blaðið - 11.02.2006, Síða 28
28 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 blaöíö
MHalldóra hugsar upphátt
; ■ ■ , ;; . ... ■■ ■
Þjóðarstoltið í hávegum...
Mikið fjaðrafok varð á dögunum þegar Halldór Ásgrímsson,
forsætisráðherra fslands, lét hafa eftir sér spádóm um aðild
íslands að Evrópusambandinu innan fárra ára. Menn hafa
velt vöngum yfir því hvort hann megi eða sé í stöðu til þess
að kasta fram slíkum yfirlýsingum og umræðan hefur orðið
vægast sagt fyndin. Þetta er nefnilega alveg einkennandi fyrir
okkur; Ráðherra leyfir sér að opna munninn, land og þjóð
bregðast ókvæða við „upphlaupinu” og allt ætlar um koll að
keyra í landinu. Skondið, ekki satt?
I öllum látunum vill fólk svo gleyma að kannski er verið að
vekja okkur til umhugsunar og kalla á málefnalegri viðbrögð
en eingöngu þessi öskur og óp yfir framferði forsætisráðherra.
Getur fólk ekki bara dokað aðeins við og tekið þessu alvarlega?
Halldór virðist, eins og svo margir, vera þeirrar skoðunar að
innan tíðar verðum við orðin aðildarríki í ESB og lái ég honum
ekki þá skoðun. Auðvitað er þetta ekki spurning
um hvort - heldur hvenær. Eg ætla allavega rétt
að vona að við verðum ekki i þriggja manna
kana með Noregi og Liechtenstein í EFTA til
frambúðar.
Halldór segir reyndar engar pólitískar for-
sendur til þess að taka ákvörðun um aðild okkar
núna vegna þess að umræðan hafi ekki verið
nægilega þroskuð hér á landi. En þar stendur
einmitt hnífurinn i kúnni! Afstaða ráðamanna
þjóðarinnar hefur ekki verið nægilega þroskuð
hingað til, en það lýsir sér einna best í óþarfa
stolti varðandi þetta litla land okkar, Island.
Hvað erum við að halda okkur til hlés og snið-
ganga inngöngu í ESB? Erum við svona yfirgeng-
ilega sjálfstæð, eða höfum við ekki kjark-
inn í að lúta eilítlu yfirþjóðlegu valdi
stofanana Evrópusambandsins?
Sitt sýnis að sjálfsögðu hverjum, en
ég held að tími sé kominn til að vaða í
þetta mál og reyna að standast tímans
tönn. Það er eingöngu tímaspursmál
hvenær frændur okkar, Norðmenn,
munu ganga í sambandið og þá
sitjum við eftir með sárt ennið
og eflaust litin hornauga af stærri
þjóðum fyrir þessa afstöðu okkar...
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Breytist þú
þegar þú ert
ástfangin?
Þegar það kemur að málefnum
hjartans þá er það sem þú veist
um sjálfa/n þig besti leiðarvísir
þinn til að finna og viðhalda
góðu sambandi. Rétt eins og þú
hefur venjulegan persónuleika þá
hefurðu ákveðinn persónuleika
í ástum. Þar sem ástin grípur
þig, sendir straum um þig alla og
fyllir huga þinn af hugsunum um
þennan eina rétta og því er líklegt
að þú sért ekki alveg með sjálfri
þér. Þreyttu prófið og þá kemstu
að því hvernig þú ert þegar þú ert
ástfangin.
IÞú ert eins rómantísk og..
a) Kampavín og jarðaber
b) Blóm ogvín
c) Pizza og bjór
d) Gos og nammi
Þér finnst mikilvægast að
vera...
a) Góð
b) Réttsýn
c) Girnileg
d) Raunveruleg
3Hvernig líður þér þegar
þú ert að byrja í nýju
sambandi?
a) Ég er í skýjunum og er sann-
færð um að þetta samband endist
að eilífu
b) Þrátt fyrir að allt gangi vel þá
er ég ekki sannfærð um að hann sé
sá eini rétti.
c) Mér Hður ótrúlega vel en ég
reyni að láta það ekki stíga mér til
höfuðs. Lífið heldur áfram, þrátt
fyrir allt.
d) Þetta er alveg gaman en ég gef
mig ekki alla í sambandð þar sem
ég veit ekki hvort þetta sé minn
draumamaður.
Heldurðu góðu sambandi
við fjölskyldu og vini?
a) Nei, eiginlega ekki
b) Yfirleitt
c) Ég hef samband við þau á
hátíðisdögum
d) Auðvitað, það er forgangsatriði
5Ef líf þitt væri kvikmynd þá
væri það...
a) Rómantísk mynd
b) Spennumynd
c) Rómantísk gamanmynd
d) Enginn myndi búa til mynd
um mig
6Þinn heittelskaði talar
mikið um vinnufélaga sína
þar á meðal eina stclpu sem
er sæt og skemmtileg. Hvað gerir
þú í málinu?
a) Fer í vinnuna og tala við gell-
una. Segir henni að láta minn kall
í friði eða hún fái aldeilis að finna
fyrirþví.
b) Ég geri ekkert í því en hef stöð-
ugar áhyggjur af því að hann sé að
halda fram hjá mér og skoða kvitt-
anir, símtalaskrá og skilaboð hans
reglulega.
c) Læt það trufla mig en reyni
að hugsa sem minnst um það. Ég
treysti mínum manni.
d) Pæli ekkert í því, ég á líka sæta
og skemmtilega vinnufélaga.
Sem elskhugi þá ertu...
a) Ansi heit og fær
b) Ég kann mitt fag
c) Það er margt sem ég kann
betur
d) Óreynd og óörugg
Hefurðu snuðrað í eigum
kærasta þíns?
a) Já en ég myndi aldrei
gera það aftur
b) Já og ég myndi hiklaust gera
það aftur
c) Nei en ég myndi alveg gera það
d) Nei
9Ef þinn heittelskaði myndi
gera eitthvað sem kæmi þér
í uppnám þá...
a) Myndi ég ræða það í
rólegheitunum
b) Nöldra ég um það vel og lengi
c) Pæli ég ekkert í því
d) Segi ég honum upp
samstundis
Reiknaðu saman stigin
1. a) 4 stig b) 2 stig c) 3 stig d) 1 stig
2. a) 3 stig b) 4 stig c) 2 stig d) 1 stig
3. a) 4 stig b) 2 stig c) 3 stig d) 1 stig
4. a) 1 stig b) 3 stig c) 2 stig d) 4 stig
5. a) 4 stig b) 2 stig c) 3 stig d) 1 stig
6. a) 2 stig b) 1 stig c) 3 stig d) 4 stig
7. a) 2 stig b) 3 stig c) 4 stig d) 1 stig
8. a) 4 stig b) 2 stig c) 3 stig d) 1 stig
9. a) 3 stig b) 4 stig c) 1 stig d) 2 stig
9-15 stig
Þú vilt hafa rými til aö gera þaö sem þú
vilt og þaö sem aðrir eru aö gera hefur
engin áhrif á þig. Þú ert ekki týpan sem
þarft að hanga á tískubörunum eöa
nýjustu veitingastöðunum, til þess eins
að segja öörum aö þú hafir gert þaö.
I rauninni veistu sennilega ekki hvað
er f tísku því þér er eiginlega sama. Þú
veist sennilega best sjálf meö hverjum
þú vilt eyða kvöldinu og hvar. Þú leitar
aö svipuðum maka, manni sem tekur
hlutina hæfilega alvarlega. Þegar þú
finnur hann þá muntu ekki sökkva þér
í ástarþrá heldur njóta þess, eins og á
að gera.
16-22 stig
Þú kannt aö meta góöu hlutina f lífinu
og leitar eftir öörum sem hafa svipaðan
smekk. Hátfskuföt, ffnn matur og dýrar
gistingar eru allt hlutir sem þú hefur
ánægju af. Ef þú getur notiö þeirra meö
veraldlegum, flottum maka þá er þaö
fullkomiö. Þú dregst að fólki sem kann
aö sjá um sig sjálft og er félagslega
hæft. Hvort sem þú ert á veitingastað
eða á skemmtistað þá er þér mikilvægt
að vera miðja alheimsins. Makinn er þvf
ekki aðalatriðið heldur frekar hvernig
hann passar viö þig og þitt lífsmynstur.
23-29 stig
Þú átt þfnar rómantfsku stundir og þá
Iföur þér óskaplega vel. En svo geturðu
Ifka verið alveg afhuga rómantfk og
þér Iföur alveg eins vel. Þú nýtur þess
að vera ástfangin en lætur það ekki
stjórna Iffi þfnu. Þú hefur raunhæfar
væntingar til ástarinnar en leyfir þér
að gerast draumhuga annars slagið.
Þrátt fyrir að þú nýtur þfn best í góðu
og öruggu sambandi þá geturðu alveg
verið ein þess á milli enda kanntu að
njóta Iffsins.
30-36 stig
Hefðir rómantíkunnar eru þér mikilvæg-
ar og þess vegna er líklegt að þú hafir
Iftinn áhuga á karlmanni sem deilir ekki
þfnum áhuga á rauðum rósum og kvöld-
verði við kertaljós. En hins vegar ert
þú ekki bara að leita að skemmtilegu,
rómantísku stefnumóti heldur þráir þú
eitthvað dýpra. Þegar þú finnur þennan
eina rétta verður þú fyrst til að segja öll-
um að þú sért yfir þig ástfangin frekar
heldur en að leyna tilfinningum þfnum.
Til hvers Ifka að vera ástfanginn ef þú
mátt ekki segja frá þvf?