blaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 22
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Real Madrid er ríkast
Bikarúrslitaleikirnir í
körfuboltanum á morgun
Endurskoðendafyrirtækið Deloitte
birti í gær árlegan lista sinn yfir
20 ríkustu knattspyrnufélög heims.
Listinn er fyrir keppnistímabilið
2004-2005 og er um að ræða hagnað
þegar gjöld hafa verið dregin frá
tekjum. Eignir og annað slíkt er sem
sagt ekki með í þessum tölum.
Enska úrvalsdeildarliðið Manc-
, hester United hefur verið í efsta sæti
þessa Usta mörg undanfarin ár en
nú er öldin önnur. Spænsku risarnir
í Real Madrid tróna nú á toppnum
með mesta hagnaðinn og það eru
ekki neinar smá upphæðir sem um
ræðir hjá þessum félögum. Hagnaður
Real Madrid fyrir tímabihð 2004-
2005 nam rúmlega 20 milljörðum
ísienskra króna. Stórlið Manchester
United er núna í öðru sæti þessa lista
með hagnað upp á rúma 18 milljarða.
ítölsku risarnir í AC Milan eru með
þriðja mesta hagnaðinn, rúma 17 millj-
arða íslenskra króna.
Listinn yfir ríkustu liðin lítur ann-
ars svona út í íslenskum krónum:
1. Real Madrid -20.460 milljónir
2. Man.United -18.304 milljónir
3. ACMilan-17.380 milljónir
4. Juventus -17.039 milljónir
5. Chelsea -16.401 milljón
6. Barcelona -15.444 milljónir
7. Beyern Munchen -14.080 milljónir
8. Liverpool -13.464 milljónir
9. Internazionale -13.167 milljónir
10. Arsenal -12.727 milljónir
Það verður mikil barátta sem fer
fram á fjölum Laugardalshallar á
morgun. Þá fara fram úrslitaleik-
irnir í bikarkeppni Körfuknattleiks-
sambandsins og Lýsingar í karla-og
kvennaflokki.
í kvennaflokki mætast Grindavík
og ÍS og hefst leikurinn klukkan 14
og er þetta 32. bikarúrslitaleikurinn
í kvennaflokki.
fS er eitt sigursælasta lið kvenna-
flokks í bikarnum, hefur unnið sex
titla. Síðast varð liðið bikarmeistari
Hildur Sigurðardóttir fyrirliði Grindavíkur
og Signý Hermannsdóttir fyrirliði [S með
bikarinn sem keppt verður um á morgun í
úrslitum bikarkeppni kvenna.
árið 2003 þegar þær unnu Keflavík í
framlengdum úrslitaleik, 53-51.
Grindavík hefur aftur á móti
aldrei orðið bikarmeistari kvenna
en þær töpuðu í úrslitum bikarsins
á síðasta ári fyrir Haukum, 69-72.
Það má því ætla að Hildur Sigurðar-
dóttir og stúlkurnar í Grindavík ætli
sér ekki að fara heim tómhentar.
Sigursælasta lið kvennaflokks
frá upphafi í bikarnum er Keflavík,
hefur unnið titilinn 11 sinnum en KR
hefur 9 sinnum orðið bikarmeistari.
Dómarar á morgun í leik fS og
Grindavíkur í kvennaflokki eru þeir
Kristinn Óskarsson og Björgvin
Rúnarsson og eftirlitsdómari verður
Gunnar Freyr Steinsson.
Grindavík og Keflavík mætast í
úrslitum bikarsins á morgun í karla-
flokki og hefst leikurinn klukkan
16.00. Þetta er bikarúrslitaleikur
númer 37 í röðinni hjá körlunum.
Keflavík hefur 5 sinnum orðið bik-
armeistari en hefur tapað þremur
úrslitaleikjum. Keflavík varð síðast
bikarmeistari karla fyrir tveimur
árum en árin 2003 og 2004 urðu
Keflvíkingar meistarar eftir sigra á
Snæfelfi og Njarðvík.
Lið Grindavíkur hefur þrisvar
sinnum orðið bikarmeistari og
atdrei hefur liðið tapað úrslitaleik.
Síðast varð Grindavík bikarmeistari
AJ Moye liðsmaður Keflavíkur og
Jermiah Johnson úr Grindavík takast á
um bikarinn í karlaflokki á morgun og
Grindavík hefur aldrei tapað úrsl italeik í
bikarnum.
árið 2000.
Það lið sem hefur oftast orðið
bikarmeistari í karlaflokki eru KR-
ingar með 9 titila en Njarðvíkingar
hafa 8 sinnum orðið meistarar.
Dómarar á bikarúrslitaleik Kefla-
víkur og Grindavíkur í karlaflokki
verða Sigmundur Már Herbertsson
og Rögnvaldur Hreiðarsson og eft-
irlitsdómari verður enginn annar
en fyrrum ástsæli framkvæmda-
stjóri sambandsins, Pétur Hrafn
Sigurðsson.
pyramid,
standar
Standarnir eru allir
úr áll og því léttir og
meöfærilegir.
Aukahlutir
Hægt er að fá
fjölmarga aukahluti
sem hægt er að raða
á mismunandi vegu á
súluna.
Beggja vegna
Hillur og rammar
geta verið báðum
megin sem eykur á
notagildið.
7
S/I41SKIPTI>S*
Sídumúli 4
Hvcríisgata 33
Hæðasrfuiri 4
580 7800
580 7860
580 7880
Átökin um borgina hófust
með skotkeppni í gær
Það má með sanni segja að
átökin um Reykjavíkurborg hafi
byrjað í gær þegar fulltrúar flokk-
anna í næstu borgarstjórnarkosn-
ingum mættust í skotkeppni i
Laugardalshöll.
Tilefnið var meðal annars að
kynna úrslitaleikina í bikarkeppni
KKÍ og Lýsingar sem fara fram á
morgun í karla og kvennaflokki í
höllinni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son mætti fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins, Dagur B. Eggertsson fyrir
hönd Samfylkingar, Svandís Svav-
arsdóttir, oddviti vinstri grænna,
Margrét Sverrisdóttir mætti fyrir
frjálslynda og Marsibil Sæmunds-
dóttir fyrir hönd Framsóknarflokks-
ins en Björn Ingi Hrafnsson var
heima veikur í gær. Skotkeppnin
fór þannig fram að skotið var frá
þriggja stiga línunni. Lýsing hf.,
sem er styrktaraðili bikarkeppni
KKÍ, verðlaunaði siðan þann aðila
sem hitti frá þriggja stiga línunni
með íoo.ooo krónum. Aðeins einn
hitti og það var Marsibil Sæmunds-
dóttir úr Framsóknarflokkrum og
hún styrkti Neistann - styrktarfé-
lag hjartveikra barna með sínum
íoo.ooo krónum.
Marsibil Sæmundsdóttir
Framsóknarkona vann 100.000 krónur frá
Lýsingu með þessu skoti í Laugardalshöll
í gær og gaf Neistanum upphæðina.