blaðið - 09.02.2006, Page 26
26 I HEIMILI
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006
Fœr innblástur úr fornsögunum
Virt bandarískt fagtímarit birti heilsíðugrein um íslenska púða með rúnaletri ogformum úr fornsögunum
Sigrún Lára Shanko hefur vakið
mikla athygli fyrir fallega
silkipúða og veggteppi. Hróður
hennar hefur einnig borist er-
lendis og nýlega birtist heil-
síðugrein um verk hennar í virtu
bandarísku tímariti sem Sigrún
viðurkennir auðmjúk að sé mikill
heiður. Blaðamaður tók Sigrúnu
tali og skoðaði falleg listaverk.
Sigrún hand-
málar alla púða
og veggteppi með
sérstakri tækni.
,Ég er með þannig
liti að þeir lita silki-
þráðinn en liggja
ekki ofan á. Þetta er
ioo% litun þannig
að ég þarf að lita
allt eftir á í gufu.
Ég vil stundum
að litirnir geti blandast
saman og stundum ekki og það er
því ákveðin tækni sem ég nota. Ég
lita allt myndverkið i einu og lita-
festi það svo í restina," segir Sigrún
og bætir við að púðarnir og teppin
séu úr silki. „Teppin eru með ull-
arvatteringu og ég handsauma öll
stóru teppin. Hvert teppi tekur mig
um 4-6 vikur en púðarnir taka mig
allajafna um viku og síðan fara þeir
í saum.“
Steinristur í silki
Þegar verk Sigrúnar eru skoðuð má
sjá rúnaletur og form úr íslensku
fornsögunum sem gefur verkum
hennar óneitanlega skemmtilegan
íslenskan stíl. „Síðustu fjögur ár
hef ég lesið fornbækurnar okkar og
ég vinn mikið teppin úr þeim. Eins
nota ég töluvert af rúnaletri. Ég fékk
áhuga á að nota fornsög-
urnar því mér fannst
formin og táknin svo
falleg. Ég byrjaði á
þessu í púðunum og ég
kalla það steinristur í
silki. Síðan fannst mér
ég þurfa að gera stærri
verk líka og þá þurfti
ég að lesa mér til
enda las ég fornsög-
urnar síðast þegar
ég var barn.“
í grásvörtu hrauni og
grænum mosa
Sigrún lærði silkilitun árið 1995 og
hefur síðan verið að þjálfa sig og
finna sinn eigin stíl. „Ég opnaði
vinnustofu á Skólavörðustígnum
árið 2004. Ég sel verkin mín úr
vinnustofunni auk þess sem hægt
er að nálgast þau á heimasíðunni
en erlendir kaupendur nýta sér
hana aðallega,“ segir Sigrún sem
hefur fengið mjög góð viðbrögð við
verkum sínum sem hún segir að sé
Ekta verðverndardæmi
ATIKA steypuhrærivél
ATIKA Profi 145 S
mk%
rau
sm
I Laegra^
'gSk
ihIIniUM 3/lif
o
llll/fl LyUL/f / v
Byggingavöruverslunin íÁrbænum
Kletthálsi 7 • Slmi: 544-5470 • sala@murbudin.is ■ www.murbudin.is
Sigrún Lira Shanko:„Ég fékk áhuga á að nota fornsögurnar því mér fannst formin og táknin svo falleg.
mjög hvetjandi. „Surface Design
Journal er fagtímarit sem hafði
samband við mig og vildi fá mig í
viðtal. Lausablaðamaður þeirra rölti
hingað inn í búð til mín og vildi endi-
lega taka viðtal við mig. Hún skrifar
mikið um textíl og var mjög hrifin
af verkum mínum. Þau gefa bara út
íjögur blöð á ári og viðtalið var tekið
í maí 2005 í New York. Ég lét mynda
púðana út í hrauni og það kom mjög
vel út, þessir miklu litir í grásvörtu
hrauni og grænum mosa. Blaðið
var að koma út núna í janúar og ég
fékk umfjöllun á heilli blaðsíðu. Ég
er mjög ánægð með þetta og þetta er
þvílíkur heiður,“ segir Sigrún með
stolt í röddinni.
svanhvit@bladid.net
Hvítt og svart vinsœlt
Heimaflytur inn húsgögnfrá Spáni, Ítalíu ogfleiri löndum
„Við erum með mikið úrval af borð-
stofuhúsgögnum, sófasett, stóla og
margt fleira," segir Jóhann Svavar,
verslunarstjóri húsgagnaverslunar-
innar Heima.
„Borðstofuhúsgögnin eru mikið
í ljósri og dökkri eik en svartur og
hvítur eru vinsælir litir á sófum.
Áklæði sófanna eru úr leðri, hör og
grófri bómull en gróf áklæði eru vin-
sæl núna. Línur sófanna eru beinar
en mýkri linur eru að koma. Þá
er vinsælt að fólk taki staka stóla í
sterkum litum með sófunum.“ Jó-
hann tekur dæmi um rauða og lime-
litaða stóla sem eru keyptir með
svörtum eða hvítum sófum til að
lífga upp á heimilið.
„Við flytjum inn húsgögn frá
Spáni, Italíu, Frakklandi og Kína
en erum líka með gjafavöru og borð-
búnað sem kemur frá Frakklandi og
Ítalíu. Verð stakra sófa er á bilinu
89-330 þúsund krónur en þessi vika
er síðasta vika útsölunnar.
Við fáum nýjar vörur á
næstu vikum. Við erum
einnig með mikið úrval
sjónvarpsskenka en nú
eru þeir hafðir lágir og
langir,“ segir Jóhann sem
segir skenkana 30-50 cm
á hæð og allt að tvo metra
á lengd. „Skenkarnir eru
fínir fyrir þá sem eru
með veggsjónvörp en
þá eru þeir notaðir fyrir
DVD spilara, afruglara
og jafnvel geisladiska.
Sumir skenkarnir eru
með lokuðum skápum
sem hægt er að setja tækin í. Sjón-
varpsskenkarnir eru úr ljósri og
dökkri eik og með hvítri háglans
áferð."
Jóhann segir að hvft háglans áferð
sé mjög vinsæl núna og að í versl-
uninni sé einnig hægt að fá kom-
móður og veggskápa í þessum
lit. „Kristalsljósakrónurnar eru líka
mjög vinsælar hjá okkur en þær eru
mikið teknar í borðstofur."
hugrun@bladid.net
50%
afsláttur/
18%
afsláttury
50%
afsláttury
75%
afsláttur/
50%
afsláttur/
XPER800
Ferðageislaspllar
með utvarjJog
45 sek hristivörn
hristivörn
sónvarp/útvarp
50%
^afsláttur/
HS^sjonv&rp’ ? ' f TÍ7TÍ05-
Nicam stereo og
textavarp
www.radio.is
25%
afsláttun
60%
afsláttur;
40%'
afsláttun
ARMULA38-SIMI 553 1133
Stálblandari með
glerkönnu