta fæði sem náttúran
hefur gefið af sér, þar sem hann inni-
heldur fullt af vítamínum og hina
hollu fitusýru Omega-3.
Þá er náttúrlega ekkert því til fyrir-
stöðu að vera með skemmtilega upp-
skrift af laxi í dag. Það eru nú ekki
allir hrifnir af laxi og þá sérstaklega
eldislaxi og það getur verið ótrúlega
mismunandi hvernig fisk maður fær.
Eldislax getur verið afskaplega feitur
og þá kemur lýsiskeimur í laxinn en
það toppar náttúrulega ekkert villta
laxinn. Hann er hágæða-hráefni og
það er í raun sama hvernig maður
ber hann fram, hráan, soðinn,
steiktan, grillaðan eða ofnbakaðan.
Alltaf er hann algjört sælgæti, svo
ekki sé talað um grafinn og reyktan.
En þar sem maður kemst nú ekki
svo auðveldlega í villtan lax verður
maður bara að gera það besta úr eld-
isfisknum og finnst mér þá best að
steikja hann en þannig nær maður
mesta fitubragðinu úr honum. Með-
læti með laxi getur verið ótrúlega
fjölbreytt en það er ekki margt sem
er betra með laxi en „Hollandaise-
sósa” sem er eggja- og smjörsósa.
Sósur gerast einmitt ekki óhollari
en einmitt þessi sósa og þar sem ég
með mitt holdarfar hef ekki gott af
slíku bjó ég til sósu sem er ekki síður
góð. Þá get ég fengið mér laxinn í
svipaðri útgáfu og læt ég hér fylgja
með uppskriftina af henni. Síðan
er soðinn nýr spergill (aspas) alveg
ómissandi með laxi ásamt nýjum
kartöflum.
Steiktur lax; (fyrir fjóra)
4 flottar laxasteikur (bein-
lausar og jafnvel roðlausar, það er
smekksatriði)
matarolía til steikingar
salt og pipar
Steikið laxinn á mjög heitri pönnu
í olíunni (á roðhlið fyrst ef það er á)
í ca 3 mín á hvorri hlið. Takið pönn-
una af hitanum og látið laxinn vera
á pönnunni í 3-4 mín eða þar til
hann er ekki lengur glær í miðjunni.
Passið samt að ofelda hann ekki,
kryddið með salti og pipar.
Sinneps-jógúrtsósa (köld)
1 msk dijonsinnep
Vi msk sætt sinnep
klípa af kjúklingateningi (ca. 1/6
tsk)
1 dl ólífuolía (ekki extra virgin)
safi úr 1 sítrónu
1 lítil dós hreint jógúrt
1 tsk ferskt estragon saxað (1/3 tsk
þurrkað)
1 tsk steinselja söxuð
salt og pipar
Aðferð;
Pískið sinnepið, sítrónusafann
og kjúklingateninginn vel saman
og látið olíuna leka í örmjórri bunu
út í sinnepið og hrærið stanslaust í
BlaðiÖ/SteinarHugi
á meðan. Þá þykknar þetta og þá er þarf að standa í klst.fyrir notkun
jógúrt blandað saman við og síðan Borið fram með soðnum kart-
kryddjurtunum og smakkað til með öflum, soðnum spergli og góðu
salti og nýmöluðum pipar. Sósan salati.
Pantaði súpu en fékk soðið egg í majónesbeði
Dofri Hermannsson er mikiðfyrir sushi en hefur aldrei getað borðað brauðsúpu þráttfyrir ítrekaðar tilraunir
Dofri Hermannsson, leikari,
stendur í ströngu í prófkjöri
Samfylkingarinnar um þessar
mundir en hann stefnir á 4.-6.
sæti. „Þetta er mikil vinna. Maður
er að sofna klukkan 2 á nóttunni
og vakna klukkan 8 á morgnana,“
segir Dofri aðspurður um hvernig
framboðið gangi. Blaðamaður
vildi þó að þessu sinni forvitnast
um matarvenjur frambjóðandans
og fékk hann til að svara nokkrum
spurningum þeim tengdum.
Uppáhalds matur:
Sushi og súrmatur. „Ég ólst upp við
að borða súrmat í sveitinni í gamla
daga og hefur alla tíð síðan þótt
allt súrmeti rosalega gott. Sushi
kynntist ég fyrir 10 árum í veislu
hjá vini mínum. Mér fannst það
reyndar vont í fyrstu en ég fann að
þetta var eitthvað sem ég yrði að
gefa séns. Ég vissi að mér myndi að
öllum líkindum þykja það gott eftir
nokkur skipti,“ segir Dofri og sú
varð raunin.
„Það eru náttúrulega ekki margir
sushi-staðir á íslandi. Ég hef
stundum farið á Maru og hann er
ágætur,“ segir Dofri aðspurður um
þá sushi-staði sem hann stundi helst.
,En annars finnst mér mjög gaman
að gera sushi heima. Við dóttir mín
gerum það oft saman og hún hefur
voðalega gaman af því að vera með
puttana í þessu. Við gerum þetta oft
á föstudögum. Slökkvum þá á frétt-
unum og búum til sushi eða jafnvel
pítsu,“ segir Dofri. Hann segir að á
morgun muni hann þó líklega ekki
hafa orku fyrir sushi-gerð enda
vikan búin að vera erfið. „Þetta
tekur svo mikinn tíma. En ég bæti
það upp eftir viku, þá munum við ör-
ugglega gera sushi.“
Versti matur:
Brauðsúpa „Ég hef gert ítrekaðar
tilraunir til þess að reyna að láta
mér líka við brauðsúpu en það hefur
bara aldrei tekist. Þetta var stundum
í matinn þegar ég var krakki en
ég hef aldrei verið hrifinn af þessu.
Sem betur fer eru mörg ár síðan
þetta var borið á borð fyrir mig síð-
ast,“ segir Dofri.
Uppáhalds veitingastaður:
Ban-Thai „Þetta er litill og sætur
staður á Laugavegi sem selur ta-
ílenskan mat. Verðið þar er hóflegt
en maturinn mjög góður. Þetta er
ekki of fínn staður og maður getur
alveg farið þangað án þess að senda
sparifötin í hreinsun á undan,“ segir
Dofri og bætir við að uppáhalds
staðirnir sínir séu þar sem hann fær
verulega góðan mat en þarf ekki að
vera alltof fínn. „Mér líður ekki vel
þegar ég er alltof fínn. Það er eins og
Óskar á Argentínu sagði einhvern
tíman; það kostar nákvæmlega það
sama fyrir kokkinn að búa til góðan
mat og vondan mat. En svo er það
bara umhverfið sem þú ert að borga
fyrir,“ segir Dofri.
Skrýtnasti matur:
Soðið egg í majónesbeði „Þegar
ég var 19 ára var ég á ferðalagi á
Spáni ásamt Degi Gunnarssyni vini
mínum. Hann hafði venjulega orð
fyrir okkur þar sem hann kann
spænsku en ekki ég. Hann hafði
brugðið sér eitthvað frá og ég þurfti
að panta sjálfur mat. Ég ætlaði sem
sagt að panta súpu dagsins en fékk
mat sem reyndist vera soðið egg í
majónesbeði. Þetta var í 40 stigahita
og eggið var við það að fljóta út úr
hálfbráðnuðu majónesinu. Þannig
að þetta var ekki alveg beint það
sem mig langaði í,“ segir Dofri og
hlær. Með hjálp spænskumælandi
vinar síns tókst honum þó að skila
hinu ólystuga eggi.
bjorn@bladid.net
Dofri ásamt dóttur sinni, en þau feðgin
hafa gaman af því að elda saman.
Nýverið fjárfestu þau í safapressu og
hefur hún komið að góðum notum við
matseldina.