blaðið - 09.02.2006, Síða 37
blaöiö FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006
DAGSKRÁ I 37
UMRÆÐA
LOGNAST ÚT AF
koIbnin@bladid.net
Mér fannst merkilegt að hlusta á
Ögmund Jónasson í Silfri Egils síð-
astliðinn sunnudag. Hann var að
ræða um brottrekstur Guðmundar
Magnússonar af Fréttablaðinu. Guð-
mundur, sem er afar fær blaðamað-
ur, skrifaði leiðara um málefni DV
í Fréttablaðið og ýmislegt í þeim
skrifum mátti túlka
sem gagnrýni á yfir-
menn hans. Fyrir það
var hann rekinn. Ög-
mundur gerði þetta að
umtalsefni, furðaði sig
á þessum brottrekstri
og var hvass og beittur
eins og hans var von og vísa. Mér
heyrðist á öðrum þátttakendum í
umræðunum að þeir væru nokkuð
sammála Ögmundi en samt lognað-
ist umræðan út af. Sem mér finnst
nokkur synd. Það er nefnilega full
ástæða til að ræða þennan brott-
rekstur og ástæðu
hans. Ég hefði hald-
ið að það væri ekki
eitt af hlutverkum
blaðamanna að
líma sig fast við
yfirmenn sína í
hvaða vitleysu sem
er. Ég hef reyndar séð blaðamenn
gera slíkt og ber enga virðingu fyr-
ir þeim. Ég ber hins vegar virðingu
fyrir Guðmundi Magnússyni sem
þorði að segja skoðun sína, þrátt
fyrir að hafa vitað að hún yrði ekki
vinsæl á æðstu stöðum.
20.20 Geim-
ferðakapp-
hlaupið (3:4)
(Space Race)
Nýr breskur
myndaflokkur
um fólkið sem
var í aðalhlut-
verkum í geim-
ferðakapphlaupi Bandaríkjamanna
og Rússa. Þátturinn er einstaklega
vandaður og meðal leikenda eru
Richard Dillane, Anthony Edridge,
Mikhail Gorevoy, Constantine Greg-
ory, Steve Nicolson og Vitalie Ursu.
20.30 Malcolm in the Middle
Vandamál Malcolms snúast sem
fyrr um að lifa eðlilegu lífi sem er
nánast ómögulegt eigi maður væg-
ast sagt óeðlilega fjölskyldu. Hal,
Lois og strákarnir hafa unnið hug
og hjörtu áhorfenda enda erfitt að
standast eðlislæga persónutöfra
þeirra. Bráðskemmtilegir gaman-
þættir fyrir alla fjölskylduna.
21.20 Nip/Tuck (5:15) (Klippt
og skorið 3) Einhverjir svakalegustu
framhaldsþættir sem gerðir hafa
verið eru orðnir ennþá svakalegri.
Eins og þeir muna glöggt sem sáu
uppgjörið geggjaða í annarri þátta-
röð þá var hið flókna og úrkynjaða
líf lýtalæknanna Sean og Christian
orðið flóknara en nokkru sinni áð-
ur - og er þá mikið sagt. Stranglega
bannað börnum.
Plata í safnið
Laugardaginn 18. febrúar næst-
komandi kemur í ljós hvaða lag
verður framlag íslands í Söngva-
keppni Evrópskra Sjónvarps-
stöðva í ár. 15 lög keppa til úrslita
í beinni útsendingu í Sjónvarp-
inu en þriðjudaginn 14. febrúar
kemur út plata sem geymir öll 15
lögin fullunnin í hljóðveri. Hér
er því um opinberar útgáfur lag-
anna að ræða.
Það er óhætt að segja að Söngva-
keppnin hafi vakið mikla athygli að
undanförnu og raunar deilur líka
en enginn efast um að áhuginn er
gríðarlegur. Það þótti því við hæfi á
20 ára afmæli þátttöku íslendinga í
Eurovision að gefa úrslitalögin út á
geislaplötu en sambærileg útgáfa á
lögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins
hefur ekki átt sér stað síðan 1988. Þá
var það safnskífan Þú og þeir og all-
ir hinir nema einn sem leit dagsins
ljós nokkrum vikum eftir forkeppn-
ina. Eins og titill plötunnar vísar
til voru á henni sigurlagið Þú og
þeir (síðar Sókrates) og öll hin lög-
in sem þá kepptu til úrslita, nema
eitt. Raunar var það lag sem Bjarni
Ara söng í keppninni en hann gaf
skömmu síðar út sína fyrstu sóló-
plötu sem hét því viðeigandi nafni
Þessi eini þarna.
í ár voru 24 lög valin til þátttöku í
Söngvakeppni Sjónvarpsins og eftir
þrjá undanúrslitaþætti keppa 15 lög
til úrslita eins og frægt er orðið. Öll
lögin 15 eru á plötunni, í þeirri röð
sem þau verða flutt á lokakvöldinu.
Löqin eru hér
í stafrófsröð:
• 100%
Rúna G. Stefánsdóttir
og Brynjar Már Valdimarsson
• 100% hamingja
Heiða
• Andvaka
Guðrún Árný
• Á ég?
Bjartmar Þórðarson
• Eldur nýr
Ardís Ólöf
• Flottur karl, Sæmi Rokk
Magni & Magnararnir
• Hjartaþrá
Sigurjón Brink
• Myndafþér
Birgitta Haukdal
• Sést það ekki á mér?
Matti
• Strengjadans
Davíð Olgeirs
• Stundin - staðurinn
Edgar Smári Atlason og
Þóra Gísladóttir
• Til hamingju fsland
Silvía Nótt
• Útópía
Dísella
• Það sem verður
Friðrik Ómar
• Þér við hlið
Regína Ósk
Lopez og Anthony eiga von á barni
Söngkonan með baksvipinn Jennifer Lopez og
eiginmaður hennar, Marc Anthony, hafa ýtt
undir orðróm um að þau eigi von á barni með
því að kaupa sér einkaaðgang að fínni barna-
vöruverslun í Hollywood.
Leik- og söngkonan fékk verslunareigendur
í mjög fínni og þar með dýrri verslun, Petit
Tresor, til að loka dyrunum fyrir öðrum við-
skiptavinum í þrjú korter í síðasta mánuði svo
hún gæti verslað án truflana. Heimildarmaður
sagði íj'ölmiðlum að Lopez hefði komið með
annarri konu, hugsanlega fjölskyldumeðlimi
eða aðstoðarmanni og keypt stelpuvörur fyrir
þúsundir dala.
Verslunin er uppáhald margra Hollywood-
mæðra og verðandi Hollywoodmæðra, t.d.
Katie Holmes og Britney Spears. Talsmaður
Lopez ber sögusagnirnar á bak aftur.
Ný þjónusta
við flokkun og
endurvinnslu!
Nú geta íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengið sérmerkta
endurvinnslutunnu hjá Gámaþjónustunni hf. sem m.a.
tekur við öllum pappír heimilisins, dagblöðum, tímaritum,
umslögum, skrifstofupappír og pappa, fernum, plast-
umbúðum og málmum.
Einfalt í framkvæmd:
Allur pappír og bylgjupappi má fara beint í tunnuna en
fernur, málmar og plastfari í aðskilda poka í sömu tunnu.
Mánaðargjald fyrir hverja tunnu er 990 kr. og tæmt verður
á fjögurra vikna fresti.
GÁNIAMÓNUSTAN HF.
BÆTT UMHVERFI - BETFIIFRAMTÍÐ
Sími: 535 2500 • gamar@gamar.is • www.gamar.is
Endurvinnslutunnuna er hægt að panta
í síma 535 2510, á netfanginu gamar@gamar.is
og einnig á heimasíðu Gámaþjónustunnar hf.
www.gamar.is
Komið verður með tunnur heim til viðtakenda.