blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 08.03.2006, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. ÓGNARSAMFÉLAGIÐ Aíslandi eru hætturnar á hverju strái. Börnin eru í sérstakri og viðvarandi hættu, auglýsingar í sjónvarpi eru ógnun við heilsu þeirra og til þess eins fallnar að gera þau að sjúklingum síðar á ævinni; um þau sitja kynferðisglæpamenn og fíkniefnasalar. Allt er hættulegt; hið illa fer sem vofa um samfélagið. Þetta er sú mynd af þjóðfélaginu sem skipulega er haldið að almenn- ingi á íslandi þessa dagana. Og lausnin sem forsjárhyggjumenn og lífs- háttastjórnendur leggja til er ávallt sú sama; það verður að herða eftir- litið og þar sem því verður ekki komið við þarf einfaldlega að banna viðkomandi fyrirbrigði. Fáir verða til þess að halda uppi vörnum fyrir persónufrelsið. Þótt margir tjái sig, þegar það þykir henta, um frelsi ein- staklingsins og ábyrgð á eigin lífi verður þess ekki vart að forystumenn í samfélagi Islendinga hafi áhuga á þessari þróun. Hvert stefnir þetta þjóðfélag og hverjir eru þeir sem hafa hagsmuna að gæta við að „terrorísera” bókstaflega alþýðu manna? Nú hafa forræðishyggjumenn og reglugerðafíklar greint nýja ógn. Raunveruleg hætta er á því að þeir sem sækjast eftir því að starfa með börnum og unglingum hafi illt í huga. Og vísbendingar eru um að þeir sem ekki eru pervertar en hafa áhuga á slíkum störfum hyggist komast í tæri við börnin í því skyni að selja þeim eiturlyf. Um þetta má lesa á for- síðu Blaðsins í gær enda er í ráði að bregðast við þessari ógn. Nú vilja eft- irlitstrúarmenn leiða í lög að þeir sem sækjast eftir störfum á vettvangi æskulýðsmála leggi fram sakavottorð með umsókn sinni. Hugsunin sem uppi er í samfélagi Islendinga nú um stundir er þessi: allir eru hugsanlega glæpamenn, barnaníðingar og fíkniefnadreifendur. Því ber fólki að leggja fram sannanir fyrir því að þannig sé því ekki farið. Allir liggja undir grun og sama krafa er gerð til allra: sannaðu heið- arleika þinn og að þú alir ekki með þér óheilbrigðar hneigðir. I þessu skyni hafa eftirlitsheimildir lögreglu verið hertar til muna. Nú er fólki hótað að fylgst sé með Netnotkun þess og símtölum. Lögreglan má enda ekki vera að því að verja borgarana á götum Reykjavíkur þar sem saklaust fólk sætir árásum og hnífstungum. Lögreglan hefur sýni- lega nóg að gera við að fylgjast með því að heiðvirðir borgarar séu ein- mitt það en ekki kynferðisglæpamenn og eiturlyfjasalar. Hörmulegt er að horfa upp á þessa þróun í átt til ógnarsamfélagsins á íslandi. Hverjir ætla að taka að sér að halda uppi vörnum fyrir heiðarlegt fólk og mótmæla þessari brjálsemi? Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjóm & auglýsingar. Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. AÖalsími: 510 3700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701. Símbréfá auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. 14 I ÁLIT MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 blaöið ...ÓSKA ÆFTÍR NÝJilM /tVÍSLBGUM ttr-pfiPRrNSÍ. RRNN A/l4 VEUA flLOJÖRJ Ktt’Útt EN MÁ S57V1t BkKJ HEir/1 QuMi 45iíSts cov. Viljum við vera Svíar? .Tillaga þessi er í samræmi við réttarþróun á Norðurlöndum og er ákvæðið samhljóða ný- legum ákvæðum í dönskum og sænskum lögum." Það er æði oft sem texti af þessu tagi birtist í greinargerðum með lagafrum- vörpum sem lögð eru fram á Al- þingi. Stundum eru tillögur um lagabreytingar hér á landi jafn- vel ekki studdar neinum öðrum rökum en þessum. Ýmis dæmi um það má finna í tillögum sem eiga uppruna í ráðuneytunum og lögð eru fram sem stjórnarfrum- vörp en það eru ekki síður stjórn- arandstæðingar á þingi sem nota rökstuðning af þessu tagi. Lagatækni og pólitík Vissulega getum við margt lært af frændum okkar á Norðurlöndum. Að mörgu leyti er þjóðfélag okkar svipað þeirra og sögulegur og menningarlegur skyldleiki okkar við þessar þjóðir birtist með marg- víslegum hætti. Lagahefð okkar og réttarkerfi á þannig meiri samsvörun í rétti norrænu ríkj- anna heldur en í engilsaxneskum rétti eða rétti meginlandsríkj- anna. Það er þess vegna ekkert óeðlilegt að við kynnum okkur reynslu norrænna ríkja þegar við mótum lagareglur á hinum ýmsu sviðum, ekki síst þegar kemur að lagatæknilegri útfærslu einstakra tillaga og aðlögun þeirra að gild- andi löggjöf. Hins vegar verðum við að fara varlega í að yfirfæra þeirra lausnir yfir á samfélag okkar umhugsunar- og gagnrýn- islaust, eins og oft er gerð krafa um í opinberri umræðu. Lagasetning er ekki bara tæknivinna. Hún byggist líka á pólitískri stefnumörkun. Þegar Norðmenn, Svíar eða Danir móta lagareglur á einhverju sviði ræðst niðurstaðan auðvitað í grundvall- aratriðum af því hvaða pólitíska leið er valin af meirihluta þings í þessum löndum. Sú leið er ekk- ert endilega rétt út frá faglegu eða fræðilegu sjónarhorni eins og stundum er látið í veðri vaka. Hún getur eftir atvikum verið skynsamleg eða óskynsamleg miðað við aðstæður í viðkom- Birgir Armannsson andi landi og auðvitað er alls ekki sjálfgefið að hún eigi við hér. Það er ekki heldur neitt sem segir að stefnumörkun danskra, norskra eða sænskra stjórnmálamanna sé í samræmi við afstöðu meirihlut- ans á Alþingi íslendinga eða vilja íslenskra kjósenda. Hverjir eru mestu kratarnir? Ég fór að hugleiða þetta um daginn þegar ég tók þátt í um- ræðum í sjónvarpi með nokkrum félögum mínum af vettvangi stjórnmálanna. Þar kepptust talsmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna við að útmála sig sem hina einu sönnu talsmenn norræna velferðarkerfisins í ís- lenskum stjórnmálum. Sami málflutningur hljómar oft á Al- þingi og enduróm hans mátti líka heyra nýlega í umræðum um álitsgerð prófessors í félagsfræði um skattamál. Niðurstaða hans var sú að við íslendingar værum að fjarlægjast norræna velferðar- fyrirkomulagið og nálgast mark- aðsskipulag hinna engilsaxnesku ríkja. Prófessorinn taldi þetta greini- lega hið versta mál en sjálfur get ég ekki tekið undir þær áhyggjur. Ég tel að á mörgum sviðum höfum við náð miklu betri árangri heldur en þessar þjóðir. Á undanförnum árum hefur hagvöxtur verið hér meiri, atvinnuástand betra og meiri kraftur í efnahagslífinu heldur en þar þekkist. Með því höfum við líka skapað okkur fjárhagslegt svigrúm til að efla félagslega þjónustu, heil- brigðiskerfi og menntakerfi. Við höfum getað efít þessa þjónustu án þess að velferðarkerfið hafi vaxið okkur yfir höfuð. Ég væri ekki til- búinn að skipta á þeirra árangri og okkar. Lausnir norrænna sósíal- demókrata hafa ekki reynst betur en stefnumörkun ríkisstjórna Islands á undanförnum árum. Höfundur er þingmaður Sjálfstœðisflokksins. Klippt & skoríð klipptogskorid@vbl.is Brotthvarf Árna Magnússonar, vonar- stjörnu Framsóknarmanna og fyrrver- andi félagsmálaráðherra, er á allra vörum um þessar mundir. Netverjar eru til aö mynda duglegir við að útlista snilli slna í þeirri list að rýna í framtíðina. Ljóst er að sitt sýnist hverjum - sumir telja þessi tíðindi muni veikja Framsóknarflokkinn en aðrir eru á öndverðri skoðun. Ein þeirra sem tjáir skoðun sína á Netinu er þingmaðurinn Asta Möller. Hún virðist sannfærð um að Finnur nokkur Ingólfsson sé orðinn svo leiður á að græða millj- ónir, eða jafnvel milljarða króna, i sæti sinu sem forstjóri VÍS og langi inn á Alþingi á ný. „íg spái þvi aö hann komi aftur á sjónvarsviðið sem framtíðarforingi og bjargvættur Fram- sóknarflokksins i erfiöri stööu," skrifar húná síðu sinni I gær. Avefsíðunni www.heimur.is er hins vegar farin sú leið að spyrja þá gesti hvaða áhrif þeir telja að brotthvarf Árna hafi. Tæp 11% þeirra sem tekið hafa þátt í könnuninni telja að fylgi Framsóknarflokksins muni aukast enda sé Siv vinsæll stjórnmálamaður. Tæp 22% telja hins vegar að fylgi flokksins muni minnka enda hafi Árni verið erfðaprins flokksins og því væntanlega erfitt að fylla það skarð sem mynd- ast við brotthvarf hans. Mikill meirihluti þátt- takenda í könnuninni, nánar tiltekið 67,6%, hafa hins vegar minnstar áhyggjur af stöðu Framsóknarflokksins á þessum timapunkti og telja einfaldlega að breytingin verði til þess að Árni verði mjög ríkur. Alþýðusamband(slands,semstundum hefur verið nefnt Alþýðusamband Morgunblaðsins af Klippara, birti (gær könnun sína á því hvað hreinlætisvörur kosta hér á landi. Enn einu sinni virðast starfsmenn ASÍ sérstaklega uppteknir á kvöldin, enda var könnunin send út til fjölmiðla rétt upp úr klukkan 9 í fyrrakvöld. Kannanir AS( hafa ávallt fengið mikla umfjöllun í Morgunblaðinu og hefur Klippari fyrir því heimildir að kannanir sam- takanna séu sendar út seint á kvöldin til að tryggja Morgunblaðinu reglulegt „skúbb" upp úr þessum könnunum. Nú bregður hins vegar svo við að ekkert er sagt frá könnuninni á sfðum Morgunblaðsins í gær og því verður spennandi að sjá klukkan hvað næsta könnun verðursendút.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.