blaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 1
Veidu ódýrt bensín #
^dk+avmning!
vr
w\\ , 4
\\\v v
\fiw \*
*
m
Kvittun fylgir ávinningur!
óeGO
Meira fyrir peninginn
■ FRÆÐIN
Barbaríska
paríýborgin
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
50. tölublað 2. árgangur
fimmtudagur
2. mars 2006
islendingurinn lýsir sig
saklausan af barnsráni
Mál rúmlega tvítugs íslendings sem ákœrður hefur veriðfyrir rán
á 14 ára stúlku í Bretlandi verður tekið til meðferðar eftir mánuð.
■ VÍSINDI
Stúlkur sýna
frekar einkenni
kvíða og
taugaveiklunar
| SfÐA 12
■ MATUR
Stœrsta sýning
sinnar tegundar
■ INNLENT
Álver í Húsavík
m VÍSINDI
Kostnaður við
einkaleyfi getur
skipt milljónum
ISÍÐA13 ik'
Höfuðborgarsvæðið
meðallestur
67,3
Verjandi Islendingsins sem ákærður
hefur verið fyrir barnsrán í Burnley
í Englandi segir að maðurinn lýsi
sig saklausan af þeim sökum sem á
hann hafa verið bornar.
Nick Cassidy, verjandi mannsins,
sagðist í gær í samtali við Blaðið
vera bundinn trúnaði við umbjóð-
anda sinn og þar af leiðandi gæti
hann ekki gefið miklar upplýsingar
án þess að umbjóðandinn gefi fyrir
því leyfi. Islendingnum er haldið
í fangelsi í Preston og segir lög-
fræðingurinn að þar muni hann
að öllum líkindum verða fram að
réttarhöldunum sem ákveðið hefur
verið að hefjist þriðja apríl.
Cassidy sagði að hann myndi
funda með hinum ákærða á morgun,
föstudag, og bjóst hann við að gefin
verði út yfirlýsing fyrir hönd sak-
borningsins að þeim fundi loknum,
gefi hann leyfi fyrir því. „Þá verður
hægt að ræða málið í meiri smáat-
riðum,“ sagði Cassidy. í dag munu
málsaðilar hittast og fara yfir málið,
að ákærða fjarstöddum.
Á yfir höfði sér allt að
sjö ára fangelsi
Eins og Blaðið greindi frá í gær eru
málsatkvik á þá leið að íslending-
urinn, sem er 23 ára Reykvíkingur,
kynntist 14 ára stúlku á Netinu og
í framhaldi af þeim kynnum ferðað-
ist hann til Burnley.
Þau hittust á hóteli í bænum og
þar handtók lögregla manninn
eftir að móðir stúlkunnar hafði
kært málið. Þar sem stúlkan er 14
ára gömul hefur maðurinn verið
ákærður fyrir barnsrán.
Lögreglumaðurinn sem fer með
rannsókn málsins telur líklegt að
verði maðurinn sakfelldur, bíði
hans að minnsta kosti 3 ára fangels-
isdómur. Þyngsta mögulega refsing
við broti af þessu tagi á Englandi
er 7 ár. Komi til þess að maðurinn
fái dóm, gæti hann átt kost á því að
afplána dóminn hér á landi, sam-
kvæmt upplýsingum úr dómsmála-
ráðuneytinu. Til að svo geti orðið
þarf sakborningur hins vegar að
óska eftir því og yfirvöld á Islandi
og stjórnvöld í Englandi að gefa
samþykki sitt.
Saddam segist
einn ábyrgur
Saddam Hussein, fyrrum forseti
Iraks, lýsti því yfir við réttarhöld
í gær að hann væri einn ábyrgur
fyrir gjörðum ríkisstjórnar-
innar, sem hann fór fyrir.
Saddam Hussein lét þessi
orð falla fyrir rétti í Bagdad en
sá liður ákærunnar á hendur
honum sem nú er til meðferðar
snýr að fjöldamorði á sjíta-mús-
limum í bænum Dujail í írak
árið 1984. Eftir að hafa hlýtt á
málflutning ákærandans sagði
Saddam að ótækt væri að aðrir
menn væru leiddir fyrir rétt
sökum fjöldamorðsins. „Ég
heiti Saddam Hussein. Ég var
við völd og þótt aðstæður hafi
breyst mun ég ekki segja að
aðrir hafi borið ábyrgð," sagði
forsetinn fyrrverandi.
Áður hafði hann viðurkennt
að hafa látið uppræta með öllu
jarðir bænda sem bjuggu nærri
Dujail. Saddam var sýnt banatil-
ræði í Dujail árið 1984 og mun
forsetinn hafa brugðist við með
því að fyrirskipa að 148 sjítar
skyldu teknir af lífi.
Alicia Sorohan, hugrakkasti ellilífeyr-
isþegi Ástralíu.
Ammayfirbug-
ar krókódíl
Alicia Sorohan, áströlsk amma á
sjötugsaldri, hefur verið sæmd
æðstu heiðursorðu ástralskra
stjórnvalda fyrir það mikla
afrek að bjarga vini sínum úr
skolti krókódíls.
Atvikið átti sér stað fyrir
tveimur árum í óbyggðum Que-
ensland-fylkis í Norður-Ástr-
alíu en þar var Sorohan stödd í
útilegu ásamt vinum og vanda-
mönnum. Hún varð vitni að
því þegar rúmlega fjögurra
metra krókódíll læddist inn í
tjald vinar hennar og dró hann
út. Sorohan þótti sýna fádæma
hugrekki þegar hún stökk á bak
krókódílsins og hóf að glíma við
hann af slíku afli að dýrið þurfti
að grípa til varna með þeim af-
leiðingum að vinur hennar losn-
aði úr kjafti hans. Krókódíllinn
læsti þá tönnunum í handlegg
Sorohan en þá bar að son hennar
og skaut hann dýrið.
Tugþúsundir krókódíla eiga
heimkynni í Norður-Ástralíu
og verða þeir tugum manna
að bana á ári hverju. Ekki er
vitað hversu margir krókódílar
falla á ári hverju eftir átök við
ellilífeyrisþega.