blaðið - 17.02.2006, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Styrkir til ættleiðinga eru réttlætismál
Jótiína Bjartmarz alþingiskona segir afar mikilvœgt að Ijóst sé undir hvaða ráðuneyti niðurgreiddar œttleiðingar heyri.
Þingsályktunartillaga Guðrúnar
Ögmundsdóttur þess efnis
að ríkið styrki fólk til þess að
ættleiða börn erlendis frá hefur
vakið athygli. Formaður heilbrigð-
isnefndar telur málið þarft, en
bendir á að ekki sé ljóst hvar í
stjórnsýslunni það eigi heima. Að
sögn Guðrúnar hefur hún fengið
góð viðbrögð við hugmyndinni
og vonast hún til þess að málið fái
framgang í þetta skiptið, en þetta
er í þriðja sinn sem hún leggur
þetta til.
„Ég hef fengið gríðarlega góð og
jákvæð viðbrögð við hugmyndinni
frá almenningi. Þingmenn eru
jafnframt margir meðmæltir hug-
myndinni enda hef ég reynt að hafa
málið þverpólitískt. Eg vona bara að
heilbrigðisnefnd afgreiði málið fyrir
vorið þannig að það megi greiða um
það atkvæði hér á þinginu.“
Málið þegar hlotið umsagnir
Guðrún segir að málið þurfi ekki að
fara í gegnum umsagnarferli. „Við
erum búin að fá umsagnir um þessa
H '*é |J ll > 'ipé, iÉjé
feíðlf,. JKsS »L ( J' mm
500,1000,2000 OG 3000 KR SLÁR.
tillögu, það var
gert síðast þegar
ég flutti málið.“
Hún segir málið
ávallthafasofnað
í nefndum í þau
skipti sem hún
hefur lagt það
fram. Hún seg-
ist þó vera bjart- Jón,na Biartmarz
sýn á að niðurgreiddar ættleiðingar
hljóti brautargengi. „Nú er til dæmis
formaður heilbrigðisnefndar áhuga-
söm um málið. Ég vonast því til þess
að þetta fari í gegn núna, þetta er
eitthvað sem þarf að framkvæma.“
Þarf að fara eftir réttum leiðum
Jónína Bjartmarz, þingkona Fram-
sóknarflokksins, er meðflytjandi
að málinu og jafnframt formaður
heilbrigðisnefndar, þar sem það
verður tekið fyrir. „Ég hef alltaf stutt
þetta mál. En ég hef hins vegar gert
Guðrún
Ögmundsdóttir
athugasemdir
við að málinu sé
beint til heilbrigð-
isráðherra." Hún
segir mikilvægt
að þessi breyting
varðandi ætt-
leiðingar verði
ekki sjúkdóma-
vædd.„Þetta
er spurning um
styrki sem eru félagslegt úrræði og
hins vegar kemur dómsmálaráðu-
neytið að málinu líka, þar sem ætt-
leiðingar heyra undir það.“ Jónína
segist hafa haft fyrirvara varðandi
þetta atriði og vill hún fá úr því
skorið hvert viðhorfið er innan
stjórnsýslunnar þannig að ljóst sé
hvar málið eigi heima. „Málið hefur
rokkað á milli ráðuneyta og ég tel
það ekki hagsmunum þeirra sem
vilja ættleiða börn erlendis frá til
framdráttar að það sé ekki á hreinu
Ótrúleg verð Komdu og nýttu þér þetta einstaka tækifæri.
Sissa Tískuhús Glæsibæ
Opið 10-18.00 virka daga og laugardaga 10-16.00 Sími 5625110
www.ynja.is Útsölustaðir: Esar Húsavík- Dalakjör Búðardal
Vertwhu^ulegiAr vCð
kOYUMCU CV ICCrYUAda#iVM/
Opnunartími
IVIán-fös 11-18
Lau 11-14
Frábær verð
og gæði
Persónuleg
þjónusta
LtkM/rux*
Hamraborg7 Kópavogi Sfmi 544 4088
______Meistaflug í Hringrás
Kostnaður við ferju-
höfn fjórir milljarðar
MBL.IS Von er á skýrslu Siglingamála-
stofnunar innan skamms er varðar
ferjuhöfn í Bakkafjöru í Landeyjum.
í skýrslunni kemur fram að heildar-
kostnaður við slíka ferjuhöfn myndi
vera á bilinu 3,8 til 4,5 milljarðar
króna. Að sögn Gísla Viggóssonar,
forstöðumanns Siglingastofnunar,
er inni í þeirri tölu öll undirbúnings-
vinna, hönnun og framkvæmdir við
ferjuhöfnina. Hann telur ferjuhöfn-
ina raunhæfan kost.
Að sögn Páls Sigurjónssonar,
formanns nefndar um framtíðar-
samgöngur til Vestmannaeyja, er
nefndin að farayfir skýrslu Siglinga-
málastofnunar. Hann vonast til þess
að nefndin verði búin að því eftir
rúman mánuð.
Áður hefur nefndin fjallað um
skýrslu sem Vegagerðin gerði um
þær upplýsingar sem fyrir liggja um
hugsanleg jarðgöng frá Bakkafjöru
til Eyja. Samkvæmt þeirri skýrslu
var áætlaður kostnaður við slík göng
um 70-100 milljarðar króna.
hvar málið á heima.“ Jónína segir
að það sé ekkert því til fyrirstöðu
að ályktunartillagan verði afgreidd
úr heilbrigðisnefndinni, þó að hugs-
anlega verði hún ekki afgreidd ná-
kvæmlega eftir orðanna hljóðan
heldur verði gerðar við það tillögur
og breytingar.
Réttlætismál
„Ég er fyrst og fremst að hugsa um
að þetta réttlætismál nái fram að
ganga,“ segir Jónina og bætir við
að því verði að fá það á hreint undir
hvaða ráðuneyti málið á að heyra.
„Þá er það einhver ákveðinn sem ber
ábyrgð á því að styrkja þetta fólk
sem þarf að fara þessa leið, oft að
undangengnum dýrum úrræðum.
í flestum tilvikum er fólk búið að
reyna aðrar leiðir til þess að eignast
börn og þær leiðir eru kostnaðar-
samar. Ég vil þvi liðka fyrir því að
við fáum lausn í málinu.“
Hæstiréttur opnar
bókhaldið hjá
Landsbankanum
vegna SPH-
rannsóknar
Hæstiréttur staðfesti á miðviku-
dag úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur um að Landsbanka íslands
væri skylt að afhenda efnahags-
brotadeild Ríkislögreglustjóra
afrit af skjölum vegna tiltekinna
færslna á bankareikningum
tveggja manna, sem tengjast rann-
sókn á viðskiptum með stofnbréf
Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
Málið varðar ljósrit af tékka að
fjárhæð liðlega 50,5 milljónir króna,
sem keyptur var með greiðslu af
reikningi annars mannsins hinn
30. desember á síðasta ári. Einnig
var bankanum gert að veita upplýs-
ingar um hvert andvirði tékkans
rann. Þá skal hann veita upplýs-
ingar um það hver fyrirskipaði rúm-
lega 51,5 milljón króna millifærslu af
reikningi hins mannsins á reikning
í Landsbanka íslands í Luxemborg,
hinn 22. nóvember í fyrra.
Jón skilar sératkvæði
Hæstiréttur segir að efnahags-
brotadeild hafi beint kröfunni að
bankanum einum en ekki hinum
ætluðu eigendum bankareikning-
anna, en áður hafði annar þeirra
neitað að svara spurningum lög-
reglu um reikninginn, en hinn kann-
aðist ekki við að eiga þann reikning,
sem hann var skráður fyrir.
I úrskurðinum segir að Lands-
bankinn hafi sagt beiðni lögreglu of
óskýra til þess að unnt væri að verða
við henni, enda ekki ljóst hvernig
upplýsingarnar eigi að tengjast
rannsókninni. Hæstiréttur hafnaði
þessu sjónarmiði.
Jón Steinar Gunnlaugsson skilaði
sératkvæði í Hæstarétti og vildi fella
úrskurð héraðsdóms úr gildi. Sagði
hann málið snúast um beiðni lög-
reglu um að gefnar séu upplýsingar
í trássi við lögbundna þagnarskyldu
bankastarfsmanna. Segir hann
lagaákvæði um þagnarskyldu miði
framar öðru að því að vernda hags-
muni eigenda bankareikninga fyrir
að veittar verði upplýsingar um
einkahagi þeirra á sviði fjármála.
Ekki verði séð að neinir hagsmunir,
sem tengjast hinni opinberu rann-
sókn, mæli því gegn, að þessir menn
fái sjálfir að gæta réttar síns, þegar
tekin sé afstaða til þess fyrir dómi
hvort veita beri lögreglu umbeðinn
aðgang að bankareikningunum.
Þeir séu hins vegar ekki aðilar máls
eins og sakir standi.