blaðið - 02.03.2006, Page 14

blaðið - 02.03.2006, Page 14
hlaðið— Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. EINSLEITIR HOPAR Sumir eru þeirrar hyggju að helst til einsleitur hópur manna og kvenna beri uppi stjórnmálastarf á íslandi. Á stundum er spurt hvort alþýða manna eigi sér raunverulega fulltrúa á Alþingi og hvort svipuð lífssýn, bakgrunnur og menntun móti um of framgöngu þeirra, sem forystustörfum sinna. í vikunni greindi Morgunblaðið frá rannsókn Jóhanns Bjarna Kol- beinssonar, sem útskrifaðist með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Há- skóla Islands um liðna helgi. í lokaritgerð sinni kannaði höfundur tengsl milli stjórnarsetu í ungliðahreyfingum Sjálfstæðisflokksins og setu á Alþingi fyrir flokkinn á árunum 1944 til 2005. Af þeim 27 ráð- herrum flokksins sem setið hafa í ríkisstjórn á þessu árabili hafa 19 setið í stjórn ungliðahreyfinga eða 70,4%. Vart verður sagt að þessi niðurstaða komi stórlega á óvart en athygl- isverð má hún heita fyrir margt. Draga má þá ályktun að stjórnarseta í ungliðahreyfingum sé einfaldlega afar góður skóli fyrir verðandi stjórnmálamenn. Fólk öðlist þar ákveðna reynslu auk þess sem tengsl myndist á milli manna, sem mikilvæg reynist síðar á framabrautinni. En um leið má einnig draga þá ályktun að þessi niðurstaða sýni enn á ný fram á hversu mikilvæg „klíkan" er í samfélagi Islendinga þar sem hún hefur löngum verið mótandi og ráðandi. Sérhvert kerfi leitast fyrst og fremst við að viðhalda sjálfu sér. Það á vit- anlega ekki síst við um öll valdakerfi. Mikilvægur liður í því viðhaldi er að smíða fyrirbrigði, sem kalla má „mótunarstofnanir“, innan kerf- isins til að tryggja að það ungi ekki út úr sér eintökum, sem ekki eru fallin til að tryggja vöxt þess og viðgang. Þetta er vandi sem allir stjórnmálaflokkar á Islandi og víðar eiga við að etja. Hugmyndafræðileg endurnýjun er afar hæg og raunar er það svo að röð ósigra sýnist ein fær um að kalla hana fram. Og duga þeir þó ekki alltaf til. Ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokksins á raunar lof skilið fyrir það aðhald, sem hún leitast við að veita hinum mjög svo ráðsettu fulltrúum flokksins á þingi og í ríkisstjórn. Hreyfingin hefur hins vegar almennt og yfirleitt lítil sem engin áhrif á stefnu Sjálfstæðisflokksins. Nú er veruleikinn annar og flóknari en forðum. Samfélagið er hólfa- skiptara en áður. Þessi þjóðfélagsbreyting hefur enn ekki skilað sér inn í stjórnmálalíf íslendinga. Að þessu leyti er hinn „pólitíski veruleiki" á eftir samtímanum. Kyrrstaða sýnist ríkja í íslenskum stjórnmálum á sama tíma og samfélagið er á fleygiferð. Innan allra flokka ráða heldur einsleitir hópar fólks en fjölbreytileikinn ku vera drifkraftur nútímans. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. 14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 blaðið ...TÍ£í hAQón AlDtei NEiTJ um NviWÍG MAÐUR íj/rrTTR AÐ BLfeA LÍfi í ÁfRAM MLHiTT GröTT VÚSr rmiR NÝrr ALVER...Er-rr VYKiR. TÆKtf /SJÚKRtiVUS...E/aJckuJL PúST rYniR ■ eítt Tvm ViP$KiPTmiLAW...-Etrr rvnifi R^KiSUTGliSlp o5 'Eítt Stórt rúsr fv'R. i R M'r n xrnhs’-t* . Höldum almenning upplýstum - og dauðhræddum Bókin um fuglaflensuna er nú skrifuð af öllum betri blaðamönnum veraldar og rembast þeir hver í kapp við annan að greina okkur frá hinu nýjasta í ógnvænlegri útbreiðslu þessa hræðilega sjúkdóms. Rakið er í smáatriðum nánast meter fyrir meter hvernig flensan breiðist út hægt og örugglega og svo virðist sem tilfelli greinist í glænýju landi á hverjum degi. Slíkt er ákaflega heppilegt fyrir dagblöð og ljósvaka- miðla því það tryggir reglulega nýja fyrirsögn - fuglaflensan er nú komin til Búrúndi, Aserbaídsjan, Túrkmenistan eða einhvers annars „spennandi“ ríkis og almenningur drekkur í sig það nýjasta í hinni ógn- vænlegu þróun. Fuglarnir, þessi ótillitsömu fiðr- uðu kvikindi brjótast sífellt yfir ný landamæri og hrella borgara glæ- nýrrar þjóðar með ógnvænlegum sjúkdómi sínum. Við höfum þannig fylgst með því hvernig flensan, sem fyrir nokkrum dögum fannst að- eins í hinni mjög svo fjarlægu Asíu, er nú komin til þjóða sem við á tylli- dögum köllum nágranna okkar. Fuqlaflensa á Islandi Islenskir blaðamenn hafa tekið þátt í söguritun flensunnar. Þannig töldu fréttamenn RÚV sig greini- lega knúna á dögunum til að upp- lýsa landann um að fuglaflensa hefði komið upp hér á landi. í kynningu á frétt um málið var samviskulega rakið að tvær hænur í Húsdýragarðinum væru veikar. Kvöldið sem fréttin var birt sat ég límdur við skjáinn og horfði á með útglenntum augum. Stórhættulegur sjúkdómur hafði numið hér land og ekkert myndi fá okkur bjargað - og í ljósi vinnu minnar vissi ég að það yrði vart gúrkutíð í fréttum þennan mánuðinn. Þið getið vart ímyndað ykkur undrun mína þegar á fréttina leið og í Ijós kom að hið stórhættulega afbrigði flensunnar var bara alls ekkert komið hingað til lands. Nei, hænurnar veiku í Húsdýragarð- inum voru bara með flensu, eins og svo oft gerist. Undarlegur fréttaflutningur Eftir á að hyggja er ég nokkuð undrandi á þessum fréttaflutningi. Þennan dag lá ég heima veikur - með mannaflensu. Ég var reyndar einn en hænurnar voru jú tvær - en ég man ekki eftir að nokkur hafi gert tilraun til að skrifa frétt um veikindi mín. Maður skyldi ætla að flensa fréttastjóra virts Blaðs væri ekki síður fréttnæmur atburður, og ætti ekki síður rétt á að ná eyrum og augum almennings, en tvær veikar hænur í Húsdýragarðinum. Eitt- hvað virðist mér og fréttaritstjórum RÚV greina þar á. Upplýsum og hræðum Hlutverk fjölmiðla er að upplýsa almenning - segja fréttir af stöðu mála í veröldinni í kringum okkur. Því miður er stutt bil á milli þess að upplýsa og þess að hræða. Og oft fer það hreinlega saman. Ég man eftir að hafa setið skít- hræddur og skjálfandi fyrir framan sjónvarpsskjáinn sem krakki og fylgdist með ógnvænlegum fréttum um uppbyggingu stórveldanna á kjarnorkuvopnum. Eftir á að hyggja var augljóslega verið að segja fréttir sem skiptu mig gríðarlega miklu máli, en um leið var stöðugt verið að segja frá mögulegri kjarnorku- styrjöld milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Ég man líka eftir fréttaflutningi af Asíuflensunni í kringum 2002 og 2003. Þar sögðu fjölmiðlar frá því daglega, og jafnvel oft á dag, að nán- ast ekkert þyrfti út af að bregða til að heimsfaraldur breiddist út. Nýjasti hræðsluáróðurinn heitir fuglaflensa - og enn einu sinni detta fjölmiðlar í sama pyttinn. I staðinn fyrir að segja yfirvegað frá staðreyndum málsins er því nýjasta og heitasta slegið upp á forsíðum og í fréttatímum. Almenningur veit síðan vart hvaðan á hann stendur veðrið. Höfundur er fréttastjóri á Blaðinu Klippt & skoríð !> I argir eiga í miklum erfiðleikum með að átta sig á hræringum í ís- lensku viðskiptalífi. Ekki bætir úr skák að iðulega eru menn varla búnir að selja fyrir- tækin fyrr en þeir kaupa þau aftur og öfugt. Nú er Skeljungur aftur kominn í eigu Fons, eignarhalds- félags Pálma Haralds- sonar og Jóhannesar Kristinssonar, sem keypti fyrirtækið af Högum. Fengur keypti Skeljung af KB banka snemma árs 2004 en seldi félagið til Haga síðla sama árs. (frétt á forsíðu Morgunblaðsins í gær segir Pálmi: „Það er mjög sérstakt að í dag [(gær] var einmitt verið að greiða út 100% arð f lceland þannig að það fé sem ég lagði í lceland hef ég nú fengið til baka. Ég hafði frumkvæði að því að óska eftir að kaupa Skeljung og niður- staðan varð sú að við gengum frá samningum í dag [í gær] þarsem við keyptum Skeljung aftur út úr Högum auk þess sem allur rekstur stöðv- anna verður fluttur aftur inn í Skeljung - það var búið að flytja hann út úr Skeljungi. Nú er þetta sem sagt bara gamli góði Skeljungur," segir Pálmi. í fréttinni segir ennfremur: „Hann viðurkennir að Fons komi ekki beinlínis illa út úr þessum viðskiptum - félagið eigi eftir sem áður hlut sinn í lceland-keðjunni en hafi nú jafnframt eignast Skeljung aftur." Kristinn H.Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gerirréttlátari notendagjöld í heilbrigðiskerfinu að umfjöllunarefni í nýjasta vefpistli sfnum. Krist- klipptogskorid@vbl.is inn vísar m.a. í frétt sem birtist f Blaðinu á dög- unum, um rannsókn sem leiðir í Ijós að fátækir eru í verra Ifkamlegu ástandi en aðrir og eru líklegri til þess að fá sjúk- dóma og deyja. Kristinn telur að hlífa beri hinum tekjulægri á íslandi við notendagjöldum í heil- brigðiskerfinu. Kristinn segir: „Niðurstaða m(n verður þá sú að notenda- gjöld leggjast þyngra á tekjulága og fátæka en aðra þjóðfélagshópa, verka eins og sérstakur skattur á þann hóp. Eðlilegt er að lækka hlut notendagjalda og færa hann yfir í almenna skattheimtu ríkisins." Gott og vel en hvar vill Kristinn skera niður á móti eða er hann að boða skattahækkanir?

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.