blaðið - 02.03.2006, Page 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 blaöiö
„Álverið gæti breytt öllu"
Alcoa valdi Bakka við Húsavík sem hugsanlegt stœði undir álver á Norðurlandi. Efafverður
yrði hafist handa við smíðina um 2010 og síðari áfanga Ijúka um 2015.
nú um 2.500 manns, en íbúum
gæti fjölgað um 1.000. Það myndi
breyta öllu.“
Framkvæmdir gætu hafist 2010
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
ráðherra, og Bernt Reitan, aðstoð-
arforstjóri Alcoa Corporation,
undirrituðu í gær samkomulag
um að hefja ítarlega könnun á hag-
kvæmni þess að reisa nýtt, 250.000
tonna álver á Bakka við Húsavík.
Verði niðurstaðan sú að ráðast í
smíðina verður notast við jarð-
varmaorku úr Þingeyjarsýslu, en
hugsanlegar framkvæmdir hefjast
ekki fyrr en um 2010.
Valgerður Sverrisdóttir sagðist í
samtali við Blaðið afar glöð yfir því
að þessum áfanga hefði verið náð.
„En það er ekkert í hendi ennþá. Nú
þarf að leggjast í mikla rannsókn-
arvinnu, en það verður vafalaust
orkuþátturinn, sem mestu mun
skipta. Við þurfum svo líka að
huga að félagslega þættinum, því
þetta mun ekki aðeins efla Húsa-
vík heldur Norðurland allt.“
Gífurleg vinna framundan
Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri
Alcoa, tók í sama streng. „Það er
gífurleg vinna framundan. Við
þurfum að rannsaka alla þætti
til hlítar, efnahagslega, vistfræði-
lega, félagslega o.s.frv. En á end-
anum veltur þetta allt á orkunni.
Við erum mjög spenntir fyrir að
nota hreinan, endurnýjanlegan
orkugjafa eins og jarðvarma og
ég hygg að í þessu verkefni gætu
falist spennandi möguleikar fyrir
Landsvirkjun og það ekki aðeins
hér á landi.“
Orkuverðið lykillinn
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, kvaðst ekki geta tjáð sig
mikið um staðarvalið, enda hefði
Landsvirkjun ekki komið að ferl-
inu til þessa. „En orkuverðið er lyk-
illinn, þeir fara ekki af stað nema
orkuverðið sé þeim skaplegt og við
förum ekki af stað nema við séum
ánægðir með verðið.“ Friðrik sagði
að helst væri horft til Kröflusvæð-
isins, Bjarnarflags, Þeistareykja og
Gjástykkis. Rannsóknir af þessu
tagi væru hins vegar afar dýrar,
gert væri ráð fyrir að tilraunabor-
anir gætu kostað um tvo milljarða
króna, þó þær myndu að vísu nýt-
ast til virkjunar ef af yrði.
.Stemningin hér var alveg frábær
þegar fréttirnar bárust,“ sagði Ör-
lygur Hnefill Jónsson, varaþing-
maður Samfylkingarinnar, í sam-
tali við. Blaðið, þar sem hann var
staddur á svonefndri álversvöku
á Húsavík, þar sem menn biðu
fregna af staðarvali Alcoa undir
hugsanlegt álver á Norðurlandi.
,Menn gengu inn með jafnaðargeði,
við öllu búnir, og ég skal ekki neita
því að spennan var mikil. En þegar
ljóst var að Húsavík hafði orðið
fyrir valinu var því vel fagnað.“
Örlygur Hnefill segir að frétt-
irnar hafi ekki komið Húsvík-
ingum algerlega í opna skjöldu.
,Hér er þessi mikla orka skammt
undan og mikil eining um fram-
kvæmdir af þessu tagi, það hefur
vafalaust vegið þungt.“ Hann
minnti á að ekkert væri þó enn
ákveðið, en ef af yrði myndu breyt-
ingarnar verða miklar. „Hér búa
Mikil gleði braust út á vertshúsinu Gamla Bauk á Húsavík þegar Ijóst var að Alcoa hafði valið Bakka, kippkorn frá bænum, sem hugsan-
legt álversstæði.
blaðite
Bæjarlind 14—16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
„Stjórnvöld föst í gamal
dags stóriðjuhugsun"
Leggja þarf meiri áherslu á þekk-
ingar- og hátækniiðnað í stað þess
að byggja fleiri álver að mati Hlyns
Hallssonar, þingmanns vinstri
grænna. Hann telur hugsanlega
byggingu álvers á Bakka við Húsa-
vík vera lýsandi dæmi um gjaldþrot
byggðarstefnuríkisstjórnarinnar.
Bananalýðveldi
Hlynur Hallsson, þingmaður vinstri
grænna, telur að ríkisstjórnin hafi
brugðist meirihluta þjóðarinnar
með yfirlýsingu varðandi hugsan-
lega byggingu álvers á Norðurlandi.
,Um 63% þjóðarinnar vilja ekki
fleiri álver. Stjórnvöld eru að reyna
að skorast undan ábyrgð með því
að segja að þetta sé ekki í okkar
höndum og láta Alcoa ákveða hvar
þeir hlunka niður sínu álveri. Svo er
iðnaðar- og viðskiptaráðherra kall-
aður út til New York til þess að hlýða
á stóradóm. Hafi hugtakið banana-
lýðveldi einhverju sinni átt við þá er
það núna.“
Eldshöfða 16
Sími:616 9606
Opið virka daga mifli 12 og 16
nema fimmtud. milli 12og18
Hlynur Hallsson, þingmaður. Bladii/SleinarHuqi
Hlynur segir stóriðjustefnu ríkis-
stjórnarinnar vera lýsandi dæmi um
gjaldþrot byggðarstefnunnar. „Fyrst
er kvótinn tekinn af fólkinu. Svo er
því stillt upp við vegg og látið annað
hvort þiggja álver eða ekki neitt.“
Setja meiri kraft í ferðaþjónustuna
Hlynur bendir á að stóriðjustefnan
hafi nú þegar skaðað útflutnings-
greinarnar og bygging nýs álvers
muni aðeins ýta undir þann skaða.
„Við ættum að leggja meiri áherslu
á nýsköpun. Allar þjóðir i kringum
okkur eru að keppast við að fá til
sín þekkingar- og hátækniiðnað á
meðan stjórnvöld hér eru föst í gam-
aldags stóriðjuhugsun,“
Þá segir Hlynur að styrkja þurfi
ferðaþjónustuna á svæðinu og með
því ætti að vera hægt að skapa fleiri
störf en með byggingu og rekstri
álvers. „Það á að halda áfram að
byggja upp ferðaþjónustuna á Húsa-
vík og setja meiri kraft í það. Það á al-
veg að vera hægt að tryggja atvinnu
á þessu svæði án þess að fara út í
álversframkvæmdir.“
Fylgi Sjálfstæð-
isflokks 52%
í Reykjavík
MBL.IS | Fylgi Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík mælist 52% samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Gallup, sem
sagt var frá í fréttum Útvarpsins, en
fylgi flokksins í borginni mældist
55% fyrir mánuði. Fylgi Samfylk-
ingar mælist nú 34,5% og hefur farið
vaxandi að undanförnu. Fylgi VG
er um 7%, fylgi Framsóknarflokks
tæp 5% og Frjálslynda flokksins 2%.
Yrðu þetta úrslit í borgar-
stjórnarkosningum fengi Sjálf-
stæðisflokkur 8 borgarfulltrúa
af 15, Samfylking 6 og VG 1.
Á landsvísu mældist fylgi Sjálf-
stæðisflokksins tæp 42%, fylgi
Samfylkingar rúm 29%, fýlgi VG um
16%, fylgi Framsóknarflokks 9,5% og
Frjálslynda flokksins rúm 3%. Um
54% sögðust styðja ríkisstjórnina.
Könnunin var gerð á tímabilinu 31.
janúar til 27. febrúar og var heildar-
úrtakið um 4.500 manns. 19% vildu
ekki svara og 6% sögðust ekki ætla
að kjósa eða myndu skila auðu.
(^) Helðskfrt 0 Léttskýjaö Skýjað ^ Alskýjað
s
Rignlng, lítilsháttar //' Rigning 9 9 Súld sjc Snjókoma
Slydda Snjóél
Skúr
Amsterdam 03
Barcelona 11
Berlin 01
Chicago 03
Frankfurt 01
Hamborg 02
Helsinki -06
Kaupmannahöfn 0
London 04
Madrid 07
Mallorka 13
Montreal -10
New York 02
Orlando 10
Osló -03
París 03
Stokkhólmur -04
Þórshöfn 01
Vín 03
Algarve 13
Dublin 02
Glasgow 03
4^Dq°
Veðurhorfur i dag kl: 15.00
Veðursíminn K)2 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands