blaðið - 02.03.2006, Side 38
38IFÓLK
FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 blaöiö
má
MAMMON OG
ÖSKUDAGURINN
Nú er Smáborgaranum nóg boðiö.
Öskudagurinn er ekki lengur það
sem hann var hér einu sinni þegar
lítil, glöð börn á Akureyri klæddu
sig í búninga, sungu og slógu kött-
inn úr tunnunni og börnin fyrir
sunnan hengdu poka aftan á mann
ogannanog létu þarviðsitja.
Já, öldin er önnur í dag. Mamm-
on hefur komið ríðandi inn í ösku-
daginn á sínum feita hesti, líkt og
hann hefur komið ríðandi inn í alla
aðra daga sem eitt sinn voru Ijómað-
ir saklausri gleði vegna Ijósa og lita.
Akfeit börn veltast um borgina og
jarma, eins hratt og þau geta, ein-
hver misvel sungin lög til þess að
geta fengið NAMMI og helst nóg
af því. Svona vaða þau búð úr búð
þartil gulu og bleiku Bónuspokarn-
ir þeirra eru orðnir nokkur kíló að
þyngd, því þetta gengur jú fyrst
og fremst út á það - að fá nógu ass-
goti mikið!
Smáborgaranum líkar þetta ekki.
Smáborgaranum verður hugsað til
hryllingsmyndarinnar Children of
the Corn, þar sem heilalaus og líf-
vana börn óðu uppi öllum til ama
og óþæginda. í dag eru þetta sykur-
vímuð börn sem hálfslefandi dratt-
ast á milli verslana í hreinræktaðri
græðgi og láta sig litlu skipta hvort
þau syngja vel eða illa. Þau hugsa
ekki einu sinni um að vera í fínum
búningum. Nei, nú láta þau jóla-
sveinahúfu, sólgleraugu og ámálað
yfirvaraskegg duga.
Og þessi börn raða í sig sælgæti
einmitt nú þegar Orkuátakið mikla
er nýafstaðið. Þetta er líkt og þeg-
ar áfengissjúkur sjómaður kemur
í land eftir tveggja mánaða túr.
Hann er á sama leigubílnum í viku
og lætur ekki renna af sér allan tím-
ann.
Smáborgarinn leggur til að við
sem fullorðin erum látum ekki
bjóða okkur þetta. Launum ekki
börnunum fyrir lélegan söng. Nei!
Gerum kröfur. Góðir búningar
og fagur söngur. Já, þá máttu fá
nammi. En ef þú nennir ekki að
hafa fyrir því, þá skaltu ekki búast
viðumbun.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Elías Þorvarðarson, bœjarstjóri í Leikbæ.
Hvaða grímubúningar voru vin-
sælastir í ár?
„Silvía Nótt kom sterk inn hjá stelpunum í ár en bleiku prinsessubúning-
arnir eru alltaf vinsælir hjá þeim líka. Hjá strákunum voru það hins vegar
Ninja-búningar sem voru vinsælastir og hafa þeir tekið svolítið við af ofur-
hetjunum. Batman og Spiderman eru samt alltaf vinsælir og eru það enn
í dag, sérstaklega hjá yngri strákunum."
I gær, öskudag, var ekki þverfótað í borginni fyrir krökkum í grímubúningum.
McCartney ver málleysingja
Bítillinn og aðalsmaðurinn Sir Paul McCartney er á leiðinni til Kanada í vikunni
ásamt konu sinni Heather Mills McCartney til að biðja borgarfulltrúa í Ottawa að
hætta við árlega selaveiði.
Hjónakornin ætla að fylgjast með selkópunum áður en veiðin hefst. Þau hafa bæði
verið miklir talsmenn réttinda dýra og ætla að halda út á ísilagðan St. Lawrence-fló-
ann til að tala máli málleysingjanna. Samkvæmt framkvæmdastjóra dýraverndunar-
samtaka Kanada, Rebeccu Aldworth, mun heimsókn parsins til kópanna varpa ljósi
á grimmilega og tilgangslausa slátrun selanna.
Nákvæm tímasetning selaveiðanna hefur enn ekki verið staðfest þar sem veturinn er
óvenju mildur. Talið er að þetta verði um miðjan mars.
Clooney vœri dópisti
Hjartaknúsarinn og stjarna kvikmyndarinnar Syriana sem er frumsýnd um helgina,
George Clooney, væri dópisti hefði hann orðið frægur fyrr en hann varð. Clooney
var rúmlega þrítugur þegar hann fékk hlutverk í spítalasjónvarpsþáttunum Bráða-
vaktin sem síðar fleyttu honum upp á stjörnuhimininn sem ein skærasta stjarna
Hollywood. Á þrítugsaldrinum var ferillinn Clooney erfiður þar sem hann fór
á milli áheyrnarprófa án árangurs. Hann segist ánægður með að hafa ráðið við
frægðina þegar frægðarsól hans byrjaði að rísa. „Hefði ég orðið frægur sem átján
ára unglingur væri ég farinn að sprauta mig með krakki í hálsinn nú til dags.“
Hatcher vill
tignarlegt œvikvöld
Aðþrengda eiginkonan Teri Hatcher vill að konur sleppi því að fara í fegrunarað-
gerðir til að berjast gegn áhrifum ellinnar. Hún segist því sjá eftir því að hafa
farið í botox og kollagen-sprautur til að yngja sig upp.
Leikkonan fagra, sem eitt sinn var heitmey sjálfs Ofurmennisins, segist ekki
lengur fylgjandi fegrunaraðgerðum og vill fara fyrir hópi frægs fólks sem snýr
baki við ónáttúrulegum aðgerðum. „Eg hef ekki farið í andlitsaðgerð í meira en
ár og ætla mér það ekki. Það þarf að vera í lagi að vera hrukkóttur," sagði Hatc- |
her í viðtali við Glamour tímaritið.
Glæsileg hjá GM
Leikkonan Mishca Barton var stórgiæsileg á árlegri tiskusýningu General Motors sem
haldin er á GM-Ten bílasýningunni. Þar komu fram margar af helstu stjörnum Holly-
wood, s.s. Lindsay Lohan, Eva Longoria og fleiri. Grammyverðlaunahafinn John Legend
var meðal þeirra sem sáu til þess að gestunum leiddist ekki.
5-14__________________ © Jim Unger/disl. by United Medla, 2001
Þú átt að nudda því í hársvörð-
inn, ekki drekka það!
HEYRST HEFUR...
Hugmyndir bítilsekkjunn-
ar Yoko Ono um að reisa
friðarsúlu hér á landi hlutu
verðskuldaða at-
hygli í fjölmiðl-
um um helgina.
Súlan á víst að
vera á bilinu 12
til 30 metrar að
hæð, eftir því
hvaða fjölmiðill sagði frá, og
innan í henni „verða settar ósk-
ir um frið, sem hengdar voru
á óskatré á listsýningum Yoko
Ono víða um heim“... hvað nú
sem það þýðir.
Fyrirætlanir þessar voru
kynntar með viðhöfn á
Kjarvalsstöðum að viðstödd-
um íslenskum aðli. Þar á meðal
var borgarfulltrúinn og listunn-
andinn Stefán Jón Hafstein
Stefán hefur verið duglegur við
að koma frægum sem minna
frægum listamönnum á fram-
færi við kúltúrsnauðan almúg-
ann í borginni. Þegar hugmynd
Yoko Ono var
opinberuð
mun Stefán
hafa verið fljót-
ur að sjá að það
sem öllu skipti
fyrir heims-
friðinn skipti
að súlan risi
hvergi annars staðar en í landi
Reykjavíkurborgar.
Víkur nú sögunni til guð-
fræðinémans og Eyjapeyj-
ans Ólafs Jóhanns Borgþórs-
sonar, sem eyddi helginni i að
rúnta með bítilekkjuna um höf-
uðborgina. Á bloggsíðu sinni í
gær skrifar hann um reynslu
sína.
„ Tilgangur ferðarhennar hingað til iands
var að velja stað fyrir friðarsúlu sem hún
ætlarað gefa Reykjavík - auðvitað sagði
ég henni að staðsetja hana í Vestmanna-
eyjum. iftir að ég hafði lýst Vestmanna-
eyjum, mannlífinu, náttúrunni og
sögunni ákvað hún að hlusta ámín ráð
—enþegará reyndi og kom að þvíað
tilkynna staðsetninguna á blaðamanna-
fundinum á laugardaginn, þá mundi hún
ekki hvað eyjan heitir og spurði þvl Stefán
Ján Hafstein um nafn eyjunnar -hann var
ekki lengi að gripa tækifærið og hugsa
um sína byggð og sagði ákveðið: VIBEY."
Sú spurning hefur vaknað
vegna þessara skrifa Ólafs
hvort Stefán Jón hafi stolið
friðarsúlunni af Vestmanna-
eyingum og hvort framundan
séu átök milli forráðamanna
þessara tveggja sveitarfélaga
um hnossið.
Mikið hef-
ur verið
um það fjall-
að hvernig
aðkomumað-
urinn Eyþór
Arnalds hafi
komið, séð og
sigrað meðal sjálfstæðismanna
í Árborg, en þessi fyrrverandi
forstjóri Íslandssíma mun sem
kunnugt er leiða lista þeirra í
sveitarstjórnarkosningum þar
eystra í vor. En pólitíkin á Suð-
urlandi er víðar fjörleg, því nú
hafa sjálfstæðismenn í Rangár-
þingi eystra ákveðið lista sinn
fyrir kosningarnar. Og hver er
þar í 4. sæti annar en óskar
Magnússon, arftaki Eyþórs
í forstjórastóli Íslandssíma?
Óskar reisti sér fyrir nokkrum
árum hús á Sámsstaðabakka
í Fljótshlíð og ef hann er hálft
jafnöflugur kosningasmali og
Magnús heitinn Óskarsson,
borgarlögmaður og faðir hans,
var er stórsigur innan seiling-
ar...