blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaöiö „Hljóta að geta átt sér viðreisnar vonv' Framkvœmdastjóri Landssambands œskulýðsfélaga segir of langt gengið í nýju fumvarpi um œskulýðsmál. Hann kannast ekki við að fíkniefnasalar leiti eftir störfum á þessum vettvangi. BA býður 52 til Lundúna Flugfélagið British Airways hefur áætlunarflug til íslands sunnudag- inn 26. mars og ætlar af því tilefni að bjóða 26 manns auk förunautar í helgarferð til Lundúna. Hinir heppnu verða dregnir úr hópi þeirra, sem hafa skráð sig á vef British Air- ways (www.ba.com) fyrir næsta föstudag, 10. mars. I tilkynningu frá flugfélaginu greinir að allir þeir, sem þegar hafa skráð sig á vef BA verði með í pott- inum þegar hinir heppnu verða út dregnir til þess að taka þátt í fyrsta fluginu. Auk flugsins út fá þeir gist- ingu í þrjár nætur á hótelinu Park Inn og einn hátíðarkvöldverð. Sérstakt kynningartilboð er í gildi hjá British Airways vegna hins nýja áætlunarflugs milli íslands og Englands. Fyrstu 20 þúsund ein- staklingunum, sem skrá sig á vef flugfélagsins, býðst 50% afsláttur af viðmiðunarverði á flugleiðinni auk 20% afsláttar af hótelum í London. Samkvæmt því er verðið aðra leið- ina milli Keflavíkur og Lundúna 6.073 krónur að sköttum og gjöldum meðtöldum, en farmiðasala BA hér á landi fer einungis fram á Vefnum. I nýju frumvarpi um æskulýðslög sem nú er til umræðu í mennta- málanefnd eru of miklar skorður settar við það hverjir megi starfa að æskulýðsmálum, segir Höskuldur Sæmundsson, framkvæmdastjóri Landssambands æskulýðsfélaga. í frumvarpinu er kveðið á um að umsækjendur verði að skila inn sakavottorði með umsókn sinni til þess að sýna fram á að þeir hafi hvorki hlotið dóm fyrir kynferðis- brot né fíkniefnabrot. „Það sem við höfum gert athugasemdir við varð- andi þetta frumvarp er að hin ýmsu bindindissamtök.jafningjafræðslan og önnur samtök sem berjast gegn fíkniefna- og áfengismisnotkun, nota mikið óvirka fíkla í sínu starfi,“ segir Höskuldur. Margir þeirra sem starfað hafa að fíkniefnaforvörnum eiga sér forsögu í heimi fíkniefn- anna og hafa jafnvel hlotið dóma vegna þess. „Mér finnst því vanta einhver undantekningarákvæði sem gerði þessum einstaklingum kleift að leggja sitt af mörkurn." Hnökrar á frumvarpinu Höskuldur segir eðlilegt að fólk eigi sér viðreisnar von í lífinu. „Ég skil hins vegar hugsunina á bak við ákvæðið en að mínu mati eru ákveðnir hnökrar á því eins og það er sett fram þarna.“ Annað sem vekur athygli þegar frumvarpið er lesið segir Höskuldur að þeir sem gerst hafi brotlegir við fíkniefnalög- gjöfina eru settir undir sama hatt og barnaníðingar. „Þetta er sagt í sömu setningunni. Mér finnst ekki hægt að leggja þetta tvennt að jöfnu vegna þess að þeir sem lent hafa í ein- hverju rugli á lífsleiðinni og fengið á sig dóm vegna fíkniefna hljóta að geta átt sér viðreisnarvon. Sérstak- lega þeir sem sækjast eftir því að starfa við að fræða börn og unglinga um skaðsemi fíkniefna og geta þar miðlað af eigin reynslu.“ Höskuldur tekur dæmi af því þegar Jafninga- fræðslan var stofnuð á sínum tíma. Þá hafi ungur strákur starfað með þeim sem áður hafði verið djúpt sokkinn í fíkniefni. „Þegar þessi maður sagði sína sögu vakti hún sterk viðbrögð hjá krökk- unum sem á hlustuðu. Manni finnst því full harkalegt að útiloka þennan hóp alveg.“ Höskuldur ítrekar að sjónarmið Ástu Möller í þessum málum eigi rétt á sér og stundum leynist svartir sauðir inn á milli. En mér finnst algjör óþarfi að skella þessari hurð alveg í lás.“ Settir út af sakramentinu 1 samtali við Blaðið sagði Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ein þeirra sem frumvarpið sömdu, að ákvæðið um fíkniefnabrotin hafi verið sett inn til þess að koma í veg fyrir að fíkniefnasalar ráði sig í æskulýðsstarf til þess að komast að börnum og unglingum. Höskuldur segist hafa heyrt orðróm i þessa veru í gegnum árin en að hann hafi aldrei fengist staðfestur. „Þegar ég var í Jafningafræðslunni fyrir um 10 árum þá kom þessi orð- rómur upp,“ segir hann. „Ég hef hins vegar aldrei heyrt um staðfest dæmi þess að fíkniefnasalar hafi sóst eftir að taka þátt í æskulýðs- starfi með það að augnamiði að selja krökkunum dóp.“ Höskuldur ítrekar að hann sé ekki að gera lítið úr fyrirvörum þeirra sem frumvarpið sömdu, „en hins vegar finnst mér full harkalega gengið fram. Það á að sjálfsögðu að taka öll þau skref sem hægt er til þess að vernda ungt fólk og æskulýð landsins en það er alveg út í hött að setja menn sem jafnvel hafa starfað að forvarnarmálum í fjölda ára út af sakramentinu fyrir gamlar syndir sínar.“ Olíufélagið hættir föstum verðákvörðunarfundum Þrjú ár i fýrsta lyfið frá Erfðagreiningu? Lyfjaprófá hjartalyfi hafa gengið vel. Fleiri lyfsögð á leiðinni íprófanir. Olíufélagið ehf. hefur orðið við beiðni talsmanns neytenda og ákveðið að leggja af fasta vikulega fundi um ákvörðun eldsneytis- verðs. Talsmaður neytenda segir allt mynstur í verðmyndun skaða hags- muni neytenda. Engar reglur brotnar Olíufélagið hefur um árabil haldið fasta fundi á mánudögum þar sem ákvarðanir varðandi eldsneytisverð eru teknar. Þetta hefur þýtt að aðrir aðilar á markaðinum hafa hingað til getað miðað sínar verðbreytingar við ákvörðun félagsins. Að mati Gísla Tryggvasonar, tals- manns neytenda, myndast alltaf hætta þegar slíkt mynstur skapast í kringum verðlagningu og getur það skaðað hagsmuni neytenda. Af þeim ástæðum beindi embættið þeim tilmælum til Olíufélagsins ehf. að það legði niður þessa föstu fundi. „Eg er ekki að halda því fram að ætlunin hafi verið að hafa áhrif á verðmyndun á markaði né að reglur hafi verið brotnar. En það hafði skap- ast þarna ákveðið mynstur og allt mynstur í verðmyndun þar sem á að vera samkeppni er óheppilegt.“ Verða við tilmælum Hermann Guðmundsson, forstjóri Olíufélagsins ehf., segir félagið hafa haft þessa vinnureglu um langa hríð en ákveðið að breyta henni í sam- ræmi við tilmæli talsmanns neyt- enda. „Talsmaður neytenda hafði áhyggjur af því að þessi vinnuregla gæti orðið til þess að aðrir tækju aldrei frumkvæði á markaðinum. Við höfum enga hagsmuni afþví að halda einhverri stefnu á lofti sem að hann telur að henti ekki neytendum. Framvegis munum við því hafa þessa verðákvörðunarferla eitthvað lausari í reipunum.“ Hermann segir fyrirtækið hafa lengi þurft að leiða verðmyndun á markaðinum en það gæti alveg þegið að einhverjir aðrir tækju það hlutverk að sér. „Það væri miklu þægilegra ef aðrir gætu leitt markað- inn. En okkur hefur ekki verið boðið upp á það. Við berum ábyrgð á því að hluthafar félagsins skaðist ekki og með þá hagsmuni að leiðarljósi höfum við fylgt okkar verðstefnu og látið okkur fátt um finnast hvað aðrir ætla að gera.“ Fyrsta lyfið frá íslenskri erfðagrein- ingu gæti komið á markað eftir þrjú ár, jafnvel fyrr ef bandaríska lyfjaeftirlitið heim- ilar. Hér ræðir um lyf, sem hefur vinnu- heitið DG031, en því er ætlað að minnka líkur á hjartaáfalli. Yfir 2.000 manns hafa tekið þátt í lyfja- prófunum á því og hafa engar aukaverk- anir komið í ljós. Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfðagreiningar, gerði íslenskum blaðamönnum og fjárfestum grein fyrir starfsemi fyrirtækisins, ástandi og horfum í gær, en daginn áður höfðu verið birtar rekstrartölur síðasta árs. Kári lagði áherslu á að þó menn töluðu um rekstrartap hjá fyrirtæk- inu yrði að hafa í huga að hér væri um fjárfestingu að ræða. Hún væri vissulega áhættusöm, en um leið æti ávinningurinn verið verulegur. heiminum væru 92 lyf seld fyrir meira en milljarð Bandaríkjadala á ári, en 10 mest seldu lyfin seldust fyrir ríflega 50 milljarða dala. Þá ítrekaði Kári að ekki mætti gleyma því, að verulegur árangur hefði þegar náðst; 35 meingen hefðu verið kortlögð, 15 lyfjamörk fundist, átta lyf væru í þróun og prófanir hafnar áþremurlyfjum. Þau yrðu raunar fimm talsins áður en árið yrði á enda. Þá mætti líka benda á að deCODE væri fyrsta og um leið eina fyrirtækið í heiminum, sem tekist hefði að finna meingen og þróa í framhaldinu lyf, sem komið væri í lyfjaprófun. Þau lyf, sem í þróun væru, beindust öll gegn mjög algengum heilbrigðis- vanda á borð við hjartaáföll, astma, útæðasjúkdóma, verki heilablóðföll og offitu. Kvaðst Kári vongóður um að fyrirtækið hefði náð varanlegum árangri í að stytta þróunartíma þeirra. Gengi bréfa deCODE, móðurfé- lags Erfðagreiningar, lækkaði ört á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í gærmorgum, en um hádegisbil rétti það talsvert af. Kári Stefánsson brother ql-sso lUmboðsoðili:^^^^^^^^^^^- Rafnort Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102. rafport@rafport.is www.rafport.is Umboðsmenn um land ollt •^feSLÍÍlJÍl IVIÍIVUMI Miíar ó bréf, pakka, bréfabindi o.fl. Á CD/DVD diska, miðar úr plosti Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook Prentor merkiborða bæði ú pappir og plost, stærðir eftir vali, allt oð eins meters lango Allt að 62mm breidd • 50 miðar ó mínútu* • USB tenging • Windowshugbúnaður • Sjúlfvirk klipping • Heilar lengjur eða staðlaðor *Staðlaðir póslfongomiðor I I Á

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.