blaðið - 02.03.2006, Side 13
blaðið FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006
I 13
Kostnaður við einkaleyfi
getur skipt milljónum
Hver hefur ekki óskað þess að
finna upp eitthvað sniðugt og
nytsamlegt og hagnast verulega?
Það er aldrei að vita hvenær næsti
uppfinningamaður lítur dagsins
ljós. Límið á post-it miðana er í
raun mistök í límframleiðslu en
í ljós kom að límið nýttist mjög
vel í þessu skyni. Pensilínið var
einnig fundið upp í kjölfar mis-
taka í rannsókn. Bréfaklemman
er mjög einföld en jafnframt
nytsöm uppfinning sem einhver
hefur eflaust hagnast á.
„Til okkar leita bæði fyrirtæki og ein-
staklingar sem vilja fá einkaleyfi,“
segir dr. Einar Karl Friðriksson,
sérfræðingur um einkaleyfi hjá A
& P Árnason. „Hver umsókn fyrir
sig er rannsökuð og athugað hvort
hér sé eitthvað nýtt á ferðinni. Á Is-
landi eru lagðar inn 5-600 umsóknir
um einkaleyfi árlega en aðeins 10%
þeirra eru frá íslenskum aðilum.
Sem dæmi um íslensk fyrirtæki
sem sækja um einkaleyfi eru Marel,
íslensk erfðagreining, líftæknifyrir-
tækið Prokaria, Actavis, Lyfjaþróun
og ýmis smærri sprotafyrirtæki.
Lyfjafyrirtæki eins og Actavis
sækja um einkaleyfi fyrir nýjungum
sem koma til í þeirra þróunarstarfi
t.d. ef þau leggja fram nýja sam-
setningu af þekktu lyfjaefni. Marel
sækir um einkaleyfi fyrir tækjum
sem fyrirtækið þróar fyrir matvæla-
framleiðslu og hugbúnað fyrir slík
tæki til dæmis til að flokka fisk- og
kjötstykki.“ Einar Karl segir að
einkaleyfum megi gróflega skipta
í tvo flokka, annars vegar uppfinn-
ingar sem tengjast náttúruvísindum,
lífefnatækni og lyfja- og læknisfræði
og hins vegar hugmyndir tengdar
tölvu- og vélbúnaði.
Einkaleyfi stöðvar aðra við
að nota hugmyndina
„Þegar sótt er um einkaleyfi veitir
það strax vissa réttarstöðu og sam-
keppnisaðilar eru látnir vita að þessi
hugmynd er frátekin. Þetta þýðir
hins vegar ekki að viðkomandi geti
sjálfkrafa byrjað að framleiða eða
nota uppfinninguna en leyfið gerir
mögulegt að stöðva aðra við að nota
hugmyndina.“ Einar Karl segir að
einkaleyfi geti verið misvíðtæk.
„Hægt er að leggja inn alþjóðlega
einkaleyfisumsókn ári eftir að um-
sókn um einkaleyfi hefur verið lögð
fram á íslandi til þess að viðhalda
rétti frá upphaflegri dagsetningu.
Grunngjald Einkaleyfastofu fyrir
að sækja um einkaleyfi á íslandi er
34.500 krónur en sé sótt um einka-
leyfi í 5-8 löndum getur heildar-
kostnaðurinn hæglega farið upp í
3-5 milljónir.
Tæknilegar uppfinningar og
lausnir njóta ekki sjálfkrafa verndar
eins og listræn höfundarverk. Þess
vegna þarf að sækja um einkaleyfi
til að öðlast einkarétt á eigin upp-
finningu. Það er eðlilegt að einstak-
lingur eða fyrirtæki sem lumar á
góðri hugmynd reyni að verja hana
og koma í veg fyrir að aðrir noti án
endurgjalds.“
Það er Einkaleyfastofa sem veitir
einkaleyfi á Islandi en A & P Árna-
son og fleiri slíkir aðilar veita aðstoð
og ráðgjöf við að sækja um einka-
leyfi bæði hérlendis og erlendis.
Kostnaður við að skrifa og leggja
BlaÖiÖ/Frikki
inn einkaleyfisumsókn getur verið
umtalsverður og farið upp í nokkur
hundruð þúsund krónur.
Einkaleyfi gilda í 20 ár
„Einkaleyfastofan hefur samvinnu
við einkaleyfastofur erlendis með
fjölda sérfræðinga á ýmsum tækni-
sviðum sem meta hverja umsókn
fyrir sig, sérstaklega hvort uppfinn-
ingin sé ný, að henni sé lýst ítarlega
og að umsóknin sé ekki of víðtæk.
Uppfinning þarf að vera arðbær til
að það borgi sig að sækja um einka-
leyfi fyrir henni. Einkaleyfi eru
sérstaklega notuð á þeim sviðum
þar sem mikill kostnaður liggur í
rannsóknar- og þróunarvinnu að
baki vöru, en líka fyrir einfaldar
en hugvitsamlegar lausnir sem auð-
velt og ódýrt er að líkja eftir. Einka-
leyfið gildir að hámarki í 20 ár gegn
greiðslu árgjalda.”
hugrun@bladid.net
Fálkahúsinu • Suðurlandsbraut 8
sími: 554 0655 • candc@simnet.is • www.cogc.is
opið: 10-18 virka daga • Lau: 11-17
ÉgÉÍ!pB#|fe , •
•/._/ ' fí Jlt; !! .4 ■ -T
ÞVI HEI
T ' — L —
j u ..
ENGIN
SKILYRÐI
\JM ÖNNliR
BÁNKAVIOSKtPTI
4,35%
VEXTIR
FRJALS IBUÐALAN
Frjáls íbúðalán eru verötryggö fasteignalán með föstum 4,35% vöxtum sem eru endurskoðaöir á fimm ára fresti.
Þú liagar öörum bankaviöskiptum eins og þér sýnist ðæmi um manadarlega greiðslubyrdi af i ooo.ooo kr*
og kaupir nýtt húsnæði eða endurskipuleggur fjár- unstimi |sár 25 ár [40ar
haginn. Komdu til okkar i Lágmúla 6. hringdu í sima 4,35% vextir 18.575 kr. 5.474 kr. | 4.400 kr.
540 5000 eða sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is.
Lánstimi_______5 ár________
4,35°/o vextir 18.575 kr.
25 ár
5.474 kr.
FRJÁLSI