blaðið - 09.02.2006, Side 30
30 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Hver tekur VÍð íslenska oid Trafford verður
handboltalandsliðinu? áfram 01d Trafford
Nú er það alveg á hreinu að Viggó
Sigurðsson, sem hefur þjálfað lands-
liðið í handknattleik með svo góðum
árangri, verður ekki áfram landsliðs-
þjálfari. Viggó sagði þetta í Morgun-
blaðinu í gær og einnig í útvarpsþætt-
inum Mín Skoðun á XFM í gær.
„Þetta er mitt lokasvar. Ég er
hættur", sagði Viggó í útvarps-
viðtalinu.
En hverjir gætu tekið við af Viggó?
Margur þjálfarinn hefur verið
nefndur til sögunnar og hér koma
nokkur nöfn.
Atli Hilmarsson er þjálfari FH.
Atli hefur mikla reynslu af þjálfun
og er fyrrum landsliðsmaður í hand-
knattleik og atvinnumaður í Þýska-
landi. Hann hefur þjálfað hér á landi
sem og í Þýskalandi og hefur einu
sinni stýrt liði til sigurs á íslands-
mótinu en það var lið KA-manna.
Atli hafði þetta að segja i gær um
starfið þegar Blaðið hafði samband
við hann. „Það hefur enginn talað
við mig um þetta frá HSÍ og því hef
ég ekkert um þetta að segja að svo
stöddu", sagði Atli Hilmarsson.
Geir Sveinsson fyrrum þjálfari
Vals og fyrrum fyrirliði landsliðs-
ins. Geir hefur ekki verið í þjálfara-
stöðu síðasta árið en Geir “hefur
ekki enn náð árangri” sem þjálfari
eins og Viggó komst að orði i áður-
nefndu útvarpsviðtali í gær. Geir
hefur mikla reynslu af alþjóðlegum
handbolta en hann lék um árabil í
atvinnumennsku í Þýskalandi sem
og í Frakklandi og á Spáni eða alls
í ío ár. Geir þykir mjög líklegur til
að taka við starfinu og einna lík-
legastur af þeim sem nefndir eru.
Blaðið hafði samband við Geir í gær
og hann hafði þetta að segja. „Ég hef
ekkert um sjálft landsliðsþjálfara-
starfið að segja né hverju ég myndi
svara ef mér yrði boðið starfið. Það
hefur ekki verið rætt við mig af HSÍ-
mönnum. Það er sem sagt þetta
klassíska, þetta er tómt mál að tala
um“, sagði Geir Sveinsson.
Alfreð er enn inn í myndinni
Júlíus Jónasson er þjálfari ÍR. Júlíus
hefur mikla reynslu af alþjóðlegum
handbolta. Hann var atvinnumaður
í ío ár, þrjú ár í Frakklandi, 2 ár á
Spáni, 2 ár í Þýskalandi og 3 ár í
Sviss. Þá hefur Júlíus þjálfað ÍR
síðastliðin 5 ár. Júlíus hafði eftirfar-
andi að segja um landsliðsþjálfara-
stöðuna þegar hann var inntur eftir
því í gær.
„Það hefur enginn talað við mig.
Ég hef vissulega heyrt mitt nafn í
þessu sambandi en meira er það
ekki. Það er heiður að vera nefndur
í þessu sambandi. Þetta eru nú bara
vangaveltur enn sem komið er. Ég
er ekkert að velta þessu fyrir mér“,
sagði Júlíus Jónasson þjálfari ÍR.
Dagur Sigurðsson er þjálfari aust-
urriska liðsins Bregenz sem er í lang
efsta sæti deildarkeppninnar. Dagur
er margreyndur í alþjóðlegum hand-
bolta og hefur verið atvinnumaður i
10 ár. Hann hefur leikið í Þýskalandi,
í Japan og í Austurríki þar sem hann
er nú sem spilandi þjálfari. Dagur
var fyrirliði íslenska landsliðsins til
margra ára og hætti í landsliðinu á
síðasta ári.
„Ég vil mest lítið segja um það. Ég
er með samning hérna úti við Breg-
enz út næstu leiktíð en ég myndi
skoða það alvarlega ef mér yrði
boðin landsliðsþjálfarastaðan. Ég
yrði að fá mig lausan héðan og hef
reyndar ekki hugmynd um það
hvernig það myndi ganga fyrir sig.
HSÍ hefur ekki rætt við mig um
þetta en ég hef heyrt að ég hafi verið
nafngreindur”, sagði Dagur Sigurðs-
son þjálfari Bregenz í Austurríki.
Alfreð Gíslason fyrrum þjálfari
Magdeburg í Þýskalandi. Alfreð
býr í Þýskalandi og hefur gríðar-
lega mikla þekkingu á alþjóðlegum
handbolta. Hann stýrði Madgeburg
til sigurs í þýsku deildinni og einnig
í meistardeildinni í handbolta. Al-
freð var nýlega rekinn frá Magde-
burg þar sem hann var búinn að
semja við Gummersbach en hann
tekur við því liði vorið 2007 sam-
kvæmt samningi. Alfreð hafði þetta
að segja í gær þegar Blaðið hafði sam-
band við hann um landsliðið.
„Það er aðeins flóknara en það.
Ég verð að viðurkenna að það yrði
mikil áskorun að fata í leikina gegn
Svíum. Til þess að þetta geti gengið
upp þyrfti ég að ganga frá starfsloka-
samningi við Magdeburg. Er mögu-
leiki á að þetta geti gengið upp? Ef
það yrði leitað til mín gæti ég ekki
svarað fyrr en ég væri þá búinn að
ræða við Magdeburg. Ég er ekki bú-
inn að því“, sagði Alfreð Gíslason í
samtali við Blaðið.
Stjórn enska úrvalsdeildarliðsins
Manchester United vísaði því á bug
í gær að nafni heimavallar félagsins,
Old Trafford, yrði breytt.
Nokkuð hefur verið í umræðunni
að undanförnu eftir að Og Vodafone
ákvað að endurnýja ekki styrktar-
samning við United að næsti styrkt-
araðili vildi fá nafn sitt á heimavöll fé-
lagsins. Slíkt þekkist á þó nokkrum
völlum og má í því sambandi nefna
næsta heimavöll Arsenal sem ber
heitið Emirates-stadium.
Breska slúðurblaðið The Sun full-
yrti að næsti styrktaraðili hjá félag-
inu myndi ekki einungis fá nafn sitt
framan á treyjur leikmanna heldur
Egypski landsliðsmaðurinn í knatt-
spyrnu, Ahmed Mido, var í gær rek-
inn heim frá Afríkukeppninni sem
nú stendur sem hæst.
Mido, sem er leikmaður enska
úrvalsdeildarliðsins Tottenham,
var mjög ósáttur með að vera skipt
útaf í leik Egyptalands og Senegal
í undanúrslitum keppninnar en
það voru um tíu minútur eftir af
leiknum þegar skiptingin fór fram.
Mido brást þá mjög illa við og hellti
sér yfir landsliðsþjálfarann, Hassan
Shehata, og þetta gekk svo langt að
það varð að skilja þá að. Sá sem kom
inná fyrir Mido heitir Amr Zaki
og sá náungi gerði sér lítið fyrir og
skoraði sigurmarkið sem fleytti
Egyptum í úrslitaleikinn gegn
Fílabeinsströndinni.
Hassan Shehata þjálfari og eg-
ypska knattspyrnusambandið
ákvaðu síðan í gær að vísa Mido út
úr landsliðshópnum og settu hann
í sex mánaða bann með landsliðinu.
Mido bað í gær áhangendur egypska
liðsins afsökunar en hann sagðist
ekki sjá eftir að hafa sagt sína mein-
ingu við Shehata þjálfara. „Ég var að
leika vel og ef ég hefði verið áfram
einnig á heimavöll Manchester Un-
ited. Stjórn United tók af öll tvímæli
um þetta í gær og sagði í samtali við
BBC að fréttin hjá The Sun væri al-
ger tilbúningur og að þetta stæði alls
ekki til. Nafn heimavallar United
yrði áfram sem fyrr, Old Trafford.
Hassan Shehata, þjálfari
Egyptalands, var mjög ósáttur
með framkomu Mido
inná, þá hefði ég skorað mark“,
sagði Mido við fréttamenn.
Þetta er mikið áfall fyrir egypska
liðið en Mido er aðalstjarna liðsins.
Hann verður því ekki með liðinu
sem mætir Fílabeinsströndinni í úr-
slitum á morgun.
Martin Jol framkvæmdastjóri
Tottenham brosir væntanlega og
getur teflt Mido fram í leik Totten-
ham gegn Sunderland á sunnudag í
ensku úrvalsdeildinni.
,Lokasvar: Ég er hættur"
segir Viggó Sigurðsson.j
miÖ/Steinar Hugi
Mido rekinn heim
Löður
n
c
X'
%
0)
avörur
etra verði
IB ehf. Selfossi. Þjónusta & ábyrgð S. 480 8080 www.ib.is
Vtó hjálpucm, þér að drflLtmabíLíiAsiAs C QtQv^uvu
IB ehfTselfossi T^eílfZ^ðu ut verðíð á www.cdrusa.is
Kíkið á www.sportnet.is
Verslun okkar að
Funalind 2,
Kópavogi
beygt inn Fitjalind)