blaðið - 17.02.2006, Síða 12
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2006 blaöiö
12
rExÐi
Arshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur:
Sífellt fœrri verðlaun veitt
Gœsatúr aust-
an Hvolsvallar
Eins og flestir félagsmenn þekkja þá
hefur það verið löng og skemmtileg
hefð hjá Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur að veita veiðimönnum ýmis
verðlaun fyrir afrek á síðastliðnu
veiðisumri. Upphaflega var lögð
áhersla á að verðlauna fyrir mestan
fjölda veiddra laxa og stærstu fisk-
ana. Veglegust þessara verðlauna
hefur verið Gull&Silfur flugan sem
veitt hefur verið þeim veiðimanni í
félaginu sem veiðir stærsta flugulax
á veiðisvæðum félagsins. Nú liggur
fyrir að þessi viðurkenning verður
ekki veitt aftur.
„Vissulega er eftirsjá af þessari
veglegu gjöf sem Sigurður Stein-
þórsson, gullsmiður hefur gefið
sl. þrjátíu árin, til minningar um
föður sinn. Þar var ómetanlegur dýr-
gripur á ferð,“ segir Bjarni Júlíusson,
formaður Stangaveiðifélags Reykja-
víkur, en sífellt færri verðlaun eru
veitt núna á árshátíð félagsins sem
verður annað kvöld.
„Bikarmál hafa reyndar alltaf
verið að breytast gegnum tíðina.
Til skamms tíma var veiddur svo-
nefndur „húsmæðrabikar“ til þess
aðila sem veiddi flesta smálaxa yfir
sumarið, væntanlega skírskotun til
þess að sá veiðimaður hafi svo sann-
arlega verið matvinnungur fyrir
heimilið það sumarið. En slík viður-
kenning þætti nú sennilega hálf hjá-
kátleg í dag.
Fyrir nokkrum árum var bikar-
fjöldinn orðinn of mikill að mati
flestra og þá var ákveðið að fækka
verðlaunum nokkuð og einfalda.
Þessar brey tingar eru aðallega vegna
nýrra áherslna varðandi verndun
og umgengni við náttúruna og
þá auðlind sem laxveiðar á stöng
eru. Félagið mun nú hætta að verð-
launa veiði á stórum fiskum. Þess
í stað verði lögð áhersla á að veita
mönnum viðurkenningu fyrir hátt-
vísi, góða framgöngu og sleppingar. I
ár eru veitt fern verðlaun. Nú verður
hætt að veita verðlaun fyrir stærsta
laxinn veiddan á vatnasvæðum
félagsins. í staðinn verða veitt sér-
stök háttvísiverðlaun styrkt af Visa,
verðlaun fyrir slepptan lax eða sjó-
birting og að lokum verðlaun fyrir
Maríulax, gefin af Veiðihorninu.
Það er mat stjórnar SVFR að með
þessu sé sleginn nýr tónn í áherslum
félagsins og þau séu hvatning til veiði-
manna um að stunda þessa íþrótt
með virðingu fyrir náttúrunni.
Lögð er áhersla á verndun, ekki sist
stórlaxins, háttvísi og heiðarleika
við veiðar og nýliðun í hópi félags-
manna,“ segir Bjarni ennfremur.
„Að kvöldi laugardagsins 8. október
lagði ég af stað frá Reykjavík á fund
við nokkra félaga mína að Ármótum,
austan Hvolsvallar, en þeir höfðu
mætt þar kvöldið áður til gæsa-
veiða,“ sagði Ásgeir Halldórsson í
Sportvörugerðinni er við spurðum
hann um eftirminnilegan veiðitúr
síðasta sumar.
„Ég ætlaði að skjóta með þeim á
sunnudeginum. Þarna var tekið
heldur betur höfðinglega á móti
manni. Ásgeir Heiðar og allt hans
lið lögðu drögin að stórskemmti-
legum degi. Veiðin á laugardeginum
hafði verið treg hjá strákunum en
óhemja af gæs á svæðinu. Það þurfti
bara að hitta á hana því mörg og
stór eru túnin og kornakrarnir ekki
minni en 20 hektarar.
Fyrir sólaruppkomu gleyptum við
í okkur frábæran morgunverð og
síðan drifum við okkur út. Þennan
morgun vildi Ásgeir Heiðar fara
með okkur í akur sem var fjærst
bænum og hafði lítið verið truflaður
síðustu vikuna eða svo. Við komum
okkur vel fyrir 1 skjóli heyrúlla sem
haganlega hafði verið komið fyrir
fyrr um haustið.
Þá tók að birta og við vorum í
skotstöðu. Lítið var flugið til okkar
en þó sást einn og einn stór hópur í
háflugi. Þarna koma tvær og stefna
á okkur. Bang, bang, og báðar lágu.
Nú gerist ekkert um stund nema
óhemju ráp af álft en hún var ekki
á matseðlinum okkar. Þarna koma
aðrar tvær og lágu þær líka. Enn er
löng bið og mönnum farið að leiðast
en þá stefnir góður hópur til okkar
og hjartað tók kipp. Hópurinn nálg-
ast og er að komast í færi þegar stefn-
unni er snögglega breytt, í áttina
að stórum hóp álfta sem hafði sest
niður svona 2-300 metra vestar á
akrinum. Enn líður korter, hálftími
og klukkutimi. Farið að styttast í há-
degi. Við erum um það bil að kalla
þetta gott þegar lítill hópur stefnir
til okkar. Allir halda í sér andanum
og bíða spenntir. Þarna komu þær í
færi og skothríðin hefst. Þrjár lágu
en hinar þrjár komust undan. Við
biðum þarna á akrinum í um það
bil hálftíma til viðbótar en tókum
þá saman gervigæsirnar og annað
dót sem okkur fylgdi og ókum heim
að bæ.
Viti menn, við höfðum leitað langt
yfir skammt þennan daginn. Heima-
túnið var grátt af gæs, ekki einni
færri en 500 grágæsir innan um ger
af álft. Svona getur þetta nú verið.
Engu að síður fórum við sælir og
ánægðir heim eftir vel heppnaðan
túr. Aðbúnaðurinn og þjónustan
alveg til fyrirmyndar. Aflinn hefði
mátt vera svolítið meiri en allir voru
þó með vel í matinn," sagði Ásgeir
að lokum.
Blaöiö/Gunnar Bender
Þrátt fyrir að veiðimenn kasti flugunni fimlega, fækkar þeim verðlaun sem þeir fá. Veiði-
maður við veiðar í Elliðaánum.
N\ M2 Field, ComforTech™ - 12-ga. 3"
Dreifing:
Holmasloö 1 101 Reykjavík • Sími 562-0095/898-4047 • www.veidihusid.is
Stuttar fréttir
• Á Hnýttu og býttu kvöldi í gær-
kynnti Benni í Útivist og veiði inn-
lenda framleiðslu á hnýtingaefni
undir merkjum Last Hope.
Benni hefur hafið sölu á þessu
efni en Lax-á sá áður um hana. Hnýt-
ingaefnið er unnið á Sauðárkóki. Sig-
urður Pálsson hefur núna síðustu
kvöld hnýtt fyrir áhugasama hnýt-
ara en hann kann réttu handtökin
betur en margur. Ágæt aðsókn hefur
verið á þessi kvöld enda sty ttist veru-
lega í veiðitímann.
• Það hefur gengið ágætlega að
selja á árshátið Stangaveiðifélags
Reykjavíkur en hún verður annað
kvöld og meðal þeirra sem skemmta
er Diddú og Jónsi.
aukaafsláttur
af Htranum með
ÓB-frelsi