blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 12
12 I FYRIR KONUR MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaöiö Fyrr skal ég dauð liggja! Félag ungra femínista, Bríet, efnir til baráttugleði á efri hœð Dubliners í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. í kvöld mun Femínistafélagið Bríet standa fyrir samkomu í til- efni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag, 8. mars. Þær lofa því að andi fyrri tíma kvenrétt- indakvenna muni ráða ríkjum með viðeigandi veggspjöldum, slagorðum og búningum. Femínistar nútímans munu tala um það sem stendur þeim nær og fjær í anda gömlu kempnanna. Tón- listarkonur og plötusnúðurinn Suffr- age leika svo lög af skífum og syngja á milli baráttuþrunginna þrumu- ræðna. Blaðamaður sló á þráðinn til eins af forsprökkum félagsins. Hvað kom til að þið ákváðuð að halda nostalgískt femínistakvöld? „Fyrir nokkrum árum héldum við svona kvöld á efri hæð veitingastaðar- ins við Laugaveg 22 þar sem þemað var konur í tónlist. Þetta kvöld heppn- aðist alveg rosalega vel. Við fengum til okkar mest áberandi konurnar úr femínistaumræðunni í samfélaginu og leyfðum þeim að viðra skoðanir sínar. Svo vorum við með hljóðnem- ann opinn, bæði fyrir tal og tóna. Okkur fannst svo skemmtilegt að hafa þema að við ákváðum að reyna að hafa þema aftur. Fyrst datt okkur í hug að hafa grímuball en þar sem þetta er virkur dagur þá vildum við ekki vera að setja þá kröfu á jafn- réttissinnana. Hins vegar spratt önnur hugmynd út frá þessari um grímuballið og hún var sú að hafa Bríeti Bjarnhéðinsdóttir )etta í anda áranna 1870-1920, en iað tímabil kallast innan akadem- íunnar fyrstu kynslóðar femínismi. Við heitum náttúrlega í höfðuðið á einum frægasta femínista Islands- sögunnar; Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og því var einkar viðeigandi að gera þessum tíma hátt undir höfði. Okkur langar á þessu kvöldi að lifa okkur inn í stemninguna sem konur voru í á þessum árum, en þá þótti afskaplega djarft að vera femín- isti. Okkur langar til að leika okkur í þessum anda. Hrópa setningar sem byrja á orðum eins og fyrr skal ég dauð liggja og fleiri í þeim dúr,“ segir Kristbjörg og hlær. Eruð þið að vonast til þess aðfá ein- hverju áorkað með þessu kvöldi? „Við viljum aðallega þjappa hópnum saman. Sýna okkur sjálfar, sjá aðra og standa saman. Sýna systralag með því að halda daginn hátíðlegan og hafa það gaman. Það er oft erfitt að standa í kvennabar- áttu og því er um að gera að leyfa sér að skemmta sér svolítið inn á milli,“ segir Kristbjörg Kona Krist- jánsdóttir að lokum. Dagskrá kvöldsins verður með fjölbreyttum hætti en baráttu- ræður, upplestur og leik fremja eftirfarandi dömur: Kristbjörg Kristjánsdóttir Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona, flytur erindi um kynferðisofbeldi Drífa Snædal frá Kvennaat- hvarfinu flytur erindi um heimilisofbeídi Edda Björgvinsdóttir, leikkona, fjallar um femínisma Vala Pálmadóttir, ungfemínista, flytur erindi um kynjafræð- ina og lífið Guðrún Ög- mundsdóttir, þing- kona, flytur erindi um önnur mikil- væg málefni Leikkonur úr Kvenfélaginu Garpur troða upp k Úttektir á lífi karla og kvenna í tuttugu og fimm aðildarríkjum ESB Konur vinna meira, lifa lengur, mennta sig betur ogfá minna frí en karlar sem einbeita sérfrekar að almennum störfum. KatrínAnnaGuðmundsdóttir.tals- kona Femínistafélagsins, flytur er- indi um komandi tíma í baráttunni. Bríetur hvetja alla til að mæta og fyllast baráttuanda þeirra kvenna sem börðust fyrir þeim réttindum sem fólk telja sjálfsögð í dag. Þær sem óðu eld og brennistein svo að kynsystur þeirra mættu kjósa, sitja á þingi, öðlast rétt til fóstureyð- inga og fá þau tækifæri sem bjóðast konum á vinnumark- aði í dag. „Þó svo miklu hafi verið áorkað er ekki hægt að fagna algjöru jafnrétti kynjanna enn í dag. Því er meiningin að slá baráttuanda fyrri tíma í baráttumál nútímans.“ Baráttukvöldið hefst stundvíslega klukkan 20:00. 4° M. A stundir á dagenkarlar. Þegar talað er um vinnustundir er átt við nám eða vinnu sem og heimilisstörf en almennt vinna konur um einni klukkustund lengur mmm <8> J t tilefni af alþjóðlegum degi kvenna, sem er í dag 8. mars, hefur Evrópusambandið birt niðurstöður úr könnun sem það lét gera á lifnaðarháttum og lífs- líkum karla og kvenna í aðildar- ríkjunum tuttugu og fimm. Konur lifa að meðaltali sex árum lengur Lífslíkur kvenna eru meiri í öllum tuttugu og fimm aðildarríkjum Evr- ópusambandsins eða að meðaltali 81,2 ár fyrir konur, miðað við 75,1 ár fyrir karla. 1 Litháen verða konur að meðaltali 77,7 ára á meðan karlarnir verða aðeins um 66,3 ára gamlir. Minnstu munar á Möltu en þar verða konur um 80,7 miðað við karla sem verða að meðaltali 76,7 ára. Frumbyrjur yngstar í Eistlandi en elstar á Bretlandseyjum Árið 2004 munaði tæplega einu og hálfu ári á aldri kvenna þegar þær eignuðust sitt fyrsta barn miðað við rann- sóknir sem voru gerðar árið 1994. Yngstu mæðurnar eru í Eistlandi en þar eru þær að meðaltali 24,6 ára. í Lettlandi eru mæður 24,7 ára og í Litháen eru þær 24,8 ára. Elstu frum- byrjurnar eru á Bretlandseyjum en þar eru þær tæplega þrítugar þegar þær eignast sitt fyrsta barn. Meðal- aldur frumbyrja í öllum aðildarríkj- unum er 28 ár og tveir mánuðir. 55% háskólanema eru konur 1 aðildarríkjunum 25 höfðu fleiri konur lokið háskólanámi en karlar. Þetta á við alls staðar nema í Tékk- landi og á Bretlandi en þar er mjórra á munum. Menntuðustu konurnar búa í Slóveníu en þar eru um 94% kvenna með háskólapróf, en minnsta menntun hafa konur á Möltu, aðeins 48%. 1 raungreinum, til að mynda stærðfræði og tölvu- fræði eru konur 37%. Aðeins á Ítalíu og í Portúgal eru fjöldi kvenna og karla nánast jafn hvað varðar nám í raungreinum, en í Hollandi eru kon- urnar færri en fjórðungur nemenda. í öllum aðildarríkjunum eru konur duglegri að leggja stund á hugvís- indi og listgreinar eða á bilinu 54% í Slóvakíu til 80% í Lettlandi. 1 hinum löndunum er meðaltalsmunurinn um það bil 66%. Konur vinna fleiri vinnu- stundir en karlar í þeim löndum sem hægt var að gera marktækar mælingar kom í ljós að konur vinna hlutfallslega fleiri en karlar. Mestu munar á Ítalíu, Sló- veníu, Litháen, Spáni og Ungverja- landi en aðeins í Sviþjóð og á Bret- landseyjum vinna karlar og konur nánast jafn margar stundir yfir daginn. Lengst vinna konur í Lit- háen og Slóveníu: 8 klukkustundir á dag, en stystu vinnudagar kvenna eru í Þýskalandi og Belgíu eða um sex og hálf klukkustund á dag. Eins og fyrr segir eyða kvenmenn miklu meiri tíma í margs konar heimilis- störf á meðan það gagnstæða gildir fyrir karlmenn, en þeir einbeita sér frekar að almennum störfum og námi fremur en að halda heimilinu í góðu ástandi. margret@bladid. net CAFEADESSO 2, hæð í Smáralind v/Vetrargarðinn SALAT hollt og gott í hádeginu komdu og smakkaðu! opiö virka daga 10.00-19.00 laugardaga 10.00-18.00 sunnudaga 11.30-18.00 Simi 544 2332 www.adesso.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.