blaðið - 17.02.2006, Page 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaöiö
blaðiö=
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Hagnaður TM
margfaldast
Hagnaður Tryggingamiðstöð-
arinnar hf. (TM) eftir skatta
á siðasta ári nam tæpum 7,2
milljörðum króna. Til saman-
burðar nam hagnaður ársins
2004 rúmum 600 milljónum
króna. Þetta er mesti hagnaður
í sögu félagsins segir í tilkynn-
ingu til Kauphallar íslands í gær.
Gott gengi félagsins skýrist
aðallega af miklum fjárfesting-
artekjum sem námu rúmum
7,7 milljörðum. Vátrygginga-
starfsemi félagsins gekk hins
vegar ekki alveg jafn vel því
tæplega 500 milljóna króna tap
var á þeim hluta rekstrar TM.
Sjúkraflug-
vél enn ekki
til staðar
Engin sjúkraflugvél var til
staðar í Vestmannaeyjum þegar
tfl útkalls kom í gærmorgun.
Þetta er í annað skipti á
stuttum tíma sem þetta gerist
en það er fyrirtækið Landsflug
sem sér um sjúkraflutninga. A
fréttavefnum eyjar.net segir í
gær að ekki haft verið um bráða-
útkall að ræða. Hjá fyrirtækinu
hafi fengist þau svör að sjúkra-
flugvélin væri í viðgerð og því
hefði staðið til að nota Dornier
238 flugvél til sjúkraflutninga
á meðan. Sú vél var hins vegar
nýlent í Reykjavík þegar útkallið
kom. Hún var því ekki komin
til Eyja fyrr en um klukku-
stund eftir að útkallið barst.
„Ég er ekki samræðupólitíkus"
Gunnar Birgisson, bœjarstjóri, segir að bygging óperuhúss í Kópavogi sé í réttum farvegi.
Samfylkingin í bœnum hefur gagnrýnt Gunnarfyrir ólýðrœðisleg vinnubrögð.
„Það er verið að vinna að fjármögnun
vegna óperuhússins og hún er að
komast á lokastig,“ segir Gunnar
Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, í
samtali við Blaðið. Hann vonar að
það skýrist fyrir næstu mánaðamót
hvernig henni verði háttað. „Þá
kemst málið á fullan skrið.“
Fulltrúar Samfylkingar í bæjar-
stjórn sendu frá sér tilkynningu
þar sem vinnubrögðum Gunnars
er harðlega mótmælt. Þau segja
byggingu hússins hvergi hafa verið
samþykkta eða fjallað um málið
með nokkrum hætti í kerfinu. „Bæj-
arstjórinn hefur leikið einleik í mál-
inu og meirihlutinn hafnaði tillögu
um að það væri rætt á faglegum for-
sendum innan bæjarkerfisins með
aðkomu annarra en hans,“ segir í
tilkynningu frá bæjarfulltrúunum
sem ítreka ennfremur að þeir séu
ekki á móti byggingunni sem slíkri,
heldur mótmæli þau því sem þau
kalla ólýðræðisleg vinnubrögð
bæjarstjórans.
Ætlaði að vera búinn að þessu fyrr
„Samfylkingin er á móti byggingu
óperuhúss í Kópavogi og mér finnst
það miður,“ segir Gunnar. „Grunn-
urinn er sá að fjármögnun frá einka-
aðilum liggi fyrir og þá byrjum við
Hér mun óperuhúsið í Kópavogi að öllum líkindum risa á næstu árum.
að ræða málið í bæjarstjórninni.“
Gunnar segir að búið sé að þarfa-
greina húsið með Óperunni til þess
að hægt sé að gera sér grein fyrir
kostnaðinum. Hann bætir við að
ekki sé heldur búið að finna arkitekt
að húsinu enda verði líklega haldin
samkeppni um það þegar þar að
kemur. „Ég ætlaði að vera búinn að
þessu fyrr en það tókst ekki. Hlut-
irnir taka oft lengri tíma en maður
ætlaði sér.“
400 milljónir frá bænum
Málið er komið á þriggja ára fjár-
hagsáætlun bæjarins. Gunnar segir
það markmið bæjaryfirvalda að
setja í þetta verkefni 400 milljónir
króna næstu tvö árin, en reiknað er
með að húsið komi til með að kosta
um tvo milljarða.
„Ég er að reyna að safna átta
hundruð milljónum frá einkaað-
ilum og síðan er reiknað með að
ríkið jafni þá upphæð. Óperan á
einhverja fjármuni og síðan mun
Kópavogsbær leggja til það sem upp
á vantar.“
Ekki tímabært að ræða málið
Hann segir ekki tímabært að ræða
málið innan bæjarkerfisins. „Þegar
við erum búnir að fá fjárhagslegan
stuðning við málið þá er komið
BlaðiÖ/Frikki
að því að ræða það í kerfinu. Þá
munum við einnig hefja viðræður
við ríkið. Það eru ekki bara við sem
ráðum för í þessu máli heldur gera
fjárfestarnir það einnig. Þetta er því
ekki hefðbundin bygging á vegum
sveitarfélags.“
Gunnar þvertekur því fyrir að
hann sé að vinna málið eftir röngum
leiðum. „Ég er ekki samræðupólit-
íkus,“ segir Gunnar. „Það þarf fyrst
að vera klárt að það sjái fyrir end-
ann á þessu. Við ætlum að byggja
óperuhús, það er á hreinu og þegar
fjárhagslega hliðin liggur fyrir þá
getum við farið að ræða málið innan
bæjarstjórnarinnar.“
Stjórnmálamenn spreyttu sig í körfubolta
Fulltrúar allra flokka í komandi borgarstjórnarkosningum hittust í Laugardalshöll í gær og reyndu með sér í körfubolta. Lýsing hét
þeim sem hitt gæti úr þriggja stiga skoti 100 þúsund krónum sem viðkomandi mátti gefa til góðs málefnis. Marsibil Sæmundsdóttir,
staðgengill Björns Inga Hrafnssonar, hitti úr skoti sínu og mun Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, njóta þess. Nánar er sagt frá
keppninni á síðu 22.
Sekur um að
valda alvar-
legu slysi
mbl.is | Karlmaður sem ók vöru-
bíl gegn rauðu ljósi og á strætis-
vagn, með þeim afleiðingum að
vagnstjórinn missti báða fætur,
var í gær dæmdur í sextíu daga
skilorðsbundið fangelsi. Þá var
maðurinn sviptur ökuréttindum
í þrjá mánuði og dæmdur til
að greiða sakarkostnað upp
á rúma einá milljón króna.
Vörubílssjjórinn var einnig
sakfelldur fyrir að hafa ekið
vörubílnum þótt ábyrgðartrygg-
ing bílsins væri fallin úr gildi.
„Akærði telst hafa sýnt af
sér stórvítavert gáleysi þegar
hann ók þungum vörubíl gegn
rauðu umferðarljósi og nærri
lögleyfðum hámarkshraða
inn á fjölfarin gatnamót. Þetta
gáleysi ákærða leiddi auk þess
til stórfellds líkamstjóns fyrir
Björn Hafsteinsson, vagnstjóra
í strætisvagninum, sem varð
fyrir vörubíl ákærða,“ sagði
meðal annars i dómnum.
á morgun!
O Heiðskirt Léttskýjaö A Skýjað A Alskýjað ✓ / Rignino, litilsháttar '/// Rigning 5 7 Súld 5)! Snjðkoma y/ Slydda
Hamborg
Hefsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Oublin
Glasgow
05
-10
01
08
08
15
05
10
13
-04
08
-06
06
06
14
06
06
Slydda Snjóél ^j
Skúr
Amsterdam Barcelona 06 12 ✓ / / / •
Berlín Chicago 04 -07 o CM l 4° x
Frankfurt 04 40
/ s
40'
s /
*0
4® 4°
///
///
4° ///
40
*
Á morgun
'V v'
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands
* /
✓ /