blaðið - 08.03.2006, Page 2
2 I IWNLEWDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaöiö
blaðiö=—
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
„Selja vörur langt yfir markaðsverðr
Fulltrúi Bauhaus segir íslenskar byggingavöruverslanir verðleggja vörur sínar meðvitað of
hátt. Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, vísar gagnrýni á bug.
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Byggingavöruverslaniráíslandiselja
vörur sínar langt yfir eðlilegu mark-
aðsverði að mati Helmut Diewald,
yfirmanns þróunarsviðs Bauhaus.
Hann telur forstjóra Byko og Húsa-
smiðjunnar hræðast erlenda sam-
keppni. Forstjóri Húsasmiðjunnar
undrast gagnrýni Helmuts og segir
fyrirtækið ekki óttast samkeppni.
Aðeins spurning um tíma
Helmut Diewald, y firmaður þróunar-
sviðs Bauhaus, gagnrýndi bygginga-
Afnám fóðurtolla
myndi lækka
matvælaverð
Neytendasamtökin hafa tekið
undir með Landssambandi kúa-
bænda og Svínaræktarfélagi ís-
lands sem lagt hafa til að tollar á
innfluttum kjarnfóðurblöndum
verði lagðir niður. Ályktun þess
efnis hefur verið lögð fram á Bún-
aðarþingi og segir Baldur Benja-
mínsson, framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda, að
það ætti að skýrast í dag hvort til-
lagan verði samþykkt.
Veldur hærra afurðaverði
Nú er tollurinn 7,80 krónur á inn-
fluttar blöndur, en 80 aurar á inn-
flutt hráefni til fóðurgerðar. „Það
er ekkert óvarlegt að áætla að
verði stjórnvöld við þessari tillögu,
muni influttar kjarnfóðurblöndur
lækka sem þessu nemur,“ segir
Baldur.
Þegar verð á fóðurblöndum er
borið saman við Danmörku kemur
mikill munur í ljós. „Þar kostar
kílóið um það bil 15 krónur. Hér
á landi er algengt verð í kringum
34 krónur á kíló.“ Baldur segir að
hann geri sér grein fyrir því að eitt-
hvað kosti að flytja fóðrið hingað
til lands og að fóðurverksmiðjur
hér muni aldrei ná þeirri stærðar-
hagkvæmni sem er í Danmörku,
en hann segir muna um hverja
krónu í þessum efnum. „Þessi
tollur er að kosta okkur verulega
fjármuni og þetta hefur áhrif til
verðhækkunar á afurðaverði, það
er ekki nokkur spurning um það.“
Neytendasamtökin sammála
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna er tekið undir kröfur bænda
og segir þar að ljóst sé að verði toll-
urinn felldur niður, eða lækkaður
til samræmis við tolla á hráefni til
fóðurgerðar, geti bændur tekið sig
saman og flutt inn tilbúnar kjarn-
fóðursblöndur. „Með því myndi
þeim tveimur fyrirtækjum sem
nú framleiða kjarnfóðurblöndur
hér á landi vera veitt verulegt að-
hald,“ segir í fréttinni. Því er bætt
við að verði stjórnvöld við þessum
tilmælum sé hægt að stíga skref til
að lækka matvælaverð hér á landi.
Málefnin.com
opnar aftur
vöruverslanirnar Byko og Húsasmiðj-
una í fjölmiðlum í gær. Helmut, sem
staddur er hér á landi til að fylgja
eftir hagsmunum félagsins, segir
íslensku byggingavöruverslanirnar
hræddar við erlenda samkeppni og
að bolabrögðum sé beitt til að leggja
stein í götu Bauhaus.
Þá segir Helmut verðlag á ís-
lenskum byggingavörumarkaði
um 20 til 30% yfir markaðsverði og
að forstjórum Byko og Húsasmiðj-
unnar sé það fullkunnugt. Hann
telur að nái Bauhaus fótfestu hér á
landi muni fyrirtækið geta boðið
neytendum upp á miklu lægra verð
og meira vöruúrval.
Fyrirhugað var að borgarráð
Reykjavíkur tæki afstöðu til um-
sóknar Bauhaus um lóð í landi Úlf-
arsfells í síðustu viku. Því var hins
vegar frestað eftir að bæjarstjóri
Mosfellsbæjar skilaði inn athuga-
semd þar sem kom fram að út-
hlutun lóðarinnar til Bauhaus væri
brot á samkomulagi bæjarfélagsins
við Reykjavíkurborg. Áður hafði
Smáragarður, fasteignafélag Byko,
gert athugasemdir við umsóknina.
Að sögn Helmuts er það þó aðeins
spurning um tíma þar til Bauhaus
fær lóð hér á landi.
Húsasmiðjan er fyllilega samkeppnisfær
við Bauhaus að mati Steins Loga Björns-
sonar, forstjóra Húsasmiðjunnar..
Ofhlaðið svæði
Steinn Logi Björnsson, forstjóri
Húsasmiðjunnar, undrast gagnrýni
Helmuts og segir fyrirtækið alls
ekki hrætt við erlenda samkeppni.
Hann segir verð á byggingavörum
á íslandi alls ekki yfir markaðsverði
og að fullu sambærilegt við það sem
gengur og gerist á erlendum mörk-
uðum. „Ef maður ber saman okkar
verð við útsöluverð Bauhaus í Dan-
mörku þá kemur í ljós að verðið hjá
þeim ekkert lægra. Þannig að við
erum fyllilega samkeppnisfærir við
Bauhaus."
Steinn fagnar allri samkeppni
en telur mikilvægt að hún byggi á
heilbrigðum grunni. Hann segir
mikilvægt að menn fari ekki offari
í fjárfestingum því það gæti skaðað
alla aðila á markaðinum „Það sem
ég óttast er að menn fari út í fjár-
festingar sem eru kannski byggðar
á misskilningi á því hvernig mark-
aðurinn starfar og ofmeta jafnvel
stöðu sína.“
Þá bendir Steinn á að verði lóða-
umsókn Bauhaus samþykkt er fyrir-
sjáanlegt að þrjár byggingavöruversl-
anir, alls um 50 þúsund fermetrar,
verði á svæði sem ekki er meira en
tveir ferkílómetrar að stærð. Að
hans mati er það borgaryfirvalda að
gæta þess að ekki sé ofhlaðið af sömu
starfsemi á litlu svæði. „Við erum
nýbúnir að fjárfesta fyrir gífurlegar
fjárhæðir í nýrri verslun í Grafar-
holtinu. Við tókum þá fjárfestingar-
ákvörðun miðað við það deiluskipu-
lag og aðalskipulag sem þá lá fyrir.
Það á að vera hægt að treysta því að
slíkt skipulag haldi þegar farið er út
í svona stórar fjárfestingar.“
Stólaskipti í ríkisstjórn
Blaðlt/Steinar Hugi
Ríkisráösfundur var haldinn á Bessastööum í gær þar sem breytingar f ríkisstjórninni voru staöfestar. Árni Magnússon baðst iausnar
frá embætti félagsmálaráðherra og tók Jón Kristjánsson viö af honum. Þá kom Siv Friðleifsdóttir aö nýju inn f rfkisstjórnina þegar hún
var skipuð í embætti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Spjallvefurinn málefnin.com mun
opna aftur í dag eftir tímabundna
lokun samkvæmt tilkynningu á
síðunni.
Spjallborðinu var lokað á mánu-
dag í kjölfar kvartana Jónínu Bene-
diktsdóttur. Jónína gerði alvarlega
athugasemd við spjallþráð á síðunni
þar sem búið var að koma fyrir
ábendingu hvar mætti nálgast birt-
ingu á tölvupóstsamskiptum hennar
og nafngreindra einstaklinga. 1 kjöl-
farið var síðunni lokað þar sem vef-
stjóri taldi sig ekki reiðubúinn að
öllu óbreyttu til að taka ábyrgð á
efni spjallborðsins.
Að sögn Stefáns Helga Kristins-
sonar, vefstjóra málefnin.com, hafa
nokkrir aðilar sett sig í samband við
hann eftir að síðunni var lokað og
lýst sig reiðubúna til að taka ábyrgð
á spjallborðinu. Viðræður og und-
irbúningur hafa staðið yfir síðan í
gær en Stefán er bjartsýnn á að hægt
verði að opna síðuna í dag.
(^3 Heiðskirt 0 Léttskýjaö ^ Skýjað £ Alskýjað
Rignlng,lítilsháttar //' Rigning 9 } Súld Snjókoma
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
08
17
02
04
01
01
-07
-01
11
17
15
-08
-01
09
-02
10
-03
06
01
15
10
06
Slydda \jj Snjóél xjj
Skúr
30
Breytilegt
4° x
Breytilegt
'fe (3
3°
0f^e
Breytilegt
. S '
0*2° k
■ • ■ / / ✓ ' *3° ®2° * ■1”*. Á morgun -1" ^
Veðurhorfur í dag kl: 15.00 * o°V // 1°
Veðursíminn 902 0600 ✓ '
Byggt á upptýsingum frá Veðurstofu íslands 2°