blaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Rannsókn fyrirskipuð
á dauðasveitum í írak
Bandarískir og íraskir hermenn hengja upp myndir af eftiriýstum mönnum í bænum
Owja í (rak í gær. Höfuðsmaður í bandaríska hernum kveðst hafa komist á snoðir um
meintar dauðasveitir íraska innanríkisráðuneytisins.
Stjórnvöld í írak hafa fyrirskipað
rannsókn á hvort eitthvað sé hæft
í staðhæfingum bandarískra
heryfirvalda um að dauðasveitir
ávegum innanríkisráðuneytis
íraks hafi tekið súnnímúslíma af
lífi. Rannsóknin var fyrirskipuð
eftir að hershöfðingi í bandaríska
hernum greindi frá handtöku
22 lögreglumanna sem grunur
leikur á að hafi haft i hyggju að
ráða súnnímúslíma af dögum.
Lögreglumennirnir voru hand-
teknir seint i síðasta mánuði við
eftirlitsstöð bandaríska hersins í
norðurhluta Bagdad.
„Við höfum fundið eina dauðasveit-
ina. Þær eru hluti af lögreglunni,"
sagði Joseph Peterson, hershöfðingi
í Bandaríkjaher i viðtali við dag-
blaðið The Chicago Tribune á mið-
vikudag. Súnnímúslímarhafasakað
íraska herinn um að starfrækja
dauðasveitir en aldrei hafa verið
færðar sönnur á þær staðhæfingar.
Hussein Kamal, aðstoðarinnan-
ríkisráðherra Iraks, sagði í gær að
ráðuneytið hefði fyrirskipað rann-
sókn á málinu til að ganga úr skugga
um hvort lögreglumennirnir hafi
unnið fyrir ráðuneytið eða gefið sig
út fyrir það.
Aftökur án dóms og laga
Hundruð íraskra súnnímúslíma
hafa fundist látnir frá því stríðið
hófst árið 2003 og virðist sem um
aftökur án dóms og laga hafi verið
að ræða.
Á mánudaginn fundust lík fjög-
urra óþekktra manna í hverfi sjíta-
múslíma í Bagdad. Bundið hafði
verið fyrir augu mannanna og þeir
handjárnaðir áður en þeir voru
skotnir í höfuðið. Uppreisnarmenn
í írak hafa beitt svipuðum aðferðum
gegn trökum sem vinna með alþjóð-
legum hersveitum eða íröskum
stjórnvöldum.
Sýni úr fuglshræjum
í rannsókn
Mbl.is/ Niðurstöður úr sýnum, sem
tekin voru úr 35 dauðum fuglum
sem fundust víða um Danmörku og
munu skera úr um hvort fuglarnir
hafi smitast af H5 stofni fuglaflensu-
veirunnar, liggja fyrir í fyrsta lagi í
kvöld, að sögn Mogens Madsen, yf-
irmanns matvæla- og dýralækninga-
stofnunar Danmerkur. Sýnin voru
rannsökuð á rannsóknarstofu í Ár-
ósum í Danmörku í gær.
„Við væntum svars frá rannsókn-
arstofunni á föstudagskvöld og
mun Matvæla- og dýralæknastofn-
unin taka ákvörðun um aðgerðir i
framhaldi af því,“ sagði Madsen í
samtali við danska dagblaðið Jót-
landspóstinn í gær. Fyrst verða
DNA-sýni tekin úr öndunarfærum
og þörmum fuglanna til að skera úr
um hvort fuglarnir hafi drepist úr
H5 afbrigði fuglaflensuveirunnar.
Madsen sagði að ekki muni liggja
fyrir fyrr en á mánudag eða þriðju-
dag hvort um banvæna afbrgiðið
H5N1 væri að ræða.
Meinafræðingur við rannsóknarstofu f Arósum rannsakar eitt af 35 fuglshræjum sem
fundist hafa víða um Danmörku.
Reuters
Aziz Dweik, tilvonandi forseti á þingi Palestínumanna, flettir Kóraninum á heimili sfnu
f Hebron á Vesturbakkanum f fyrradag. Yfirmenn í ísraelska varnarmálaráðuneytinu
íhuga að takmarka enn frekar ferðafrelsi Palestínumanna eftir að nýtt þing Palestínu-
manna tekur til starfa í næstu viku.
ísraelsmenn íhuga
hömlur á ferðafrelsi
Varnarmálaráðuneyti fsraels
leggur til að Palestínumönnum
verði bannað að vinna í ísrael og
ferðast á milli Gasasvæðisins og
Vesturbakkans um leið og Hamas-
samtökin taka við stjórnartaum-
unum í Palestínu. Einnig lögðu
yfirmenn í ráðuneytinu til að
áætlunum um uppbyggingu hafn-
armannvirkja og nýs flugvallar á
Gasasvæðinu yrði skotið á frest.
Ríkisútvarpið í fsrael greindi frá
þessu í gær.
Ehud Olmert, starfandi forsæt-
isráðherra, þarf að leggja blessun
sína yfir tillöguna en ef hann gerir
það kann bannið að taka gildi
í næstu viku þegar Hamas-sam-
tökin komast í meirihluta á þingi
Palestínumanna.
Aðgerðirnar myndu hafa áhrif á líf
nokkurra þúsunda Palestínumanna.
Stjórnvöld í ísrael hafa þegar tak-
markað ferðir Palestínumanna á
milli Gasasvæðisins og Vesturbakk-
ans vegna uppreisnar Palestínu-
manna sem hófst árið 2000.
Hamas-samtökin unnu óvæntan
sigur í þingkosningunum 25. janúar
og fer setningarathöfn nýja þingsins
fram á morgun.
fsraelsk stjórnvöld hafa heitið því
að eiga ekki samskipti við samtökin
fyrr en þau viðurkenna fsraelsríki
og hafna ofbeldi.
Stjórnvöld í Rúanda ósátt
við flutning réttarhalda
Stjórnvöld í Rúanda eru ósátt við
að réttarhöld yfir meintum stríðs-
glæpamanni verði flutt frá Tansaníu
til Noregs. Fulltrúi sérstaks stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóð-
anna greindi frá því í fyrradag að
Norðmenn hefðu fallist á að rétta í
máli Michel Bagaragaza sem grun-
aður er um aðild að þjóðarmorðum
í landinu árið 1994.
Bagaragaza gaf sig fram við stríðs-
glæpadómstólinn á síðasta ári en
honum er gefið að sök að hafa fyr-
irskipað morð á hundruðum tútsa
sumarið 1994.
Yfirsaksóknari við dómstólinn
segir að þrjú önnur Evrópuríki hafi
samþykkt að rétta í málum. Stjórn-
völd í Rúanda hafa oft farið fram á
að réttað verði í málunum í þeirra
lögsögu. Stríðsglæpadómstóllinn
hefur hafnað þeirri beiðni þar sem
stjórnvöld í Rúanda vilja ekki af-
nema dauðarefsingu.
Noregur verður fyrsta landið
utan Afríku þar sem réttað er yfir
manni sem grunaður er um aðild
að þjóðarmorðunum í Rúanda að
beiðni Stríðsglæpadómstólsins.
Talið er að um 800.000 tútsar og hóf-
samir hútúmenn hafi verið drepnir í
þjóðarmorðunum.
^4
GARÐHEIMAR
heimur heillandi
„ hluta og hugmynda
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is