blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTXR MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaöiö Rauters Besygie fagnaði niðurstöðu hæstaréttar í gær. Hann bíður nú eftir að frekari ákærur gegn honum verði teknar fyrir Besigye sýknaður í Úganda Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úganda, Dr. Kizza Besigye, var sýkn- aður í gær, þriðjudag, af nauðgunar- ákæru í hæstarétti í Kampala, höfuð- borg landsins. Besigye, sem tapaði fyrir Yoweri Museveni, sitjandi forseta í kosningum í síðasta mán- uði, hefur ávallt haldið því fram að nauðgunarkæran væri runnin undan rifjum andstæðinga hans. Við dómskvaðningu gagnrýndi dóm- arinn ákæruvaldið harðlega og lét þau orð falla um málsmeðferðina að hún hafi verið gróf og viðvaningsleg. Besigye segir dóminn sanna að hann sé fórnarlamb pólitískra ofsókna. I kjölfar dómskvaðningar kærðu lögfræðingar Besigye niðurstöðu for- setakosninganna í síðasta mánuði. Þeir saka stuðningsmenn Museveni um kosningasvindl og segja að stuðn- ingsmönnum Besigye hafi verið meinaður aðgangur að kjörstöðum. Kosningaeftirlitsmenn frá Evrópu- sambandinu hafa ekki staðfest þessar ásakanir en þeir gagnrýndu þó handtöku Besigye og nauðguna- ákæruna, sem var gefin út stuttu eftir að hann Iýsti yfir framboði. Einnig ákærður fyrir land- ráð og hryðjuverk Þrátt fyrir sýknudóminn er Besigye ekki enn laus allra mála. Stjórnvöld i Úganda hafa kært hann fyrir land- ráð og herinn hefur einnig kært hann fyrir hryðjuverkastarfsemi og ólöglegan vopnaburð. Áður höfðu dómstólar kveðið á um að herinn hefði ekki lögsögu til að ákæra óbreyttan borgara en ríkisvaldið hefur áfrýjað þeirri niðurstöðu. Rétt- arhöldin hefjast 15. þessa mánaðar. Dr. Besygie og Museveni voru bandamenn í borgarastríði sem geisaði í landinu á níunda áratug síðustu aldar. Stríðinu lauk með því að Museveni komst til valda og varð forseti og hefur hann gegnt því emb- ætti síðan. í brýnu sló á milli þeirra tveggja þegar Besygie bauð sig fram gegn sínum gamla bandamanni í forsetakosningum árið 2001. Eftir þær kosningar flúði Besygie land '.Wi FLÍSSETT PEYSA&BUXUR tilboð: 3.995 kr. FLÍS WINDSTOPPER með rennilás undir ermum S-XL R Verð frá 1.995 kr. m C3 DÖMUFLÍSPEYSA I Verðfrá1.995 kr. ^ DÖMUWINDSTOPPER ^ Verð frá 3.995 kr. SKATABUÐIIM FERÐAVERSLUN Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727 www.skatabudin.com Bann við fóstureyðingum samþykkt í Suður-Dakóta mbl.is I Fóstureyðingar eru svo að segja með öllu bannaðar í Suður- Dakóta í Bandaríkjunum eftir að rík- isstjórinn, Mike Rounds, staðfesti í gær, þriðjudag, ný lög sem hann sagði vera „beina árás“ á úrskurð Hæstaréttar Bandaríkjanna sem lögleiddi fóstureyðingar fyrir 33 árum. Þeir sem vilja heimila fóstur- eyðingar segjast ætla að berjast gegn nýju lögunum. Samkvæmt lögunum teljast læknar brotlegir ef þeir eyða fóstri i þeim tilvikum þar sem líf móð- urinnar er ekki beinlínis í hættu. Engar undantekningar eru gerðar í þeim tilvikum þar sem nauðgun eða sifjaspell hafa leitt til þung- unar. Eiga læknar yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi fyrir að eyða fóstri ólöglega. Líklegt er talið að dómstólar i S-Dakóta fresti gildistöku laganna, sem eiga að taka gildi 1. júlí. Það Mike Rounds, rfkisstjóri, samþykkti lögin þrátt fyrir að viðurkenna að þau gangi í berhögg við úrskurð hæstaréttar. hefur í för með sér að Hæstiréttur Bandaríkjanna þarf að fjalla um þau og feíla úrskurð yfirvöldum í S- Dakóta í vil áður en framfylgja má lögunum. Framfaraflokkur mælist með mest fylgi í Noregi mbl.is I Stuðningur norska Framfara- flokksins, sem situr í stjórnarand- stöðu og er til hægri á stjórnmála- vængnum, hefur aukist i kjölfar skopmyndadeilunnar svonefndu. Flokkurinn mælist nú með mest fylgi allra flokka í Noregi sam- kvæmt niðurstöðum könnunar sem voru birtar í dag í norska dagblað- inu Bergens Tidende. Framfaraflokkurinn myndi fá 31,8% atkvæða ef gengið yrði til kosn- inga í dag sem er mikil fylgisaukn- ing frá því í febrúar, en þá mældist flokkurinn með 27,1% fylgi. Að sögn stjórnmálafræðinga er talið að það megi rekja aukið fylgi flokksins til skopmyndanna um- deildu af Múhameð spámanni sem vakið hefur mikla reiði í ríkjum múslíma um allan heim. Samkvæmt könnuninni hrapar fylgi norska Verkamannaflokksins, undir forystu Jens Stoltenbergs, úr 33,1% í 28,7%. Alls tóku 988 manns þátt í könn- uninni sem var framkvæmd 1.-4. mars síðastliðinn. Varað við Sushiáti Japanskir sjómenn gera að túnfiski af bláuggaætt. Ólíkt Bandaríkjamönnum óttast þeir ekki að fá kvikasilf urseitrun af túnfiskáti.. Samtök frá Kaliforníu, sem berj- ast fyrir verndun sjávarskjald- baka, hafa varað almenning við því að borða sushi vegna hættu á kvikasilfurseitrun. Talsmaður samtakanna, sem heita „Sea Turtle Restoration Project", hefur líkt sushi-áti við rússneska rúllettu. Útsendarar á vegum sam- takanna tóku sýni af sex vinsælustu sushi-veitingastöðum Los Angeles- borgar og sendu þau á rannsóknar- stofu. Niðurstöðurnar voru sláandi. Að meðaltali var kvikasilfursmagn í túnfiski sem var notaður metið 100% yfir viðmiðunarmörkum og þar af leiðandi óhæfur til manneldis samkvæmt þeim viðmiðunum sem bandarísk matvælayfirvöld styðjast við. Túnfiskur er eitt vinsælasta hrá- efnið í sushi og því eldri sem hann er, þegar hann er veiddur, því betur hentar hann í þennan vinsæla jap- anska rétt. Túnfiskar lifa lengur en aðrir fiskar og eðli málsins sam- kvæmt safnast meira kvikasilfur í sjávarfang því lengur sem það dvelur í hafinu. Lítil sem engin hætta er á kvikasilfurseitrun í öðrum fiskum sem eru vinsælir í sushi, fiskum eins og rækju og laxi, en líftími þeirra er tiltölulega skammur. Mikill ótti er við kvikasilfurs- magn í fiski í Kaliforníu og þurfa allir sjávarréttaveitingastaðir, sem hafa fleiri en tiu starfsmenn, að hafa skilti sem vara við skaðlegum áhrifum kvikasilfurs í fiski. Tals- menn samtakanna telja að grípa verði til harðari aðgerða til þess að vernda bandarískar sushi-ætur og hvetja yfirvöld til þess að athuga að staðaldri kvikasilfursmagn í fiski á sjávarréttaveitingastöðum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.