blaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 27

blaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 27
blaðið FÖSTUDAGUR 17. FEBRÖAR 2006 KVIKMYNDIR i 27 Ástralir banna graffiti-leik Yfirvöld í Ástralíu hafa bannað tölvu- leik sem gengur út á að spilarar mála merki sitt á veggi borgar. Þetta þýðir að leik Marc Eckos, Getting Up: Con- tents Under Pressure, má hvorki selja, sýna, leigja eða flytja inn i Ástralíu. Ákvörðunin kemur frá „Tölvuleikja- skoðun' (sbr. Kvikmyndaskoðun) Ástralíu en lögfræðilegur ráðunautur stjórnvalda, Philip Ruddock, staðfesti ákvörðunina í gær og sagði hana á þeim forsendum að leikurinn myndi hvetja til graffiti. Nefndin sem bann- aði leikinn klofnaði í afstöðu sinni. Ástralia er fyrsta landið í heiminum til að banna þennan tölvuleik. Harðstjórn framtíðarinnar „Ég er mjög vonsvikinn út í áströlsk yfirvöld að banna leikinn á þeirri einu forsendu að hann muni ýta undir glæpinn sem veggjakrot er,“ sagði Ecko þegar hann komst að fréttunum. Talsmenn dreifingarað- ila leikjarins í Ástralíu, Atari, segjast munu leita allra leiða til að fá ákvörð- uninni hnekkt. Leikurinn gerist í framtíðarborg þar sem tjáningarfrelsi er verulega skert undir harðstjórn borgarinnar. Spilarar berjast við borgaryfirvöld tfl þess að kollvarpa spilltum opin- berum starfsmönnum með því að spreia á veggi borgarinnar og berjast fyrir rétti sínum á götum úti. Mótmælaraddir hafa látið á sér kræla og hefur m.a. Cameron Murphy, sem er í forsvari réttinda- samtaka New South Wales, kallað bannið fáránlegt. „Við bönnum ekki kvikmyndir sem innihalda glæpsamleg athæfi. Við gætum t.d. ekki séð kvikmyndirnar um Guðföð- urinn ef bannið næði líka yfir kvik- myndir. Vandamálið er greinilega að Tölvuleikjaskoðunin skilur ekki tæknina að baki þessu.“ Spurning um tjáningarfrelsi Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Marc Ecko lendir í vandræðum vegna leiks- ins. Á síðasta ári reyndi borgarstjóri New York borgar, Michael Bloom- berg, að koma í veg fyrir að markaðs- herferð fyrir leikinn yrði gerð. Hún gekk út á að frægir graffitilistamenn gerðu listaverk á líkan neðanjarð- arlesta. Ecko vann hins vegar mála- ferli fyrir héraðsdómi í Manhattan þar sem dómarinn taldi hugsanlegt bann vera gjörsamlega á skjön við fyrsta viðauka stjórnarskrárinnar en hann fjallar m.a. um tjáningar- og Börn munu gráta Maðurinn sem hyggst flytja forsprakka hinnar stórkostlegu hljóm- sveitar, Pink Floyd, til landsins í byrjun sumars lofar kraftmikilli sýningu fyrir skilningarvitin íEgilshöll. Blaðið spjallaði við hann. Mynd/Sony/BMC Silfurrefurinn Roger Waters ætlar aö skemmta íslendingum í„surround" í júní. Eins og fólk veit mun Roger Wat- ers heiðra íslendinga með nærveru sinni í Egilshöll þann 12. júní næst- komandi. 1 tilkynningu vegna tón- leikanna segir að börn muni gráta og þyrlur muni fljúga um höllina. „Þá er ég að tala um hljóðið af því að það er svo mikið af alls kyns hljóðum í lögum Pink Floyd. Til dæmis eru þyrlur í The Wall og barnsgrátur mun líka heyrast. I Money munu áhorfendur heyra peningum rigna i kringum sig. Þannig að þetta verður svakasýning,“ segir Guðbjartur Finn- björnsson, tónleikahaldari. Áhuginn færði hann hingað Roger Waters heldur í tónleikaferð- ina um Evrópu og mun einungis spila á 15 stöðum. „Það verður að segja að í tónleikaferð eins og hann er að fara í núna hefði verið auð- veldast fyrir hann að halda þessa tónleika einhvers staðar í Evrópu,“ segir Guðbjartur aðspurður um það hvernig honum hafi tekist að fá tón- leikana hingað til lands. „Ég er náttúrlega búinn að vera í sambandi við þetta fólk í meira en hálft ár að velta upp hugmyndum og ræða hlutina. Ég held að á endanum hljóti það að hafa verið áhugi hans til að koma til landsins sem skipti mestu máli.“ Best of PinkFloyd „Það er auðvitað gríðarlegur munur á því að skjótast á milli borga í Evr- ópu og að koma við hérna á leiðinni frá Hamborg. Reyndar er hann ekki að spila á mörgum risastöðum í ferð- inni. Hann er frekar að gera þetta að gamni sínu virðist vera. Þetta er nokkurs konar „best of“ Pink Floyd þar sem öll bestu lögin með sveitinni fá að njóta sín fyrir hlé og eftir það verður skyggnst á bak við tunglið þegar hann tekur Dark Side of the Moon eins og hún leggur sig, jafnvel í lengri útgáfu en fólk þekkir.“ Kemurfrá Hamborg „Það er ekki alveg ákveðið hversu lengi hann kemur til með að vera á landinu. Hann spilar á tónleikum tveimur dögum áður í Hamborg svo það er spurning hvort hann komi deginum fyrir tónleikana eða sam- dægurs. Það á eftir að koma í ljós og fer í sjálfu sér eftir því hvað hann vill.“ Kostar sitt ,Maður getur ekki sagt til um hvað þetta muni kosta. Þetta kostar enga smápeninga. Allt í kringum þetta kostar töluvert: Hljóð, ljós, svið og Egilshöllin sjálf. Þetta er ekkert ódýrt. Miðaverð er ekki enn ákveðið en að öllum líkindum verður skipt í svæði A (nær sviði) og svæði B (fjær sviði) þar sem miðar á svæði A verða eitthvað dýrari en hinir. En þetta verður flott, það verður hljóðkerfi allan hringinn og mikið lagt upp úr því að hafa góðan hljómburð.“ agnar.burgess@bladid.net Úr leiknum umdeilda, Marc Ecko's Getting Up: Contents Under Pressure. málfrelsi. skyndilega í raunveruleikanum. „Ef Ecko hefur svarað mótmælum á þá krakkar vilja læra að spreia á veggi leið að graffitilistaverk í sýndarveru- munu þeir komast að því sjálfir. Þeir leika séu mjög ólíkleg til að birtast hafa gert það frá fornöld.“ Frábær kuldavörn Skráð læknavara. C C Skjótvirk hjálp við húðþurrk, roða í kinnum, sviða og kláða. Lagar varaþurrk, þolir munnvatn. Húðin verður mjúk og fær jafnan litarhátt. Engin fituáferð. Á börn og fullorðna. 100 skammtar í brúsa. Fæst í apótekum PRObERÍT 0«rmo»olooi«ot formutotion tor P»«vcntior» and ^ dry ikín <onditio«» Þriðjudaginn 21 .feb ALLT SEM TENGIST NÝBYGGINGUM OG VIÐHALDIÁ NÝJUM SEM GÖMLUM HÚSUM Nýtt tölublað komið í verslanir Brekkusleðar prófaðir • Ari Trausti og fjallaandinn Öryggismál - á traustum ís • Erfiðasta gönguleið Evrópu? Langar þig um Kjöl á gönguskíðum? • Vetrarreiðmennska Glíma við land og þjóð eftir Andra Snæ rEÍ ö i ff 7/ H / f m ? f/ ' tTm*. ff Tryggðu þér eintak á næsta sölustað ÚTIUERA www.utivera.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.